Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Qupperneq 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011
Staðfesting á sundrungu í
eigendahópi Vinnslustöðvar
-Framkvæmdastjóri VSV ósáttur við framgöngu eigenda Stillu - Vilja láta
rannsaka kaup á Gullbergi - Keyptum raunveruleg verðmæti, ekki froðu
KRAKKAR í humri í Vinnslustöðinni. í síðustu viku voru launaseðlar í VSV um 500.
Kanna lögmæti ákvörðunar ráðherra
„Niðurstaða nýafstaðins aðalfundar
VSV talar sínu máli og ég hef litlu
þar við að bæta. Þar komu fram
sérkennilegar tillögur frá Stillu
útgerð ehf. og því miður voru þær
fyrst og fremst staðfesting á þeirri
sundrungu í eigendahópi félagsins
sem fulltrúar Stillu bera höfuð-
ábyrgð á og kynda undir frekar en
hitt,“ segir Sigurgeir Brynjar Krist-
geirsson, (Binni) framkvæmdastjóri
VSV. Hann bætir því við að aðrir
hluthafar horfi til þess að efla félag-
ið enn frekar, auka verðmæti þess og
styrkja stoðir rekstrarins á allan hátt.
„Okkur miðar vel eins og Eyja-
menn sjá og vita. Framganga með-
eigenda okkar er hins vegar dapur-
leg og afar sérstakt að þeir skuli hafa
lagt til rannsókn á mörgum þáttum
starfseminnar í Ijósi þess að þeir
hafa átt tvo fulltrúa í stjóm félagsins
um árabil auk eins varamanns.
Þeir óskuðu sem sagt eftir rann-
sókn á ákvörðunum sem þeir áttu
sjálftr hlut að, voru fylgjandi fyrst
og greiddu atkvæði með en greiddu
síðan atkvæði á móti í stjóm. Kjami
málsins er að þeir vom fyllilega
upplýstir um allt og engin tilefni
rannsóknar," sagði Binni.
Tillögum Stillumanna var vísað á
bug á aðalfundinum. „Þeir halda
samt sínu striki og leggja nú til að
VSV höfði skaðabótamál á hendur
nokkram núverandi og fyrrverandi
stjórnarmönnum ásamt mér sem
framkvæmdastjóra. Sakarefnin eru
þau að við stuðluðum að því að efla
og styrkja Vinnslustöðina með
kaupum á hlutabréfum í Ufsabergi,
sem á og gerði út Gullberg.
Um þennan málatilbúnað mætti
segja ýmislegt en ég læt duga að
vísa til ummæla Haraldar Gísla-
sonar á aðalfundinum þar sem hann
sagði að með þessum tilteknu kaup-
um hefði Vinnslustöðin þó verið að
kaupa raunveraleg verðmæti en ekki
froðu eins og Guðmundur Kristj-
ánsson upplýsti í fjölmiðlum nýlega
að hann hefði keypt og fengið
afskrifaða að fullu hjá okkur, skatt-
greiðendum landsins."
Leikum
GRM, Gylft, Rúnar og Megas
verða með tónleika í Höllinni á
föstudag og hita upp fyrir þjóð-
hátíð. Þeir félagar gáfu út plötu
með sínum vinsælustu lögum fyrir
um ári síðan og hafa fylgt henni
eftir með tónleikum um allt land.
Þeir loka nú hringnum í Eyjum og
á efniskránni eru þeirra vinsælustu
lög. Tónleikamir hefjast klukkan
klukkan tíu en húsið verður opnað
klukkan níu.
„Við vorum að koma úr fjögurra
daga tónleikaferð og komum þá
fram á Kirkjubæjarklaustri,
Skjöldólfsstöðum og Höfn og af
því að við þurftum að fara norður
fyrir þegar brúin fór ákváðum við
að vera með tónleika á Húsavík
líka. Annars eram við búnir að
spila um allt land og eigum að ég
held bara Selfoss og Vestmanna-
eyjar eftir,“ sagði Rúnar Þór þegar
hann var spurður út í tónleika-
ferðalagið.
„Það er ár síðan platan kom út og
við höfum fylgt henni eftir og
Vinnslustöðin er að láta kanna lög-
mæti þeirrar ákvörðunar sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra að
setja reglur um úlhlutun makrfl-
kvóta, án þess að stuðst sé við
veiðireynslu, og lögmæti þeirrar
ákvörðunar sama ráðherra að setja
sóknarmark á makrílveiðar fyrir
tveimur árum.
Þetta kom fram í ræðu stjómarfor-
manns VSV, Guðmundar Arnar
Gunnarssonar, á aðalfundi félags-
ins. Vinnslustöðin og Huginn VE
voru frumkvöðlar í veiðum á
makríl á sínum tíma og voru
samanlagt með um 30% hlutdeild í
makrílnum á fyrstu árum veiðanna.
Stjómarformaðurinn fjallaði einn-
ig um þau áform ríkisstjómarinnar
að breyta skipulagi fiskveiði-
eram að undirbúa útgáfu á næstu
plötu. A tónleikum spilum við
meira efni en er á plötunni og
leikum okkar þekktustu lög eins
og Brotnar myndir, Ut á gólfið og
Spáðu í mig. Ásgeir Óskarsson,
stjómunar með því að keyra í gegn
frumvarp á Alþingi í haust sem
engir aðrir væru sáttir við en
„þröngur hópur stjórnmálamanna
og einkabloggarar þeirra." Guð-
mundur Örn vísaði í framhaldinu til
bókunar stjórnar VSV, sem fylgir
ársreikningi 2010, þar sem segir:
„Stjóm Vinnslustöðvarinnar hf.
bendir á að stjómvöld hafa haft
uppi áform um að fara svokallaða
fymingarleið. Þessi áform, komi
þau til framkvæmda, munu aug-
ljóslega breyta miklu um gjald-
fæmi félagsins og tefla í tvísýnu
virði hlutafjár í félaginu sem og
greiðslugetu félagsins til núverandi
lánardrottna.“
Stjómarformaðurinn vék í lok
ræðunnar að þremur tillögum Stillu
trommuleikari úr Stuðmönnum er
með okkur og Sigurður Ámason,
sem er eiginlega antik, það fer
ekki mikið fyrir honum en hann er
antik vegna þess að hann var í
Náttúra en er kynntur sem náttúra-
útgerðar ehf. (sjá frétt á forsíðu)
um rannsókn á starfsháttum
stjómar og stjómenda VSV:
„Þeir sem biðja um rannsóknina
eiga allir fulltrúa í stjóm félagsins
og hafa haft alla möguleika á að
óska eftir gögnum og/eða óska eftir
að endurskoðendur félagsins gæti
sérstaklega að þeim álitaefnum sem
þeir óska nú eftir að sérstök
rannsóknarnefnd verði skipuð til að
skoða. Það er óneitanlega sérkenni-
legt að upplifa óeiningu sem þessa
og þar sem rekstur félagsins hefur
verið góður, starfsmenn og stjórn-
endur hafa staðið sig með mikilli
prýði, eins og tölumar sýna okkur
nú í dag.“
Umræddar tillögur vora allar
felldar síðar á aðalfundinum.
laus með okkur,“ sagði Rúnar Þór.
„Við syngjum allir í lögunum og
það er mjög gaman að heyra
Megas syngja Minningu um mann.
Gylfi vill auðvitað hafa stuð og
láta syngja með en Megas ekki og
ég er bamið í hópnum. Ég er tíu
áram yngri og þeir tóku á móti
mér þegar ég kom til höfuðborg-
arinnar frá Isafirði. Þeir kenndu
mér að drekka, illa, en ég hætti
fyrir tuttugu og sex og hálfu ári
síðan,“ sagði Rúnar Þór en næstu
plata kemur væntanlega út fyrir
næstu jól.
„Við eram með unga og efnilega
tónlistarmenn með okkur rétt eins
og á fyrri plötunni og nú eram við
með strákana hans Rúnars Júl. Ég
hlakka til að koma til Eyja og við
hefðum auðvitað helst viljað vera
á þjóðhátíð. Við sækjum bara um
næst og vonandi sjáum við sem
flesta á tónleikunum á föstudags-
kvöldið. Við eram að spila lög sem
allir þekkja og það er ávfsun á
stuð,“ sagði Rúnar Þór.
Handverkshópurinn
Vilpa - Handverkshús:
Markaður í
Pipphúsi
-Opna á laugardag
Laugardaginn 23. júlí 2011 mun
handverkshópurinn Vilpa opna
vinnustofur sínar og markað í
Pipphúsi, Norðursundi 10. Opn-
unarhóf verður milli þrjú og
fimm og era allir velkomnir.
Vilpa handverkshópur, sem
samanstendur af sex konum,
hefur sett á stofn handverkshús
þar sem rekið er sameiginlegt
verkstæði og vinnuaðstaða til að
hanna og framleiða handverk.
Samhliða vinnustofunni opnar
hópurinn nú handverksmarkað í
Pipphúsi.
Stofnmeðlimir Vilpu era Ás-
gerður Jóhannsdóttir, Brynja
Bjamason, Helena Jónsdóttir,
Matthilda Maria Eyvindsdóttir
Tórshamar, Sísí Jónsdóttir og
Þórhildur Ragna Karlsdóttir.
Prjónavörar, skartgripir, minja-
gripir, mósaík, tré- og leðurvara
verða f boði ásamt alls kyns öðru
handverki. Fastir opnunartímar í
sumar verða frá 11.00 til 17.00
alla daga nema mánudaga.
Nafnið Vilpa varð fyrir valinu
þar sem það tengist Vilborgu
dóttur Herjólfs landnámsmanns
og einu af fáum vatnsbólum á
Heimaey til foma. Vildi kvenna-
samvinnuhópurinn halda á lofti
merki landnámskonunnar Vil-
borgar. Saga hennar er saga konu
sem var bæði sterk og mild, saga
sköpunar og tengingar við nátt-
úruna.
Stefnt er að áframhaldandi
þróun á vinnustofum, handverks-
markaði og námskeiðahaldi með
það að markmiði að opna fyrir
samstarf við annað handverksfólk
í Eyjum. Þannig mætti styrkja og
auka vægi handverks og hönn-
unar í menningarflóra Vest-
mannaeyja.
F.h. Vilpu handverkshúss
Asgerður Jóhannsdóttir
Vestmannabraut 8
asgerd@mmedia. is
481-1519 og 663-5330
Baldur
leysir
Herjólf af
Breiðafjarðarferjan Baldur mun
leysa Herjólf af í siglingum milli
Vestmannaeyja og Landeyjahafn-
ar eða Þorlákshafnar þegar
Heijólfur fer í slipp í september.
Herjólfur fer þá í reglubundið
viðhald en talið er að skipið verði
frá fram í október. Baldur hefur
áður leyst Hetjólf af hólmi en
veita verður undanþágu fyrir skip-
ið þar sem það hefur ekki sigl-
ingaleyfi á hafsvæðinu milli lands
og Eyja.
Nú, 21. júlí, er ár síðan áætlunar-
siglingar í Landeyjahöfn hófust en
Herjólfur fór fyrstu ferðina
þriðjudaginn 20. júlí í fyrra.
Afkoma VSV 2010
• Rekstartekjur námu jafnvirði 13,6 milljarða króna og hagnaður af rekstri samstæðunnar nam jafnvirði
um 700 milljóna króna.
• Eignir félagsins námu jafnvirði 17,1 milljarðs króna í lok árs 2010 og eigið fé nam þá 3,1 milljarði
króna. Eiginfjárhlutfall var 30,2%.
• Heildarskuldir móðurfélags námu jafnvirði hátt í 12 milljarða króna í lok árs. Langtímaskuldir höfðu þá
aukist um 8% á árinu vegna gengisfalls evru og vegna lána til kaupa á Gandí VE.
• Handbært fé frá rekstri móðurfélags nam jafnvirði um 2,2 milljarða króna í árslok og jókst um liðlega
60% frá fyrra ári. Það er glöggur mælikvarði á hve góð afkoma félagsins var 2010.
okkar þekktustu lög
GYLFI ÆGISSON verður í Höllinni á föstudaginn ásamt Megasi og
Rúnari Þór.
ÍJtgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannacyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson.
BkwJamenn: (iuðbjörg Signrgeirsdóttir og Július Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðars-
son & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetnr ritstjómar: Strandvegi 47.
Símar: 4811300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: http//www.eyjafrettir.is
ERÉTTER koma út alla fimmtndaga Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnan’ersluninni, Krónunni, ísjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu í Friðarböfn.. FRÉTITR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprcntun, bljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er óbeimilt nema heimilda sé getið.