Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 14
14
|-rCHÍr / Fimmtudagur 21. júlí 2011
|Golf: Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja
SIGURVEGARAR í Meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja stilltu sér upp fyrir ljósmyndara Frétta eftir verðlaunaafhendinguna.
Örlygur meistari í áttunda sinn
- Karin Herta Hafsteinsdóttir sigraði í kvennaflokki og Magnús Þórarinsson í öldungaflokki
Meistaramóti Golfklúbbs Vest-
mannaeyja lauk á laugardag. Til
stóð að það hæfist á miðvikudag en
vegna vatnsveðurs þann dag var
ákveðið að .stytta það úr fjórum
keppnisdögum í þrjá og var því
einungis spilað fimmtudag, föstudag
og laugardag.
Reyndar fór keppni í bama- og
unglingaflokki fram nokkru fyrr og
er það gert í flestum klúbbum til að
sú keppni stangist ekki á við keppni
hinna eldri.
Hið besta veður var alla þrjá móts-
dagana, keppendur hafa oft verið
fleiri en að þessu sinni, en rúmlega
40 tóku þátt í eldri flokkunum.
Mikil vinna í frystihúsunum og
öðrum fyrirtækjum sem tengjast
fiskvinnslunni er talin eiga sinn þátt
í því. Ef allir keppendur eru taldir
með, yngri flokkamir líka, fer þó
keppendafjöldinn hátt í hundrað þar
sem tæplega 50 krakkar, sem verið
hafa í Golfskólanum undir hand-
leiðslu Karls Haraldssonar, golf-
kennara, tóku þátt í móti yngri
flokkanna. En úrslit urðu þessi í
þeim flokkum sem keppt var í:
Telpur, 13 ára og yngri
1. Magnea Jóhannsdóttir 88 h
2. Ásta B. Júlíusdóttir lOOh
3. Júlíanna Sveinsdóttir 131 h
Telpur, svartir teigar:
1. Eydís Oddsdóttir 93 h
2. HuldaS. 100 h
3. DiddaS. 131 h
Drengir, 10 ára og yngri:
1. Andri Sigurjónsson 104 h
2. Sævald Gylfason 118 h
3. Steinþór Oskarsson 121 h
Drengir, 12 ára og yngri:
1. Lárus Garðar Long 78 h
2. Felix Friðriksson 85 h
3. Nökkvi Óðinsson 87 h
Drengir 13 - 14 ára:
1. Hallgrímur Þórðarson 105 h
2. Daníel Ingi 115 h
3. Ingvar Ingólfsson 120 h
Öldungaflokkur karla:
Venjulega er keppt í tveimur aldurs-
flokkum öldunga, 55 til 69 ára og 70
ára og eldri. Að þessu sinni var
aðeins einn keppandi skráður í eldri
flokkinn, Ragnar Guðmundsson, og
lék hann því með þeim yngri. Alls
tóku 13 öldungar þátt í mótinu og af
þeim luku 11 leik. í öldungaflokki
er keppt bæði með forgjöf og án.
Með forgjöf:
1. Magnús Þórarinsson 218 h
2. Bergur Sigmundsson 220 h
3. Gunnar K Gunnars 228 h
Án forgjafar:
1. Magnús Þórarinsson 233 h
2. Ásbjöm Garðarsson 244 h
3. Ragnar Guðmundsson 256 h
Kvennaflokkur:
Aðeins þrjár konur skráðu sig til
leiks en það hefur um margra ára
skeið verið nokkurt áhyggjuefni hve
fáar konur taka þátt í mótahaldi
klúbbsins. GV er mjög aftarlega á
merinni hvað það varðar. Allajafna
ættu konumar að leika flokkaskipt,
eins og karlamir, en þegar fjöldinn
er ekki meiri en raun ber vitni hefur
verið bmgðið á það ráð að leika í
einum almennum flokki. Að þessu
sinni var um spennandi keppni að
ræða sem ekki varð útkljáð fyrr en á
síðustu holu og munaði aðeins einu
höggi þegar upp var staðið.
1. Karin H. Hafsteinsdóttir 287 h
2. Katrín Magnúsdóttir 288 h
3. Laufey Jörgensdóttir 301 h
3. flokkur karla:
Sex keppendur voru skráðir til leiks
í 3. flokki og luku fimm þeirra
keppni. Þar var um nokkra yfirburði
að ræða hjá Vigni Arnari Svafars-
syni og hefði árangur hans nægt til
2. sætis í 2. flokki.
HJÖRLEIFUR ÞÓRÐARSON
lék vel og vann í 1. flokki.
1. Vignir A Svafarsson 263 h
2. Magnús Gíslason 299 h
3. Sindri Jóhannsson 305 h
2. flokkur karla:
Flestir vora skráðir til leiks í 2.
flokki karla, eða 14 manns. Aðeins
tíu þeirra luku leik, fjórir sem drógu
sig úr keppni eða fengu frávísun.
Þama vora úrslit nokkuð afgerandi
og talsverður munur á fyrsta til
þriðja sæti.
1. Ólafur Guðmundsson 254 h
2. Óskar Jósúason 264 h
3. Sigursveinn Þórðarson 271 h
1. flokkur karla:
Tíu keppendur vora skráðir til leiks
í I. flokki en þrír þeirra heltust úr
lestinni. Þar var keppni mjög jöfn
fyrstu tvo dagana en á þriðja degi
sýndi Hjörleifur Þórðarson mátt
sinn og megin og sigraði með
frábærri spilamennsku, fór hringinn
á 72 höggum.
1. Hjörleifur Þórðarson 226 h
2. Kristgeir O. Grétarsson 236 h
3. Arnsteinn I. Jóhannesson 238 h
Meistaraflokkur karla:
Sex keppendur voru í meistaraflokki
karla og einn þeirra meistarinn frá
síðasta ári, Hallgrímur Júlíusson.
Eftir fyrsta daginn hafði Rúnar
Karlsson eins höggs forystu en eftir
tvo hringi var Örlygur Helgi Gríms-
son kominn með tveggja högga
forskot. Það lét hann ekki af hendi
á þriðja degi, spilaði á einum undir
pari vallarins, fékk fugl á fjórum
síðustu holunum og vann öraggan
sigur, en þetta er í áttunda sinn sem
Örlygur Helgi hampar þessum
eftirsóknarverða titli. Hann er nú
kominn í annað sæti þeirra sem
oftast hafa hampað Vestmannaeyja-
meistaratitli í meistaraflokki karla.
Efst trónir Sveinn Ársælsson sem
vann titilinn 14 sinnum og í öðra
sæti eru þeir Örlygur Helgi og
Haraldur Júlíusson með átta skipti.
En þessi var lokastaðan í meistara-
flokki:
1. Örlygur H. Grímss. 209 h
2. Rúnar Þór Karlsson 215 h
3. Hallgrímur Júlíusson 218 h
I mótslok tilkynnti Helgi Bragason,
formaður GV, að ákveðið hefði
verið að úthluta úr Minningarsjóði
Gunnlaugs Axelssonar 100 þúsund
krónum til styrktar þeim unglingum
í GV sem á næstunni era að fara að
keppa fyrir hönd klúbbsins uppi á
fastalandinu.
VESTMANNAEYJAMEISTARINN 2011, Orlygur Helgi Grímsson
með sigurverðlaunin í mótslok.
KARIN H. Hafsteinsdóttir, sigurvegari í kvennaflokki ásamt Katrínu
Magnúsdóttir sem varð önnur, Helga Bragasyni og ungum aðdáanda.