Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Qupperneq 16

Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Qupperneq 16
ÍFRÉTTIR) Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 plÚS (Mi ™ M SUmRRPERÐ'R ypæfEýjiÉÉ sfeu-u uóó UNDIRBÚNINGUR í Herjólfsdal fyrir þjóðhátíðina er nú að ná hámarki. Handboltastrákarnir sjá sem fyrr um brennuna og sögðu að hún yrði skynsamlega sett saman og sérlega glæsileg í ár. Eins og alltaf fá þeir lánað efni í brennuna víðs vegar um bæinn og voru nýkomnir úr ieiðangri þegar Ijósmyndara Frétta bar að garði í vikunni. Ríflega 10.000 þúsund gestir á leið á þjóðhátíð Tölur um fjölda benda til þess að ríflega 10.000 farþegar séu væntan- legir á þjóðhátíð með flugi og Herjólfi. Flugfélagið Emir áætlar að fara sautján ferðir á milli Reykja- vfkur og Vestmanneyja frá mið- vikudegi til föstudags. „Við munum flytja í kringum 400 manns þessa daga og sama fjölda til baka á mánudeginum. Svo erum við að þjónusta Flugfélag íslands sem flytur 600 manns fram og til baka,“ sagði Hannes Sigurðsson, stöðvar- stjóri flugfélagsins Ernis í Vest- mannaeyjum, þegar hann var spurður út í flugferðir fyrir þjóð- hátíð. „Það er eiginlega fullbókað í þess- ar ferðir en þetta eru töluvert færri farþegar en í fyrra því þá vomm við með 1700 farþega á mánudeginum. Við eigum eftir að bæta við ferðum og þá verða þetta væntanlega 1100 til 1200 farþegar. Ég held að skýringin sé minni flutningsgeta, við erum með minni vélar og Flug- félag íslands með færri vélar,“ sagði Hannes þegar rætt var við hann á miðvikudag. Herjólfur siglir 30 ferðir milli lands og Eyja frá miðvikudegi til sunnudags og skipið meira og minna fullt í allar ferðir. Sara Páls- dóttir, þjónustustjóri Eimskips, segir að þessa daga sé fyrst og fremst verið að ferja þjóðhátíðargesti til Eyja og telur að bókaðir farþegar á leið á þjóðhátíð séu um 9000. „Um 8000 farþegar eiga bókaðar ferðir frá Eyjum frá mánudegi til mið- vikudags en það er alltaf eitthvað um að þjóðhátíðargestir sem eiga bókað með flugi kaupi miða f Herjólf til að tryggja sig ef ekki er hægt að fljúga. Gamlir Vestmanna- eyingar fara líka oft seinna til baka og bíða af sér mestu traffíkina. Það verður mjög gott eftirlit í afgreiðslu og við skipið og hafa aldrei verið eins margir öryggis- verðir og björgunarsveitarmenn. Miðar verða skannaðir og engir farþegar með ógilda miða komast inn í afgreiðsluna og þar af leiðandi ekki í skipið. Flestir miðanna eru seldir f gegnum Netið og við höfum fengið fréttir af því að miðar hafi verið prentaðir oftar en einu sinni. Þá gildir sá miði sem fyrst er skann- aður og aðrir sitja uppi með ógilda miða,“ sagði Sara en talsvert er um að miðar séu seldir á samskipta- síðum á Netinu. „Ég vil líka taka fram að týndur miði er tapað fé, við getum ekki prentað miða út fyrir fólk í allri þessari traffík, Ég vil benda á að ef fólk er með ógildan miða og hefur keypt hann af einhverjum sem það þekkir og er tilbúið að kæra þá er Eimskip tilbúið að standa með þeim,“ sagði Sara og tekur fram að skipið sé að mestu fullbókað og því ekki hægt að kaupa nýjan miða ef brögð hafa verið í tafli. Gera má ráð fyrir að allt að 1000 manns komi eftir öðrum leiðum, t.d. minni flugvélum og þyrlum. Það eru því 10.000 til 11.000 manns sem stefna á þjóðhátíð í Vestmannaeyj- um í ár. Lyftan í gagnið I gær, miðvikudag voru upptökumannvirki hafnarinnar, lyftan, prófuð þegar Kap VE var tekin upp. Lyftan bilaði í október 2006 og er viðgerð og endurbótum á henni loks að ljúka. ii _________________________________________________________ _________ VIKUTILBOÐ 21. - 26. júlí — Byggi morgunkorn verð nú kr 598,- verð óáur kr 698,- Þeyti toppur verð nú kr 498,- verð óður kr 648,- Lambi eldhúsrúllur 3 stk verð nú kr 468,- verð dður kr 538,- Rifsberja Helgarsteik verð nú kr/kg 2198,- verð dður kr/kg 2748,- OPNUNARTÍMI: Món. - Föst. kl. 7.30 - 19.00 Laugardoga kl.10.00 -19.00 Sunnudaga kl.11.00 -19.00 SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS 15. MAÍ TIL 15. AGUST Frá Vestmannaeyjum Frá Landeyjahöfn Miðvikud. - Mánud. I<l. 8:30,11:30,14:30,17:30, 20:30 kl. 10:00, 13:00,16:00,19:00, 22:00 Þriðjudaga l<l. 8:30,11:30,17:30, 20:30 kl. 10:00,13:00,19:00, 22:00 HERJÓLFUR Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.herjolfur.is MILLI LANDS OC EYJA

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.