Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 1

Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 18 M ary Poppins er eitt af stærstu verkefnum Maríu, sem þó hefur komið víða við sem búningahönn-uður. „Ég byrjaði að hanna búningana í ágúst og saumavinnan hófst í nóvember. Þetta er því gríðarmikið verk á stuttum tíma,“ segir María um þá tæplega 150 búninga af um 200 sem saumaðir voru frá grunni. Mary Poppins er flestum kunn úr kvik- myndinni sem er frá árinu 1964. „Þú sérð Mary ekki fyrir þér öðruvísi en með svarta hattinn með blómunum, slaufuna um háls- inn og með svuntuna. Sumum hlutum er óþarfi að breyta og óþarfi að finna upp hjólið.“ Í öðrum hlutum sýningar-innar eru farnar nýjar leiðir og ekki sótt í þekktar fyrir-myndir. „Í senunni sem flestir þekkja sem teiknimynda senuna úr kvikmyndinni sköpum við nýjan heim og ferðumst niður í hafdjúpin.“ Þar má fólk eiga von á hafmeyjum, sokknum marmara-styttum og hvers kyns furðufiskum. „Ótrúlega mikið af duglegu fagfólki hefur komið að verkefninu og saumakonurnar í Borgar leikhúsinu eru búnar að vera á haus síðustu þrjá mánuði.“ Í tvígang þurfti María að bregða sér til London í leit að efni í búningana. „Þetta eru litríkir og fjölskrúðugir búningar. Þótt margt sé fáanlegt á Íslandi er það samt svo lítið að stundum þ f ÓSKARINN NÁLGASTHelsta tískusýning ársins fer fram á sunnudagskvöldið þegar Óskarsverðlaunin verða afhent í Los Angeles. Margir bíða spenntir eftir að sjá hverju frægustu leikkonurnar skarta á rauða dreglinum. Tískan sem birtist á Óskarnum reynist oftar en ekki sú sem hefur mest áhrif á þær konur sem vilja fylgja tískunni. ER AÐ LJÚKA VERTÍÐHEIM AÐ SLAKA Á Á bak við búningana tvö hundruð í leiksýningunni Mary Poppins stendur búningahönnuðurinn María Theódóra Ólafsdóttir. SAUMAÐ AF KRAFTI Tæplega 150 af um 200 búningum í Mary Poppins voru saumaðir frá grunni. Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is Mikið af flottum tilboðum TÆKIFÆRISGJAFIRMargar gerðir Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Laugardaga frá kl. 10-14 teg GEM - fæst í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.770,- NÝKOMINN, GLÆSILEGUR Opnum í dag með fulla verslun af nýrri vorvöru! KRAKKARFIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013 KynningarblaðHreinlætisvörur, bleiur, Veröld Astridar Lindgren, Maxímús Músíkús, smáforrit og bólusetningar. Vefsíðan er lokaverkefni mitt í skólan-um en mig hafði lengi langað til að fá að kíkja í kokkabækur leik skólanna,“ segir Berglind Mari Valdemars dóttir, nemi í hagnýtri menningarmiðlun. Hún hefur safnað uppáhaldsuppskriftum leikskóla- barna saman á vefsíðu og eldað réttina heima. Hún segir dularfulla matarlyst sonar síns hafa kveikt hugmyndina. „Ég fékk alltaf að heyra hvað strákurinn minn borðaði vel í leikskólanum en fannst hann ekki hafa mikla matarlyst heima. Ég heyrði svipaðar sögur hjá öðrum foreldrum og þegar ég vann s o sjálf einn vetur á leik- skóla sá ég hvað krakkarnir borðuðu alltaf vel og hvað maturinn var góður.“ Berglind sendi öllum leikskólum lands- ins bréf og bað um að fá sendar uppskriftir. Hún fékk svör frá yfir fimmtíu leikskólum og hófst handa við að elda og prófa réttina á fjölskyldunni. „Þetta hefur gengið mjög vel, drengurinn klárar alltaf af diskinum “ segir hú hl j set einnig á síðuna. Til dæmis að áta matinn líta vel út, ekki blanda honum mikið saman eða stappa og að bjóða upp á fjölbreyttan mat en kynna eina nýja tegund í einu til að smakka. Eins að gefast ekki upp þó barnið fúlsi við einhverju nýju heldur bjóða aftur upp á það nokkru síðar,“ segir Berglind. Hún segir eldamennskuna hjá henni sjálfri hafa breyst eftir að hún fór að vinna verkefnið og hún sé meðvitaðri um það sem ratar í pottana. „Ég er til dæmis meðvitaðri um að bjóða upp á fjölbreyttan mat og eins sá ég í hand- bókinni að lögð er áhersla á meðalhóf. Það finnst mér heilbrigt viðhorf gagnvart mat og sjálf hef ég á bak við eyrað að tala alltaf vel um mat í eyru barna.“ En kom henni eitthvað á óvart? „Já, vinsælasta uppskriftin sem ég fékk er að lifrarbuffi. Ég get ekki ímyndað mér mörg börn fái lifrarbuff heima hjá sér. Ég á sjálf til dæmis eftir að koma mér í að elda þá Dularfull matarlyst leikskólabarnaBerglind Mari Valdemarsdóttir lýkur námi í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands í vor. Hún rannsakar hver galdurinn er á bak við góða matarlyst leikskólabarna og safnar nú saman á vefsíðu uppáhaldsmataruppskriftum leikskólabarna. 2 SÉRBLÖÐ Krakkar | Fólk Sími: 512 5000 21. febrúar 2013 44. tölublað 13. árgangur Kirkjustræti göngugata Gera á Kirkjustræti að göngugötu að mestu með rafrænni umferðarstýr- ingu. Nýtt hús sem snýr að götunni verður látið kallast á við þau gömlu. 4 Skiptastjóri í mál við saksóknara Sérstakur saksóknari neitar að afhenda skiptastjóra Milestone rann- sóknargögn. Málið fer fyrir dóm. 2 Krónan líklegasta bitbeinið Sjálf- stæðismenn koma saman til 41. landsfundar í dag. Gjaldmiðilsmál verða þar ofarlega á baugi. 6 Má kosta 44 þúsund Athugasemdir tollstjóra urðu til þess að breytingar voru gerðar á frumvarpi til tollalaga. Ákvæði um hámarksverðmæti staks hlutar var sett aftur í lögin. 10 SPORT Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson spilar með Bjerringbro-Silkeborg næsta vetur. 44 Opið til 21 í kvöld 21. febrúar–6. mars Undur vísindanna Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. 18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á tölublað, okt.-des. 2012. 93% Auglýsing í Fréttablaðinu nær til yfir 93% lesenda blaðanna Lesa bara Morgunblaðið 7% Lesa bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið 28% Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Lesa bara Fréttablaðið 65% SKOÐUN Núna er íslenska krónan ekki fimm aura virði, skrifar Hjálmtýr Guðmundsson. 19 MENNING Hin fimmtán ára Melkorka Davíðsdóttir Pitt leikur lykilhlutverk í Þjóðleikhúsinu. 50 LÍFSSTÍLL Steypiboð, eða „baby showers“, eru farin að ryðja sér til rúms hér á landi. Um banda- ríska hefð er að ræða þar sem vinkonur verðandi móður halda óvænt boð fyrir hana áður en barn- ið kemur í heiminn. Bleyjukökur eru vinsælasta gjöfin í slíkum veislum vestanhafs en þær eru einnig fáanlegar hérlendis. Vinkonur Karenar Kjartansdóttur, sem á von á fyrsta barni sínu í apríl, komu henni á óvart og slógu upp steypiboði fyrir hana. Hún segir boðið hafa tekist vel. „Stelpurnar voru til dæmis búnar að smyrja súkkulaði í þrjár bleyjur og ég átti að þefa af þeim og giska á hvaða súkkulaði væri í hvaða bleyju. Ég fékk síðan pakka fyrir hvert rétt svar og þar sem ég náði þeim öllum rétt fékk ég þrjár rosa flottar gjafir. Ætli þær séu þá ekki orðnar stikkfrí að gefa mér sængurgjafir þegar barnið kemur,“ segir Karen. - trs / sjá síðu 40 Æ fleiri Íslendingar halda boð þar sem verðandi móður er komið á óvart: Steypiboð ryðja sér til rúms Bolungarvík 5° S 7 Akureyri 5° S 2 Egilsstaðir 6° S 4 Kirkjubæjarkl. 5° SA 5 Reykjavík 7° SA 7 Áfram milt Í dag má búast við SA strekkingi og súld sunnan- og vestantil. Í öðrum landshlutum verður hægari vindur og úrkomulítið. Milt í veðri. 4 JARÐAMÁL Fæstar jarðir eru hnit- settar og uppmældar og því liggur sjaldnast fyrir nákvæm stærð þeirra og lega. Stuðst er við landa- merkjabækur, margar frá 19. öld. Magnús Leo- poldsson fast- eignasali, segir einhvern skurk hafa verið gerð- an í þessu, til að mynda í vinnu óbyggðanefndar. Hún snúi hins vegar aðallega að hálendinu. „Það eru þessi þinglýstu landa- merki sem gilda, frá þessari þúfu í þessa, sjónhending í þennan stein. Það blívur.“ Galli sé hins vegar að þessu fylgi ekki hnit og stundum leiki vafi á því um hvaða landa- merki sé verið að ræða. Þá þurfi að styðjast við handskrifuð landa- merkjabréf, sem oft geti verið erf- itt að lesa.“ - kóp / sjá síðu 16 Óvissa um stærð jarða: Gangskör þarf í landamerkjum AFSTAÐA ÞINGMANNA TIL VANTRAUSTS ÓRÁÐIN ATKVÆÐI 6 ■ Björt framtíð ■ Hreyfingin ■ Utan flokkka Á MÓTI 31MEÐ 26 16 9 1 20 11 Stelpurnar voru til dæmis búnar að smyrja súkkulaði í þrjár bleyjur og ég átti að þefa af þeim og giska á hvaða súkkulaði væri í hvaða bleyju. Karen Kjartansdóttir verðandi móðir sem var haldið steypiboð. MAGNÚS LEOPOLDSSON SIGURVEGARAR KVÖLDSINS Ásgeir Trausti hlaut flest verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum í gærkvöld. Hann átti bestu hljómplötuna, Dýrð í dauðaþögn, var valinn bjartasta vonin, hlaut netverðlaun Tónlist.is og var kjörinn vinsælasti flytjandinn í netkosningu á tonlist.is. Retro Stefson hlaut þrenn verðlaun og Moses Hightower tvenn. Þá var Valdimar Guð- mundsson valinn söngvari ársins og Andrea Gylfadóttir söngkona ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALÞINGI Stjórnarliðar á þingi ætla að freista þess að koma van- trauststillögu Þórs Saari, þing- manns Hreyfingarinnar, á dagskrá strax í dag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, í stað þess að bíða til þriðjudags eins og skilja mátti á Þór að stæði til. Þór bar fram vantrausts tillögu á ríkisstjórnina síðdegis og sagði ástæðuna vera þá að hún hefði heykst á afgreiðslu frumvarps að nýrri stjórnarskrá. Hann vill rjúfa þing og kjósa 13. apríl. Þangað til skuli starfsstjórn allra flokka fara með völd. Bjarni Benediktsson, for maður Sjálfstæðisflokksins, og Sig mundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sögðust í gær mundu styðja tillöguna og heimildir blaðsins herma að það sama eigi við um flokkssystkin þeirra. Í fjarveru Róberts Marshall, Bjartri framtíð og áður Sam- fylkingunni, hefur ríkis stjórnin 31 þingmann. Einn þeirra, Þráinn Bertelsson í Vinstri grænum, sagði í viðtali við Vísi í gær að hann væri óákveðinn í málinu. Fyrir liggja orð hans um að stuðning- ur við ríkisstjórnina sé háður því hvernig ríkisstjórninni takist til með stjórnarskrármálið. Því er ljóst að þingmenn utan flokka hafa líf ríkis stjórnar innar í höndum sér. Í sam tölum við Fréttablaðið sögðust Atli Gísla- son og Jón Bjarnason ekki ætla að gefa upp afstöðu sína. Guð mundur Steingríms son sagðist líklega mundu sitja hjá. Flokkssystur Þórs, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggva- dóttir, hafa ekki gert upp hug sinn en Margrét kvaðst í gærkvöldi Líf stjórnar í fárra höndum Stjórnarliðar vilja afgreiða vantrauststillögu Þórs Saari strax í dag. Líf stjórnarinnar veltur einkum á afstöðu utanflokksmanna, Þráins Bertelssonar og flokkssystra Þórs. Steingrímur J. Sigfússon kallar tillöguna „vitleysu“. | Atli Gíslason | Jón Bjarnason | Lilja Mósesdóttir | Guðmundur Steingrímsson | Margrét Tryggvadóttir | Birgitta Jónsdóttir frekar hallast að því að styðja til- löguna. Ekki náðist í Lilju Móses- dóttur í gærkvöldi. Inntur eftir áliti sínu á tillögu Þórs í kvöldfréttum Rúv í gær sagði Steingrímur J. Sigfús son, formaður Vinstri grænna, von- ast til að ekkert yrði úr málinu en lýsti þeirri skoðun sinni að um „vitleysu“ væri að ræða þar sem kjörtímabilinu væri að ljúka. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði að ef stjórnarskrár- málið væri ástæða vantrausts- tillögunnar væri erfitt að skilja hvað Þór væri að hugsa því yrði hún samþykkt væri stjórnarskrár- málið þar með úr sögunni. - shá, sh

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.