Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 4
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SUÐUR-AFRÍKA, AP Rannsóknarlög- reglumaðurinn Hilton Botha viður- kenndi að ekkert hefði fundist við rannsókn málsins sem afsannað gæti frásögn Oscars Pistorius af atburðum næturinnar 14. febrú- ar, þegar hann skaut kærustu sína Reevu Steenkamp. Botha átti í nokkrum erfiðleikum með að svara spurningum verjenda Oscars Pistorius í réttarsal í gær. Saksóknari í málinu segir engu að síður ljóst að Pistorius hafi myrt kærustu sína að yfirlögðu ráði. Botha viðurkenndi meðal ann- ars að vitni, sem sagðist hafa heyrt hávaðarifrildi inni á heimili Pistor- ius, hafi verið í 600 metra fjarlægð frá húsinu. Nokkru síðar sagði hann að fjarlægðin hefði verið 300 metr- ar, sem engu að síður er nokkuð langt til að geta fullyrt að hávaðinn hafi komið nákvæmlega úr þessu tiltekna húsi. Þá viðurkenndi Botha ýmis mis- tök lögreglu á vettvangi, þar á meðal að verjendur hefðu fundið notað skothylki í salernisskál sem rannsóknarlögreglunni sást yfir. Botha hafði einnig fullyrt að ólög- legir sterar og nálar hefðu fundist á heimili Pistorius, en átti engin andmæli þegar verjendur fullyrtu að þetta hefði verið löglegt jurtalyf. Pistorius segist hafa staðið í þeirri trú að hann væri að skjóta á innbrotsþjóf inni á salerni íbúðar- innar. Saksóknari segir að það sé ekki nokkur möguleiki á að Pistorius hafi haldið að Steenkamp væri sof- andi í rúmi þeirra. - gb Rannsóknarlögreglan átti í erfiðleikum með að svara spurningum verjanda Pistorius: Útgáfa lögreglunnar reyndist þokukennd OSCAR PISTORIUS Í dag tekur dómari afstöðu til þess hvort Pistorius verði látinn laus gegn tryggingu. NORDICPHOTOS/AFP FASTEIGNIR Sveitarstjórn Djúpa- vogs segir kaup ríkisins á óðals- jörðinni Teigarhorn mikið fagnaðar efni. Þau stuðli að enn frekari verndun náttúru- og menningarminja á svæðinu og að vatnstökusvæði þéttbýlisins á Djúpavogi sé tryggt. „Þá má leiða líkur að því að kaupin muni styrkja svæðið í heild mjög mikið til framtíðar litið er varðar ferðaþjónustu- og menningartengda starfsemi,“ segir sveitarstjórnin sem kveður sveitarfélagið reiðubúið að annast umsjón Teigarhorns. „Þakka skal öllum sem höfðu aðkomu að frá- gangi þessa máls, ekki síst fyrr- verandi óðalserfingjum.“ - gar Kaup ríkisins á Teigarhorni: Styrkir svæðið til framtíðar DANMÖRK Frjósemi Dana fer sífellt minnkandi og er nú svo komið að fæðingar duga ekki til þess að viðhalda fólksfjölda í landinu. Í frétt í Politiken segir að tæp- lega 58 þúsund börn hafi fæðst í Danmörku í fyrra, sem er það minnsta í áraraðir. Í samanburði fæddust 65.000 börn árið 2008. Fæðingatíðni er nú komin niður í 1,7 börn á fjölskyldu og fimmti hver Dani er barnlaus. Skýringarnar gætu legið í því að sæðisgæði danskra karlmanna hafa farið dalandi síðustu ár auk þess sem konur eignast börn mun síðar á lífsleiðinni en áður. - þj Danir uggandi yfir frjósemi: Fæðingum fer sífellt fækkandi BARNALÁN Danir fjölga sér ekki nógu mikið til að viðhalda fólksfjölda. BANDARÍKIN, AP Jesse Jackson yngri hefur játað að hafa notað 750 þúsund dali úr kosningasjóð fyrir sjálfan sig og á yfir höfði sér nærri fimm ára fangelsi. „Ég er sekur,“ sagði hann fyrir rétti í gær. Hann sagðist ekki sjá ástæðu til að eyða fé skatt- borgara í erfið réttarhöld. Jackson var þingmaður full- trúadeildar Bandaríkjaþings frá 1995 til 2012, en hefur síðan í júní tvisvar verið lagður inn á sjúkra- hús vegna geðhvarfasjúkdóms. Faðir hans er presturinn alnafni hans, sem þekktur er fyrir baráttu sína fyrir réttindum þeldökkra. - gb Jesse Jackson játar: Tók sér fé úr kosningasjóði STJÓRNMÁL Stofna flokk um hagsmuni landsbyggðarfólks Stofnfundur nýs stjórnmálaflokks, Landsbyggðarflokksins, verður haldinn laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Fundarstaðurinn verður ekki einn, heldur munu nokkrir staðir á lands- byggðinni tengjast saman yfir netið. Hugmyndin er sú að fólk geti tekið jafnan þátt í flokksstarfinu, sama hvar það býr á landinu. Flokkurinn mun setja málefni landsbyggðarinnar í for- gang og stefnir að því að bjóða fram til næstu alþingiskosninga í landsbyggðar- kjördæmunum þremur. ÆTLAR ÞÚ Á SKÍÐI UM HELGINA? 233,439 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,30 128,92 196,48 197,44 171,87 172,83 23,035 23,169 23,171 23,307 20,383 20,503 1,3727 1,3807 195,73 196,89 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 20.02.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is LEIÐRÉTT Á forsíðu blaðsins í gær var málvilla. Þar stóð: „Villur í kven-Eddustyttunum“ í staðinn fyrir Villur á kven-Eddustytt- unum. Beðist er velvirðingar á þessu. SKIPULAGSMÁL Kirkjustræti verður að mestu leyti göngugata sem verð- ur með rafrænni umferðarstýringu, samkvæmt breytingu á deiliskipu- lagi Landsímareitsins svokallaða. Þá verður nýbygging sem reist verð- ur við strætið látin ríma betur við gömlu húsin sem Alþingi hefur látið gera upp þar. Deiliskipulagstillagan var kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Að sögn Páls Gunnlaugssonar, arkitekts hjá ASK arkitektum, sem unnu samkeppni um skipulag reits- ins í fyrra, verður rafræn umferðar- stýring sem hægt verður til dæmis hægt að tímastýra. „Það verður í það minnsta hægt að loka Kirkju- stræti fyrir umferð og gera göt- una þannig að göngugötu aðallega. Þannig verður því haldið að byggja alveg út í gangstétt og þétta götu- rýmið þarna. Svo látum við húsið tala við gömlu húsin við götuna.“ Í hönnunarsamkeppni borgar- innar í fyrra var Ingólfstorg hluti af skipulagssvæðinu. Páll segir að þegar ákveðið hafi verið að halda áfram með vinnuna eftir keppn- ina hafi verið ákveðið að takmarka svæðið og taka Ingólfstorg út. Því verður ekkert byggt þar í þess- ari uppbyggingu. Þetta er stærsta breytingin. „Nasa er náttúrlega rifið, en það er sett sem kvöð í skipulagi að það verði byggður fjölnota salur í svip- aðri mynd og Nasa-salurinn er í dag. Hliðarsvalir verða í gólfhæð að Vallarstrætinu, þannig að það verður hægt að opna út og það verða gluggar út á Vallarstrætið. Þannig verði hægt að nýta salinn betur og menn fá ekki blinda hlið að Vallar- stræti.“ Sem fyrr er gert ráð fyrir því að Landsímahúsið svokallaða verði hækkað lítillega. Þakinu verður lyft og settir verða kvistir og stórar svalir munu vísa að Kirkjustræti, Austurvelli og Víkurgarði, en garð- inum er ætlað aukið vægi og mun fá hverfisvernd. Ef deiliskipulagið fær framgang innan borgarkerfisins nú gætu framkvæmdir á svæðinu hafist í haust. Tillagan var kynnt í ráðhús- inu í gær og verður þar til sýnis næstu tvær vikurnar. Hún verður einnig til sýnis í húsnæði borgar- innar í Borgartúni og á heimasíðu hennar. Frestur til athugasemda er einnig til 6. mars. thorunn@frettabladid.is Kirkjustrætið verði að mestu göngugata Kirkjustræti verður umferðarstýrt samkvæmt breytingu á deiliskipulagi Land- símareitsins. Nýtt hús sem snýr að götunni verður látið kallast betur á við gömlu húsin þar. Ingólfstorg er ekki með í breyttu skipulagi, sem var kynnt í gær. NÝJA TILLAGAN Hér má sjá nýju tillöguna að skipu- lagi Landsíma- reitsins. Húsunum við Vallarstræti og Kirkjustræti hefur verið breytt og gert er ráð fyrir rúmlega metra hækkun á Land- símahúsinu. MYND/ASK ARKITEKTAR Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur 6-10 m/s en 10-16 m/s V-til. HLÝTT MIÐAÐ VIÐ ÁRSTÍMA Það eru litlar breytingar í veðrinu næstu daga. Áfram verða suð- og suðaustlægar áttir ríkjandi með þungbúnu veðri og vætu sunnan- og vestanlands en bjartara veðri norðan- og austanlands. Áfram fremur hlýtt í veðri. 5° 7 m/s 6° 11 m/s 7° 9 m/s 9° 13 m/s Á morgun 3-8 m/s, hvassara allra vestast. Gildistími korta er um hádegi 7° 5° 6° 3° 4° Alicante Aþena Basel 20° 13° 2° Berlín Billund Frankfurt -1° -1° 1° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn -2° -1° -1° Las Palmas London Mallorca 21° 3° 16° New York Orlando Ósló 2° 25° -5° París San Francisco Stokkhólmur 3° 14° -3° 5° 5 m/s 6° 6 m/s 6° 4 m/s 5° 3 m/s 5° 2 m/s 7° 6 m/s 2° 8 m/s 7° 6° 6° 6° 5°
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.