Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 6
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hver mun líklega leika aðalhlut- verkið í næstu mynd Baltasars Kor- máks? 2. Hvaða ríki hefur nú sótt um aðild að evrusvæðinu? 3. Í hvaða sæti er Gunnar Nelson á styrkleikalista í veltivigt í MMA? SVÖR: 1. Christian Bale 2. Lettland 3. 20. sæti STJÓRNMÁL Hassstaðir í Denver í Bandaríkjunum eru dæmi um það sem hægt væri að láta sér detta í hug í skapandi borg, sagði Jón Gnarr borgarstjóri í umræðum um aðalskipulag Reykjavíkur í borgar- stjórn á þriðjudag. Jón sagði að í Denver hefði hass verið lögleitt í fyrra á læknis- fræðilegum forsendum. „Það gerðist bara á nokkrum mánuðum að það voru komnir fleiri svona hasssölustaðir heldur en eru Star- bucks,“ sagði borgarstjórinn og vísaði í fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes. „Það var mjög athyglisvert, og ég er ekki að segja að við ættum að gera það sama. En það sem hefur gerst [...] með þessu er að þetta hefur skapað gríðarlega mikil atvinnutækifæri sem voru ekki til staðar áður.“ Þá sagði Jón þetta vera því- líka „lyftistöng“ fyrir Denver að bandarísk stjórnvöld væru hik- andi við eða þorðu ekki að skipta sér af málinu því allir væru svo gríðarlega ánægðir. „Þarna hefur bara verið tekin einhver hugrökk ákvörðun og menn bara látið slag standa. Hvort sem það er rétt eða rangt, menn mega síðan deila um það, en ég tek þetta bara sem dæmi,“ sagði borgarstjóri. Jón hefur verið gagnrýndur fyrir þessi orð, meðal annars á þeim grundvelli að þau gangi gegn forvarnarstefnu Reykjavíkur- borgar í fíkniefnamálum. Ekki fékkst samtal við borgarstjóra vegna þessa máls í gær. - gar Borgarstjóri segir hassstaði í Denver dæmi um hugmyndir í skapandi borg: Tekin var „hugrökk ákvörðun“ JÓN GNARR Ummæli borgarstjóra um hassstaði sem lyftistöng í atvinnulífinu í Denver eru gagnrýnd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Save the Children á Íslandi HEILBRIGÐISMÁL Staða mála varðandi ólöglega notkun og merkingu hrossakjöts í kjötvörum verður könnuð hér sérstaklega að beiðni ESA, eftirlits- stofnunar EFTA. Fundað verður vegna málsins í dag í ráðgjafanefnd EFTA um dýraheilbrigðismál (EFTA Veterinary and Phystosanitary Committee). „Á fundinum mun ESA ræða stöðu mála í Noregi og Íslandi og leggja fram samræmda áætlun til að kanna hvort ólögleg starfsemi og vörusvik hafi átt sér stað,“ segir í tilkynningu sem eftirlitsstofnunin sendi frá sér í gær. „Vinna samkvæmt áætluninni tekur einn mánuð en verður hugsanlega framlengd um tvo mánuði.“ Kanna á hvort ómerkt hrossakjöt sé að finna í mat- vörum, en sú rannsókn snýr fyrst og fremst að versl- unum og hvort vörur í neytendaumbúðum, markaðs- settar sem nautakjöt, innihaldi hrossakjöt. Þá á að huga að því hvort finna megi lyfjaleifar fenýlbúta- sóns, sem er bólgueyðandi dýralyf, í hrossakjöti sem ætlað er til manneldis. „Til rannsókna verður tekið eitt sýni fyrir hver 50 tonn af hrossakjöti sem ætlað er til manneldis.“ Sambærileg skoðun fer fram í Noregi. Löndin gera ESA síðan grein fyrir niðurstöðunum. - óká ESA fer fram á rannsókn á kjötvörum og lyfjaleit í hrossakjöti til manneldis: Leita að fenýlbútasóni í kjöti HROSS Niðurstöður rannsókna á hrossakjöti hér og í Noregi verða aðgengilegar yfirvöldum EES-landa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gjaldmiðilsmál eru talin líkleg- ust til að vera vettvangur átaka á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í dag í Laugardalshöll í Reykjavík. Sátt virðist um að efna beri til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópu- sambandið (ESB). Í tillögum efnahagsnefndar Sjálfstæðisflokksins til landsfund- ar er því haldið fram að króna í höftum geti ekki verið framtíðar- gjaldmiðill þjóðarinnar. Í tillög- unum er sagt að til að losna við gjaldeyrishöft þurfi að hefjast handa við undirbúning um að taka alþjóðlega mynt í notkun. Tillögurnar hafa valdið ákveðn- um styr innan flokksins og mun hafa verið þrýst á nefndina að breyta þeim. Þykir sumum innan flokksins sem afstaða nefndar- innar í að lýsa frati á krónuna sé fullbrött. Þannig er í undirbún- ingi að minnsta kosti ein breyt- ingatillaga vegna þessa. Þann- ig segist Vilhjálmur Bjarnason, lektor og fjárfestir, sem auk hag- fræðinganna Oddgeirs Ottesen og Ólafs Klemens sonar leggur fram breytingatillögu, biðja menn um að gæta hófs í því að tala um Kanada dollar og aðrar myntir. „Menn verða að minnsta kosti að rökstyðja það aðeins betur fyrir mig,“ segir hann, en telur þó tæp- ast að þetta verði mikið deiluefni. Heimildir blaðsins herma hins vegar að Evrópumál séu ólíkleg til að verða ásteytingarsteinn á landsfundinum. Bæði fylgis- menn og andstæðingar aðildarvið- ræðna geti sætt sig við að viðræð- urnar verði lagðar til hliðar þar til þjóðar atkvæðagreiðsla hefur farið fram um framhald þeirra. Helst að tekist verði á um tíma- setningu slíkrar atkvæðagreiðslu. Þannig munu stuðningsmenn við- ræðna sjá á lofti jákvæð teikn í Evrópu sem styðja muni málflutn- ing þeirra þegar fram í sækir, svo sem breytingar á sjávarútvegs- stefnu, jákvæðar breytingar sem Bretar standi fyrir og viðræður um fríverslunarsamning Evrópu- sambandsins og Bandaríkjanna. Þá er talið mögulegt að tekist verði á um skipulagsreglur flokks- ins, sem breytt var nokkuð á síð- asta landsfundi. Breytingarnar sneru að því hvernig skipað væri í nefndir. Það önnuðust áður stofn- anir flokksins, en nú er kosið í nefndir á landsfundi og skiptar skoðanir um hvernig til hafi tek- ist með breytingunni. Fyrir fram er ekki búist við átökum um forystu flokksins. Ekki er vitað til þess að nokk- ur ætli að bjóða sig fram á móti sitjandi formanni. Hanna Birna Kristjánsdóttir býður sig fram til varaformanns. Dæmi eru hins vegar um frá fyrri tíð að framboð hafi komið fram á landsfundinum sjálfum og því aldrei að vita hvað verður. olikr@frettabladid.is Krónan líklegust til að verða að bitbeini Fertugasti og fyrsti landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag og stendur í fjóra daga. Fyrir fram er líklegast talið að gjaldmiðilsmál verði málefnið sem hvað harðast verði tekist á um. Ekki er vitað til þess að formaðurinn fái mótframboð. Á LANDSFUNDI Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í pontu á lands- fundi árið 2011. Árið áður bauð Pétur Blöndal sig óvænt fram gegn sitjandi formanni. Í fyrra laut svo Hanna Birna Kristjándóttir í lægra haldi fyrir Bjarna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FRÉTTASKÝRING Um hvað verður bitist á landsfundi sjálfstæðismanna? VEISTU SVARIÐ? LAGASTOFNUN Jóhannes Karl Sveinsson hrl. hjá Landslögum hf. reifar málflutning og niðurstöðu í Icesave málinu. Morgunverðarfundur föstudaginn 22. febrúar kl. 8 - 9:30 á Hótel Sögu Radisson Blu. (Katla á annarri hæð).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.