Fréttablaðið - 21.02.2013, Side 8

Fréttablaðið - 21.02.2013, Side 8
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 DACIA DUSTER – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla: 5,1 l/100 km* SKYNSAMLEG KAUP Hrikalega gott ver ð ELDSNEYTI MINNA SHIFT_ NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla: 4,6 l/100 km* VINSÆLASTI SPORTJEPPINN Samkv. Umferðars tofu 2012 SUBARU XV – 4x4 Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla: 6,6 l/100 km* SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn ben sínsparnaður NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR ks Eyðsla: 3,4 l/100 km* RENAULT CLIO Expression ECO 1,5 dísil, beinskiptur. Verð 2.890 þús. kr. / S Í / ð ð ð b l d ð k E M M / S ÍA / N M 5 6 6 9 0 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a k E N N GLÆSILEGUR AUKABÚNAÐUR M.a. íslenskur leið sögubúnaður STJÓRNSÝSLA Landsnet sendi í gær beiðni til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra þess efnis að tiltekin landsvæði á Reykjanesi verði tekin eignarnámi. Viðkomandi land eigendur hafa staðið í vegi fyrir því að framkvæmdir hefjist við nýja háspennulínu sem Landsnet telur afar brýnt að verði reist. „Þetta er ferli sem hefur staðið yfir í um það bil sjö ár. Við teljum að við séum komin að endalokum þess að geta tekist á við þetta mál með þeim mögu- leikum sem við höfum stjórn á,“ sagði Þórður Guð- mundsson, forstjóri Landsnets, á blaðamannafundi vegna málsins í gær. Á fundinum kom fram að Landsnet telur brýnt hagsmunamál fyrir íbúa og atvinnulíf á Reykja- nesi að línan verði reist enda sé mikið álag á eldri línu sem sé þar að auki eina tenging Suðurnesja við meginflutningskerfi Landsnets. Þá telur fyrir- tækið sig ekki geta tryggt öryggi og rekstur flutn- ingskerfis raforku á Reykjanesi án línunnar. Umhverfisáhrif af ráðgerðum framkvæmdum við línuna hafa þegar verið metin og þá er fram- kvæmdin á aðalskipulagi allra sveitarfélaga á svæðinu. Til stendur að línan liggi um eignarlönd tuttugu jarða. Hafa samningar tekist við eigend- ur ellefu jarða auk þess sem viðræður standa enn yfir við eigendur tveggja til viðbótar. Landsnet telur sig hins vegar ekki geta náð samningum við eigendur þeirra jarða sem út af standa. Ágreiningur við þá snúi ekki að verði fyrir jarðskikana heldur sé hluti þeirra ósáttur við línu- stæðið og annar hluti við að línan sé ekki lögð í jörðu. Þórður segir að Landsnet geti ekki tekið ákvörð- un um að framvegis verði háspennulínur lagðar í jörðu, slíka ákvörðun þurfi stjórnvöld að taka. Þá segir hann að enda þótt framkvæmdin kunni að rekast á við hagsmuni landeigenda beri að heim- ila eignarnámið í þágu almannahagsmuna. Loks tekur Þórður fram að háspennulínan tengist ekki hugmyndum um stóriðjuframkvæmdir á Reykja- nesi. Verði jarðirnar sem um ræðir teknar eignarnámi er áætlað að framkvæmd- ir hefjist í sumar. Sá tíma- rammi gerir hins vegar ráð fyrir því að skamman tími taki að bregðast við eignarnámsbeiðni Lands- nets. Til stendur að háspennu- línan muni að mestu leyti fylgja eldri háspennu- línu sem liggur á lengst- um kafla rétt sunnan við Reykjanesbrautina. magnusl@frettabladid.is Krefjast eignarnáms vegna háspennulínu Landsnet hefur óskað eftir því að atvinnuvegaráðherra heimili eignarnám á jörðum á Reykjanesi svo reisa megi nýja háspennulínu. Landsnet hefur gefist upp á því að ná samningum við nokkra landeigendur en telur framkvæmdina brýna. LANDSNETI Í GÆR Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets (til hægri), kynnti beiðni fyrirtækisins á blaðamannafundi í höfuðstöðvum fyrirtækisins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Landsnet fer fram á að ráðherra gefi heimild fyrir eignarnámi. Árið 2005 heimilaði iðnaðarráðuneytið að þrjár jarðir á Héraði yrðu teknar eignarnámi vegna lagningar Fljótsdalslína 3 og 4 en um þær fer rafmagn frá Kárahnjúkavirkjun til álversins í Reyðarfirði. Þá hafði Landsnet að vísu farið fram á eignarnám á fimm jörðum en beiðninni var synjað vegna tveggja þeirra þar sem ekki þótt sýnt að samningar hefðu verið fullreyndir. Náðust samningar í kjölfarið. Þá samþykkti iðnaðarráðuneytið sömuleiðis eignarnám á jörð þegar reisa átti háspennulínu milli Nesjavalla og Reykjavíkur. Fordæmi fyrir eignarnámi SAMFÉLAGSMÁL Búist er við því að frumvarp sem heimilar staðgöngu- mæðrun í velgjörðarskyni verði til- búið innan nokkurra vikna. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður Guðbjarts Hannes- sonar velferðarráðherra, segir ljóst að ekkert verði úr málinu á þessu þingi. Vinna starfshópsins sem semur frumvarpið mun þó halda áfram, frumvarpið mun koma inn í velferðarráðuneytið þegar það er tilbúið og mun bíða meðferðar næsta þings eftir kosningar. Kristrún Heimis dóttir, lektor í lög- fræði, Hrefna Friðriks- dót t i r, lek t- or í lögfræði, og Sigurður Kristinsson, siðfræðingur og forseti hug- og félagsvís- indasviðs Háskólans á Akureyri, skipa starfshópinn sem undan- farna mánuði hefur unnið að gerð frumvarpsins. Alþingi samþykkti í janúar í fyrra þingsályktunar- tillögu um skipan starfshópsins, sem fékk það hlutverk að semja frumvarp sem heimilar staðgöngu- mæðrun í velgjörðarskyni. Leggja átti frumvarpið fyrir eins fljótt og hægt væri. Drög að ályktun fyrir landsfund Vinstri grænna, sem haldinn verð- ur um helgina, fjallar um málið. Þar er lagt til að flokkurinn legg- ist gegn staðgöngumæðrun. - þeb Tilbúið frumvarp fer inn í ráðuneytið og bíður næsta kjörtímabils: Engin staðganga á þessu þingi KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.