Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 18

Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 18
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS Skemmtileg skýrsla Ársskýrsla knattspyrnudeildar Grindavíkur er leiftrandi lesning og fróðleg. Þar má meðal annars finna einhvers lags afbötun sitjandi stjórnar fyrir þá ákvörðun að hafa ráðið Guðjón Þórðarson sem þjálfara, eins og frægt er orðið. Svo er þar líka skemmtisaga af fjáröflunarferð til höfuð borgarinnar, þar sem helstu útgerðarmenn bæjarins voru í broddi fylkingar. Það er full ástæða til að birta hana hér á eftir í heild sinni: Þessi andlit „Í nóvember 2011 var farið í leiðangur til Reykjavík til að laga fjárhag deildarinnar með þeim Eiríki Tómassyni [Þorbirni], Hermanni Ólafssyni [Stakkavík] og Pétri Pálssyni [Vísi]. Það skilaði um 20 milljónum í tveimur ferðum til þjónustu aðila í sjávarútvegi. Þökkum við þeim heiðurs- mönnum sérstak lega fyrir þeirra framlag. Það má með sanni segja að þessar ferðir hafi verið árangursríkar og ekki síður skemmtilegar, það tók ekki nema örfáar mínútur á hverjum stað að ræða erindið og fá það sam- þykkt. Það þurfti ekki meira til en að sýna þessi andlit.“ Hvað höfum við gert ykkur? Einhverra hluta vegna rifjast upp auglýsingar sem birtust í fjölmiðlum í fyrra, þegar kvótafrumvörp ríkis- stjórnarinnar voru til umræðu. „Hvað höfum við gert ykkur?“ stóð stórum stöfum yfir mynd af fjölskyldu sjómanns. „Er það stefna ríkisstjórnarinnar að ganga af sjómönnum og fjölskyldum þeirra dauðum?“ var haldið áfram. Undir þetta kvittaði Sjómanna- og vélstjór- afélag Grindavíkur. Ef í harð- bakkann slær ættu þeir að geta sent þá fóstbræður Eirík, Hermann og Pétur af stað með söfnunarbaukinn. stigur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Framfærsla í ellinni er sennilega ekki efst í huga ungs fólks sem leggur út á vinnumarkaðinn, stofnar fjölskyldu og kemur sér fyrir á eigin spýtur. Á náms- árunum snýst lífið um að komast áfram milli anna, sinna félagslífinu og hafa í sig og á. Síðan taka oftast við ár þar sem markmiðið er að komast milli mánaða, ná endum saman og skutlast milli staða með sjálfan sig og aðra. Þannig geta liðið nokkur ár áður en ljóst verður að leiðin liggur sífellt nær miðaldra tilveru hins ráðsetta. Lífeyrissjóðir eru fyrst og fremst áhugamál á seinni hluta ævinnar, þegar styttist í að framfærslan verði sótt til þeirra og starfslok verða annað og meira en fjarlæg hugmynd. Vinnandi fólk á öllum aldri tekur þó þátt í uppbyggingu sjóðanna, enda greiðslur í þá lögbundin skylda frá fyrsta starfsdegi. Hafi einhvern tímann verið mikilvægt að ungt fólk láti til sín taka í lífeyris- málum þá er það núna, enda hefur fram- tíðaruppbygging þeirra verið til umræðu síðustu ár. Í sjálfu orðinu „framtíðarkerfi“ er aug- ljós sú staðreynd að uppbygging þess er fyrst og fremst málefni ungs fólks sem verður á vinnumarkaði í framtíðinni. Kerfisbreyting á kjörum þeirra sem þegar eru langt komnir með uppbyggingu lífeyris síns er ólíkleg, enda væri slík framkvæmd afar ómálefnaleg. Nýtt kerfi getur þannig fyrst og fremst beinst að sjóðfélögum framtíðarinnar. En hverjir eiga að stýra breytingunum? Mikil vægt er að ungt fólk kynni sér líf- eyrismál og móti sér skoðun um hvernig kerfi það vill sjá. Meðal spurninga sem vert er að athuga er hversu stór hluti tekna eigi að renna til uppbyggingar ellilífeyris. Og hvernig á sparnaðurinn að vera saman settur; hversu stór hluti ætti að renna til sam- tryggingar og hvað vill fólk geta lagt til hliðar með öðrum hætti? Að sama skapi er mikilvægt að íhuga hversu stór hluti greiðslur úr lífeyrissjóð- um ættu að vera af framfærslu fólks í ell- inni og hvaða aðrar tegundir sparnaðar ættu að vera hluti af þeirri heild. Ég hvet ungt fólk eindregið til að leiða hugann að skipulagi lífeyrismála og ef þú, lesandi góður, ert kominn yfir miðjan aldur (sem allar líkur eru á miðað við að þessi grein fjallar um lífeyrismál) vil ég hvetja þig til að hjálpa mér að ná eyrum þeirra sem yngri eru. Ungt fólk og lífeyrismál LÍFEYRISSJÓÐIR Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM ➜ Ég hvet ungt fólk eindregið til að leiða hugann að skipulagi líf- eyrismála.... K atrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra greindi frá því á Alþingi í fyrradag að starfshópur ynni nú að því að birta fjárhagsupplýsingar ríkisins á netinu. Ætlunin væri að birta upplýsingar um tekjur og gjöld mánaðarlega. Hópurinn ætti enn fremur að gera tillögur um hvernig opna mætti sem mest af gögnum um það hvernig skattfé er varið. Í pólitíkinni er augljóslega einhver hreyfing í þá átt að galopna fyrir aðgang skattgreiðenda að upplýsingum um í hvað peningarn- ir þeirra eru notaðir. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti nýlega tillögu sjálfstæðismanna um að gera allar kostnaðargreiðslur borgarinnar almenningi aðgengilegar á netinu. Lögum samkvæmt á almenn- ingur að hafa aðgang að upp- lýsingum stjórnsýslunnar en þarf að biðja sérstaklega um þær og opinberar stofnanir þurfa þá að leggja í talsverða vinnu til að safna þeim saman. Upplýsinga- tæknibyltingin hefur gert þetta vinnulag úrelt. Það á að vera auðvelt – og jafnvel vinnusparandi – að birta upplýsingarnar jafn- óðum á netinu þannig að ekki þurfi að biðja um þær. Það er þó ekki sama hvernig það er gert. Víða um heim hafa verið opnaðar svokallaðar „gegnsæisgáttir“ þar sem opinberar fjárhagsupplýsingar eru birtar. Þar sem bezt hefur tekizt til eru ekki bara birtar hráar upplýsingar, heldur líka samantektir og greiningar og boðið upp á öfluga leitarmöguleika. Þannig getur almenningur leitað í gagnagrunnunum og skoðað til dæmis samninga opinberra aðila um kaup á vörum og þjónustu, hvaða fyrirtæki og ráðgjafar fá greiðslur úr opinberum sjóðum og þar fram eftir götunum. Á góðum vefsíðum af þessu tagi eru líka birt nákvæm yfirlit um útgjöld opinberra stofnana og þau borin saman við sam- þykktar útgjaldaheimildir í fjárlögum. Þannig getur almenn- ingur fylgzt með því hvort einstakar ríkisstofnanir fara fram úr fjárheimildum – sem gerist ítrekað hér á landi og virðist oft koma jafnvel ráðherrunum sem eiga að bera ábyrgð á þeim gríðarlega á óvart. Í Bandaríkjunum og víðar hefur birting upplýsinga af þessu tagi framkallað fjöldann allan af ábendingum frá almenningi, sem hafa stuðlað að því að uppræta spillingu og spara í opinberum rekstri. Katrín Júlíusdóttir nefndi tvö dæmi um opinberar fjárhagsupp- lýsingar, sem oft rata í fréttir vegna fyrirspurna frá þingmönnum eða fjölmiðlum; annars vegar hvernig ráðherrar verja „skúffupen- ingunum“, árlegu ráðstöfunarfé sínu, og hins vegar hversu miklir peningar fari til aðkeyptra ráðgjafastarfa fyrir ráðherra. Þarna sagði hún að ekkert væri að fela og almenningur ætti einfaldlega að geta flett þessum upplýsingum upp. Svo er bara að vona að fjárhagsupplýsingakerfi ríkisins, sem hefur kostað skildinginn, sé nógu þróað til að gera þessar góðu hugmyndir að veruleika. Þegar þingmenn og fjölmiðlar spyrja ráðuneytin um tiltekin útgjöld, tekur stundum furðulangan tíma að svara og viðkvæðið er þá gjarnan að það sé svo mikil vinna að ná upplýsingunum út úr kerfinu. Fjármálaráðherrann segir að endamarkmiðið í opnun fjár- hagsupplýsinga ríkisins sé að „fara eins langt og við getum“. Það er gott markmið. Galopnar upplýsingar um ríkisútgjöldin veita stjórnvöldum og opinberum starfsmönnum hollt aðhald. Í rekstri ríkisins er að sjálfsögðu ekkert að fela. Fjárhagsupplýsingar ríkisins birtar á netinu: Ekkert að fela Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.