Fréttablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 20
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 20
Íslensk stjórnvöld hafa
unnið að því hörðum
höndum síðastliðin ár
að hvetja til nýsköpunar
í atvinnulífinu. Öflug
nýsköpun er forsenda
þess að við getum byggt
hér upp sterkt, kraft-
mikið og gott sam-
félag. Ísland 2020 stefna
stjórnvalda um sókn
fyrir atvinnulíf og sam-
félag leggur áherslu á
að nýsköpun sé ómiss-
andi grunnur fyrir framþróun
atvinnulífsins. Á síðasta ári var
sett fram fjárfestingaráætlun
2013-2015. Í henni er að finna
metnaðarfull markmið þessarar
ríkisstjórnar til að styðja enn
frekar við nýsköpun. Má hér
nefna aukin framlög í tækni-
þróunarsjóð, grænar fjárfest-
ingar, vistvæn innkaup og verk-
efnasjóð fyrir skapandi greinar.
Einn viðamikill geiri gleymist
oft þegar rætt er um mikilvægi
nýsköpunar fyrir samfélagið
en það er opinberi geirinn. Ríki
og sveitarfélög gegna veiga-
miklu hlutverki í atvinnu lífinu
en hjá þeim starfa þúsundir
háskólamenntaðra einstaklinga
við ýmiss konar störf. Sífellt
þarf að bæta og efla þjónustu,
verklag og aðferðir í takt við
kröfur og þarfir samfélagsins á
hverjum tíma. Það krefst hug-
vits og samstarfs við viðskipta-
vini og skjólstæðinga sem leiðir
ósjaldan til nýsköpunar. Ár
hvert kaupa ríki og sveitarfélög
vörur, þjónustu, tæki og fleira
fyrir yfir 100 milljarða króna.
Stór hluti þess fjár rennur til
þróunar og nýsköpunar.
90% stunda nýsköpun
Við höfum þurft að sýna
aðhald í rekstri hins
opinbera. Engu að síður
er markmiðið að veita
sífellt meiri og betri
þjónustu. Við slíkar
aðstæður verður aukin
þörf fyrir nýsköpun á
sem flestum sviðum.
Íslenskar stofnanir og
sveitarfélög hafa mætt
þessum erfiðu aðstæð-
um með nýjum lausnum.
Rannsóknir styðja það en árið
2010 var gerð norræn rannsókn
á þessu viðfangsefni þar sem
fram kom að um 90% opinberra
stofnana á Íslandi stunda
nýsköpun af einhverju tagi, sem
er ívið hærra hlutfall en hjá
hinum Norðurlanda þjóðunum.
Þá vekur athygli niðurstaða
könnunar á viðhorfum forstöðu-
manna ríkisstofnana árið 2011,
sem sýndi að 64% forstöðu-
manna telja sérstaklega mikil-
vægt að öðlast meiri færni í
aðferðum til nýsköpunar í opin-
berum rekstri.
Verkefni varð útflutningsvöru
Í október síðastliðnum voru
nýsköpunarverðlaunin í opin-
berri þjónustu og stjórnsýslu
veitt í annað sinn. Yfir 60 verk-
efni stofnana og sveitarfélaga
voru tilnefnd til verðlaunanna
en árið 2011 voru þau 40 talsins.
Tilgangurinn með þessum verð-
launum er að draga athygli að
nýsköpun og þróunar verkefnum
í starfsemi hins opinbera og
stuðla að frekari nýsköpun í
opinberum rekstri á Íslandi.
Þessi fjöldi tilnefninga segir
okkur að mikil gróska er í starfi
hins opinbera þrátt fyrir erfiðar
aðstæður í efnahags lífinu síðast-
liðin ár. Mörg verkefni sem
þróuð voru hér á landi í sam-
starfi við viðskiptavini, einka-
aðila og fleiri hafa orðið að
útflutningsvöru og fyrirmynd
erlendis. Gott dæmi um slíkt
er Samskiptamiðstöð heyrnar-
lausra og heyrnarskertra sem
hlaut nýsköpunarverðlaunin
árið 2012 fyrir verkefnið Sign-
Wiki. Það verkefni hefur þegar
vakið athygli erlendis og er orðið
útflutningsvara.
Við reiðum okkur öll á þjón-
ustu hins opinbera, hvort sem
það eru menntastofnanir, heil-
brigðisstofnanir eða önnur starf-
semi. Mikilvægt er að þjónust-
an standist nútímakröfur og því
þarf öflugt og áhugasamt fólk til
að starfa hjá hinu opinbera. Það
er mikill metnaður innan hins
opinbera til að gera betur og
því mikilvægt að skapa þannig
umhverfi að stofnanir og sveitar-
félög geti tekið næstu skref með
nýsköpun að leiðarljósi.
Skapandi stofnanir
Það er á ábyrgð foreldra
að styðja við þroska og vel-
ferð barna sinna. Í faðmi
fjölskyldunnar eiga þau
að njóta skjóls og verndar.
Þegar í skóla er komið eiga
þau einnig að fá tækifæri
til að dafna og þroskast á
sínum eigin forsendum. Á
þann hátt eru þau undirbú-
in til að takast á við krefj-
andi verkefni seinna á lífs-
leiðinni.
Það liggur fyrir að uppvaxtar-
skilyrðum sumra barna hér á
landi er ábótavant og þau njóta
ekki þess öryggis sem þau eiga
rétt á. Mörg börn hafa t.d. reynslu
af ofbeldi innan sem utan veggja
heimilisins. Ofbeldi gegn börnum
tekur á sig margar myndir en oft-
ast er um að ræða líkamlegt, and-
legt og kynferðislegt ofbeldi, auk
vanrækslu. Í vaxandi mæli er nú
einnig farið að skilgreina reynslu
barna af átökum á heimilum sínum
sem sérstaka tegund ofbeldis gegn
þeim. Allt of mörg börn segja frá
reynslu sem þessari og umræða
undanfarnar vikur gefur til kynna
að umfang vandans sé meira en við
höfum gert okkur grein fyrir.
112 er líflína margra
Börn sem upplifa ofbeldi þurfa
að eiga sér griðastað þegar von-
brigðin og reiðin blossa yfir vondri
meðferð eða líkamlegu, andlegu
og kynferðislegu ofbeldi. Þá þarf
barnið að hafa möguleika á því að
hafa sjálft samband við einhvern
sem getur og vill hjálpa. Neyðar-
línan 112 hefur á liðnum árum
verið líflína margra, en
þangað hafa landsmenn
getað leitað sér hjálpar
í neyð. Börn geta hringt
þangað í neyð og fullorðnir
með slíka vitneskju geta haft sam-
band við Neyðarlínuna og komið
áhyggjum sínum á framfæri. Öll
slík atvik eru sérstaklega skráð
og upplýsingum skilvirkt komið
áleiðis til viðkomandi barnavernd-
arnefndar.
Ef þörf krefur er brugðist tafar-
laust við en í öðrum til vikum
beðið til næsta dags. Markmiðið
með þessari þjónustu er að gefa
almenningi greiða leið til að koma
áhyggjum sínum um velferð barna
á framfæri. Þannig styður Neyðar-
línan 112 við að brugðist sé við
vanda þeirra á faglegan og skil-
virkan hátt.
Það er sannfæring mín að með
ofangreindri þjónustu Neyðar-
línunnar 112 leggi starfsfólk henn-
ar sitt af mörkum til að standa þétt
vörð um börn og réttindi þeirra.
Þannig geta börn og fullorðnir
óhikað haft samband og komið á
framfæri áhyggjum sínum um vel-
ferð barna. Neyðarlínan 112 við-
heldur þannig því hlutverki sínu að
vera mikilvægur hlekkur í grunn-
þjónustu við landsmenn í neyð á
öllum aldursskeiðum.
Neyðarlínan 112
fyrir börn í vanda
➜ Þannig styður
Neyðarlínan 112 við
að brugðist sé við
vanda þeirra á fagleg-
an og skilvirkan hátt.
NÝSKÖPUN
Katrín
Júlíusdóttir
fj ármála- og efna-
hagsráðherra
➜ Einn viðamikill geiri
gleymist oft þegar rætt er
um mikilvægi nýsköpunar
fyrir samfélagið en það er
opinberi geirinn. Ríki og
sveitarfélög gegna veiga-
miklu hlutverki í atvinnu-
lífi nu en hjá þeim starfa
þúsundir háskólamenntaðra
einstaklinga við ýmis konar
störf.
SAMFÉLAG
Geir
Gunnlaugsson
landlæknir
K
O
R
T
E
R
.
I
S