Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 24
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24
Mikil eyðilegging kvótans
er búin að vera frá upphafi
og ekki skrítið að marg-
ir útgerðarmenn trúðu
því ekki að þessari enda-
leysu yrði haldið áfram og
tóku þess vegna ekki þátt
í að sölsa til sín kvóta. En
þeir, ekki frekar en þjóðin,
skildu ekki hvernig svika-
myllu banka og nokkurra
útgerða var háttað. Hvern-
ig lánuð voru út á væntan-
leg veð í kvótunum lán sem
stóðu jafnvel seljandanum ekki til
boða. ÚA-hneykslið til dæmis.
Skaðinn varð strax ljós
þegar þær útgerðir sem
staðið höfðu fyrir kvóta-
breytingunni byrjuðu að
sanka að sér allt of miklum
þorskkvótum „að sunnan“
og notuðu þá til að liggja
í smáfiski í nýopnuðum
hólfum fyrir Norðurlandi
allan veturinn. Það tók tvö
ár að eyðileggja friðunina
sem átti sér stað í Sóknar-
markinu og fjórum árum
seinna, 1990, sást ekki
þorksur fyrir Suðurlandi og veið-
in á þorski komin í 90.000 tonna
sögulegt lágmark. Þarna var loks-
ins brugðið við og hólfinu lokað
og hert á smáfiskadrápi þessara
skipa. En því miður í stað þess að
afnema kvótakerfið var hert á því
með afnámi frjálsra handfæra-
veiða og sett frjálst framsal. Við
þetta fór af stað versta þróun sem
hugsast gat fyrir íslenska sjómenn
og þjóðina því að þarna hætti
áherslan á hámörkun afraksturs-
ins af veiðunum en í staðinn kom
hámörkun fárra valinna einstak-
linga á fjármögnun frá bönkunum.
Nú var komin ríkisstjórn sem var
til í að dansa hættulegan línudans
í þeim eina tilgangi að hygla mönn-
um í útgerð með „leyfi“ til að nota
aflaheimildir „eign þjóðarinnar“
sem eiginfé í viðskiptum við bank-
ana. Þessi viðskipti stjórnuðu nú á
þessum tíma öllu varðandi úthlut-
anir aflaheimilda sem ekki máttu
verða meiri en svo að „viðunandi“
skortur væri á aflaheimildum svo
verð á „öllum“ kvóta væri hátt og
stöðugt.
1998 til 2007
Nú fór í gang hálfgerð skálm-
öld þar sem hreint og klárt var
verið að reyna að fækka mönnum
í útgerð. Þetta gekk svo langt að
jafnvel gjaldfelldu bankar lán
smærri útgerða til að þvinga þær
til að láta þorskkvóta af hendi.
Þetta hafði gífurleg áhrif á litlar
útgerðir þar sem menn áttu litla
þorskkvóta sem þeir notuðu til að
fiska aukategundir.
Þöggun
En hvernig gátu svona alvarlegir
atburðir átt sér stað? Fyrir utan að
æðstu stjórnendur landsins stóðu
vörð um þetta ferli og hvöttu til
þess þá var í gangi þöggun þar
sem ráðist var á alla þá í sjávarút-
vegi sem voguðu sér að segja sann-
leikann um það sem átti sér stað
og bentu á dæmin þar sem miður
fóru. Þarna voru sannarlega unnin
mannréttindabrot á fólki og fjöl-
skyldum sem við skulum vona að
verði rannsökuð fyrr en seinna og
tekin til dóms.
Veiðar hafa alltaf verið sveiflu-
kenndar á Íslandsmiðum, sem ætti
að vera nóg ástæða til að menn
skilji að kvótastýring er með öllu
gagnslaus til að ná því markmiði
að hámarka afrakstur greinar-
innar. Ætla má að á síðustu 20
árum höfum við vanmetið veiði-
getu þorskstofnsins fimm sinnum
og mikið af fiski synt hjá garði og
ekki nýst þjóðinni í útflutnings-
verðmæti eingöngu til að tryggja
hátt og stöðugt verð á kvótanum í
viðskiptum útgerða og banka. Að
sjálfsögðu er þetta búið að skaða
þjóðarbúið verulega og er skað-
inn enn að birtast okkur núna í
lítilli markaðshlutdeild sem gerir
okkur erfitt fyrir í markaðsstríði
við Norðmenn og Rússa nú þegar
þeir eru búnir að átta sig á vit-
leysunni sem felst í því að reyna
að „geyma“ óveiddan fisk í sjó.
Fullvaxinn fisk á að veiða hvar
sem í hann næst því þú tekur ekki
fisk á morgun sem þú getur veitt í
dag. Þetta er staðreynd sem allir
reyndir skipstjórar þekkja vel.
Gegn þjóðarvilja
Nú er svo komið fyrir okkur að
við horfum upp á nokkra útgerðar-
aðila ætla sér eignaraðild að nýt-
ingarrétti fiskimiðanna í trássi
við fiskveiðistjórnunarlögin og
gegn skýlausum vilja þjóðarinn-
ar. Það verður að segjast að við
erum vitni að frekju og óbilgirni
af hálfu sumra þessara manna og
lygaáróðurinn sem þeir beita segir
okkur að græðgin virðist ekki eiga
sér nein takmörk hjá þessu fólki
sem búið er að þvinga öll hags-
munasamtök og félög innan sjávar-
útvegs til að standa alfarið að baki
þeim í baráttu þeirra fyrir þess-
ari ólöglegu eignaraðild. Síðan, því
miður, sjáum við alla fjóra gömlu
stjórnmálaflokka landsins standa
vörð um þetta kerfi og eru þeir til
í að fara gegn þjóðinni þrátt fyrir
að þjóðin hafi talað skýrt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Eins og kom fram í fyrri grein
minni gekk Sóknarmarkið mjög
vel og var sátt um það. Þetta kerfi
er hægt að taka upp með engum
fyrirvara og bæta við það skil-
yrði um að allur fiskur verði seld-
ur á mörkuðum. Með þessu fyrir-
komulagi fiskveiðistjórnunar
komum við í veg fyrir óréttlæti,
brottkast og löndun framhjá vigt.
Við eyðum einokun að veiðum og
vinnslu um leið og við hámörkum
afrakstur miðanna. Okkur, sem
trúum á frelsi einstaklingsins, á
ekki dyljast að þetta yrði vítamín-
sprauta í íslenskt atvinnulíf sem
mun skapa hringrás fjármagns
sem síðan gagnast fyrirtækjum á
innlendum markaði og í ríkisjóði.
Hagur fólksins og fyrirtækjanna
á að ganga fyrir græðgi fárra, það
heitir lýðræði. Eyðum hagsmuna-
gæslu fjórflokksins, kjósum nýju
framboðin, kjósum DÖGUN.
Eyðilegging kvótans
SJÁVARÚT-
VEGUR
Ólafur Örn
Jónsson
togaraskipstjóri
➜ Fullvaxinn fi sk á að veiða
hvar sem í hann næst því þú
tekur ekki fi sk á morgun sem
þú getur veitt í dag. Þetta er
staðreynd sem allir reyndir
skipstjórar þekkja vel.