Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 24
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24 Mikil eyðilegging kvótans er búin að vera frá upphafi og ekki skrítið að marg- ir útgerðarmenn trúðu því ekki að þessari enda- leysu yrði haldið áfram og tóku þess vegna ekki þátt í að sölsa til sín kvóta. En þeir, ekki frekar en þjóðin, skildu ekki hvernig svika- myllu banka og nokkurra útgerða var háttað. Hvern- ig lánuð voru út á væntan- leg veð í kvótunum lán sem stóðu jafnvel seljandanum ekki til boða. ÚA-hneykslið til dæmis. Skaðinn varð strax ljós þegar þær útgerðir sem staðið höfðu fyrir kvóta- breytingunni byrjuðu að sanka að sér allt of miklum þorskkvótum „að sunnan“ og notuðu þá til að liggja í smáfiski í nýopnuðum hólfum fyrir Norðurlandi allan veturinn. Það tók tvö ár að eyðileggja friðunina sem átti sér stað í Sóknar- markinu og fjórum árum seinna, 1990, sást ekki þorksur fyrir Suðurlandi og veið- in á þorski komin í 90.000 tonna sögulegt lágmark. Þarna var loks- ins brugðið við og hólfinu lokað og hert á smáfiskadrápi þessara skipa. En því miður í stað þess að afnema kvótakerfið var hert á því með afnámi frjálsra handfæra- veiða og sett frjálst framsal. Við þetta fór af stað versta þróun sem hugsast gat fyrir íslenska sjómenn og þjóðina því að þarna hætti áherslan á hámörkun afraksturs- ins af veiðunum en í staðinn kom hámörkun fárra valinna einstak- linga á fjármögnun frá bönkunum. Nú var komin ríkisstjórn sem var til í að dansa hættulegan línudans í þeim eina tilgangi að hygla mönn- um í útgerð með „leyfi“ til að nota aflaheimildir „eign þjóðarinnar“ sem eiginfé í viðskiptum við bank- ana. Þessi viðskipti stjórnuðu nú á þessum tíma öllu varðandi úthlut- anir aflaheimilda sem ekki máttu verða meiri en svo að „viðunandi“ skortur væri á aflaheimildum svo verð á „öllum“ kvóta væri hátt og stöðugt. 1998 til 2007 Nú fór í gang hálfgerð skálm- öld þar sem hreint og klárt var verið að reyna að fækka mönnum í útgerð. Þetta gekk svo langt að jafnvel gjaldfelldu bankar lán smærri útgerða til að þvinga þær til að láta þorskkvóta af hendi. Þetta hafði gífurleg áhrif á litlar útgerðir þar sem menn áttu litla þorskkvóta sem þeir notuðu til að fiska aukategundir. Þöggun En hvernig gátu svona alvarlegir atburðir átt sér stað? Fyrir utan að æðstu stjórnendur landsins stóðu vörð um þetta ferli og hvöttu til þess þá var í gangi þöggun þar sem ráðist var á alla þá í sjávarút- vegi sem voguðu sér að segja sann- leikann um það sem átti sér stað og bentu á dæmin þar sem miður fóru. Þarna voru sannarlega unnin mannréttindabrot á fólki og fjöl- skyldum sem við skulum vona að verði rannsökuð fyrr en seinna og tekin til dóms. Veiðar hafa alltaf verið sveiflu- kenndar á Íslandsmiðum, sem ætti að vera nóg ástæða til að menn skilji að kvótastýring er með öllu gagnslaus til að ná því markmiði að hámarka afrakstur greinar- innar. Ætla má að á síðustu 20 árum höfum við vanmetið veiði- getu þorskstofnsins fimm sinnum og mikið af fiski synt hjá garði og ekki nýst þjóðinni í útflutnings- verðmæti eingöngu til að tryggja hátt og stöðugt verð á kvótanum í viðskiptum útgerða og banka. Að sjálfsögðu er þetta búið að skaða þjóðarbúið verulega og er skað- inn enn að birtast okkur núna í lítilli markaðshlutdeild sem gerir okkur erfitt fyrir í markaðsstríði við Norðmenn og Rússa nú þegar þeir eru búnir að átta sig á vit- leysunni sem felst í því að reyna að „geyma“ óveiddan fisk í sjó. Fullvaxinn fisk á að veiða hvar sem í hann næst því þú tekur ekki fisk á morgun sem þú getur veitt í dag. Þetta er staðreynd sem allir reyndir skipstjórar þekkja vel. Gegn þjóðarvilja Nú er svo komið fyrir okkur að við horfum upp á nokkra útgerðar- aðila ætla sér eignaraðild að nýt- ingarrétti fiskimiðanna í trássi við fiskveiðistjórnunarlögin og gegn skýlausum vilja þjóðarinn- ar. Það verður að segjast að við erum vitni að frekju og óbilgirni af hálfu sumra þessara manna og lygaáróðurinn sem þeir beita segir okkur að græðgin virðist ekki eiga sér nein takmörk hjá þessu fólki sem búið er að þvinga öll hags- munasamtök og félög innan sjávar- útvegs til að standa alfarið að baki þeim í baráttu þeirra fyrir þess- ari ólöglegu eignaraðild. Síðan, því miður, sjáum við alla fjóra gömlu stjórnmálaflokka landsins standa vörð um þetta kerfi og eru þeir til í að fara gegn þjóðinni þrátt fyrir að þjóðin hafi talað skýrt í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Eins og kom fram í fyrri grein minni gekk Sóknarmarkið mjög vel og var sátt um það. Þetta kerfi er hægt að taka upp með engum fyrirvara og bæta við það skil- yrði um að allur fiskur verði seld- ur á mörkuðum. Með þessu fyrir- komulagi fiskveiðistjórnunar komum við í veg fyrir óréttlæti, brottkast og löndun framhjá vigt. Við eyðum einokun að veiðum og vinnslu um leið og við hámörkum afrakstur miðanna. Okkur, sem trúum á frelsi einstaklingsins, á ekki dyljast að þetta yrði vítamín- sprauta í íslenskt atvinnulíf sem mun skapa hringrás fjármagns sem síðan gagnast fyrirtækjum á innlendum markaði og í ríkisjóði. Hagur fólksins og fyrirtækjanna á að ganga fyrir græðgi fárra, það heitir lýðræði. Eyðum hagsmuna- gæslu fjórflokksins, kjósum nýju framboðin, kjósum DÖGUN. Eyðilegging kvótans SJÁVARÚT- VEGUR Ólafur Örn Jónsson togaraskipstjóri ➜ Fullvaxinn fi sk á að veiða hvar sem í hann næst því þú tekur ekki fi sk á morgun sem þú getur veitt í dag. Þetta er staðreynd sem allir reyndir skipstjórar þekkja vel.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.