Fréttablaðið - 21.02.2013, Qupperneq 30
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA4
OFNÆMI
Dr. Bolli Bjarnason
kannast vel við að
ýmsar hárvörur
valdi ofnæmi, kláða
og annarri ertingu
í hársverði. Það sé
töluvert algengt
hér á landi.
HÁRLENGING
Það er dýrt að fara í hár-
lengingu og þess vegna
betra að vita hvað það
gæti haft í för með sér.
FALLEG HÁR Britney Spears þarf að líta vel út og
breytir um hárstíl reglulega.
SKELFILEGT Britney Spears lenti í alvarlegum
hárvandamálum eftir hárlengingu og þá var þessi
mynd tekin af henni.
Hárlengingar eru algengar í Banda-ríkjunum, ekki síst á meðal fræga fólksins í Hollywood. Bandarísk
kona leitaði til læknis í New York vegna
mikilla og stöðugra höfuðverkja. Þrátt
fyrir umfangsmiklar rannsóknir tókst
lækninum ekki að finna orsökina og
sendi konuna til taugasérfræðings. Rann-
sókn hans leiddi í ljós að hár lenging sem
konan hafði farið í væri orsakavaldurinn.
Dr. Orly Avitzur, læknir í New York,
sagði í viðtali við sjónvarpsstöðina
ABC að fleiri kvillar en sár höfuðverkur
gætu fylgt hárlengingum og nefndi hann
blæðandi sár í hárbotni, hárlos, jafnvel
blettaskalla. Þá geta komið upp ofnæmis-
viðbrögð eins og mikill kláði og exem.
Vitað er að söngkonan Britney Spears
og fyrirsætan Naomi Campbell hafa
báðar þjáðst af vandamálum eftir hár-
lengingu. Bandarískur læknir segir að
oft sé útlitsdýrkunin dýru verði keypt
því hún geti haft alvarlegar afleið-
ingar. Nokkrar konur hafa sagt sögu
sína í morgunþættinum Good Morning
America þar sem mikið hefur verið
fjallað um málið.
Bolli Bjarnason, sérfræðingur í húð-
og kynsjúkdómum, starfar hjá Útlits-
lækningu í Álftamýri. Hann var spurður
hvort þetta vandamál væri þekkt hér á
landi. „Ég þekki vel vandamál sem koma
upp vegna togs á hárinu og það er þekkt
skýring á skalla sem kallast „tractions
alopecia“,“ svarar hann. „Ég hef séð
svona vandamál hjá ungum stúlkum sem
teygja hárið í fasta lokka, sérstaklega
þegar þessir föstu lokkar eru gerðir í
hárinu í lengri tíma. Svona hár lengingar
geta orsakað ertingu í hárrótum og
einnig höfuðverk.“
Bolli segir að fastar fléttur eða annað
tog í hárið geti valdið ýmsum vanda-
málum, hárið geti losnað ef það verður
truflun í hárrótunum. „Það er helst að
maður sjái þetta vandamál hjá ungum
stúlkum,“ segir hann og bætir við að
ýmis hárefni geti sömuleiðis valdið
ofnæmi og ertingu í hársverði. „Slíkt er
algengt. Ég ofnæmisprófa þessi tilfelli
til að finna skýringu á vandanum. Oft er
hægt að finna orsökina og þá er hægt
að ráðleggja fólki hvaða vörur það geti
notað og hvað það eigi að forðast. Það
þarf stundum að kenna fólki að lesa
innihaldslýsingar á hárvörum til að var-
ast óæskileg efni. Þetta á einnig við um
ýmsar snyrti- og förðunarvörur.“
Bolli er sérhæfður í snertiofnæmi og
starfar mikið við lýtahúðlækningar (e.
cosmetic dermatology). Doktorsritgerð
hans fjallaði um leisertækni og ofnæmi.
■ elin@365.is
HÁRLENGING GETUR
ORSAKAÐ HÁRLOS
ALVARLEGT Töluverð umræða hefur skapast í Bandaríkjunum um vandamál
tengd hárlengingu. Dr. Bolli Bjarnason, sérfræðingur í húðsjúkdómum, tekur
undir að þær geti verið varasamar.
Á NETINU
Á heimasíðunni
www.utlitslaekning.
is er ýmis fróðleikur
um þessi mál.
Bæjarlind 6, s. 554-7030
www.rita.is
Opnum aftur kl. 13.00 í dag eftir breytingar
á RÍTU í BÆJARLIND.
Af því tilefni gefum við 20% AFSLÁTT af öllum vörum
í versluninni fimmtudag, föstudag og laugardag.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Við erum á Facebook
STÆRRI OG
GLÆSILEGRI RÍTA
Skipholti 29b • S. 551 0770
Parísartíz
fagnar 50 ára afmæli
um þessar mundir.
Full búð af nýjum
vörum og
50% afsláttur
af völdum vörum.
Belladonna á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
2 fyrir 1 af öllum
útsöluvörum
Þú velur tvær flíkur af útsölunni
og greiðir bara fyrir dýrari flíkina