Fréttablaðið - 21.02.2013, Síða 33
KYNNING − AUGLÝSING Krakkar21. FEBRÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 3
Því fyrr sem börn komast í tæri við ilmefni, þeim mun hætt-ara er þeim við ofnæmi seinna
á lífsleiðinni. Fjögur ofnæmistilfelli
af hverjum tíu þróast í barnæsku en
með því að velja þvottaduft, húð-
krem, sápur og annað sem inniheld-
ur ekki ilmefni er hægt að draga veru-
lega úr hættunni á að börn þrói með
sér ofnæmi,“ segir Guðrún Húnfjörð,
vörumerkjastjóri hjá Nathan & Olsen.
Fyrir tækið flytur inn umhverfisvænar
og ofnæmisprófaðar vörur frá Neutral
sem eru Íslendingum að góðu kunnar.
„Við foreldrar viljum auðvitað gera
allt til að hugsa vel um börnin okkar
og barnalínan frá Neutral fellur vel
að því markmiði,“ segir Guðrún. Hún
bendir á að barnalínan sé algerlega án
ilmefna, litarefna, parabena og ann-
arra óþarfa aukaefna. „Í línunni finn-
ur þú bæði sjampó og baðsápu sem
eru þróuð sérstaklega fyrir ungabörn,
ásamt barnaolíu sem er hrein jurta-
olía og hentar hvort sem er í baðið, í
ungbarnanuddið eða í þurran hárs-
vörð ungbarna,“ lýsir Guðrún. Í lín-
unni er húðkrem sem má nota hvar
sem er á líkama barnsins en Neutral
býður einnig upp á sérstakt bossa-
krem sem inniheldur sink. „Svo eru
það blautþurrkurnar sem henta vel
í bleiuskiptin sem og til að þurrka
litla putta og lítil andlit þegar vatn og
þvottapoki eru ekki við höndina.“
Guðrún segir ekki síður nauðsyn-
legt að hugsa út í hvaða þvottaefni er
notað til að þvo föt barna. „Fötin liggja
á húð barnsins allan daginn og því er
mikilvægt að þvottaefnið og mýking-
arefnið séu vel valin. Neutral þvotta-
og mýkingarefni eru mild og örugg
fyrir viðkvæma húð barna,“ bendir
Guðrún á. Til að lengja líftíma barna-
fatanna, sem gjarnan þarf að þvo oft
og mikið, er hægt að velja mismun-
andi gerðir af þvottaefni. Í Neutral-
merkinu er hægt að fá þvottaefni sér-
staklega fyrir hvítan, svartan eða mis-
litan þvott.
Neutral-vörurnar eru þróaðar
í samstarfi við dönsku Astma- og
ofnæmis samtökin og Astma- og
ofnæmis félag Íslands mælir með
Neutral-vörunum.
Allar barnavörur Neutral eru
Svansmerktar sem er trygging fyrir
því að gæði þeirra og virkni er jafn góð
eða betri en í sambærilegum vörum.
„Þú þarft því ekki að þekkja öll
innihaldsefnin og hafa áhyggjur af
því að barnið þitt komist í snertingu
við skaðleg efni, það er búið að kanna
það fyrir þig,“ segir Guðrún.
Ilmefnalaust og ofnæmisprófað fyrir börnin
Dönsku hreinlætisvörurnar frá Neutral hafa slegið í gegn á meðal Íslendinga sem velja gæði fyrir sjálfa sig og heimilið án þess að
auka hættu á ofnæmi. Barnalína Neutral er án ilmefna, litarefna, parabena og annarra óþarfa aukaefna.
Guðrún Húnfjörð
MYND/GVA
Mikið stendur til hjá músík-ölsku músinni Maxímús Músíkús. Á laugar daginn
næsta verður nýjasta sagan um
Maxa, Maxímús Músíkús bjargar
ballettinum, flutt í einu frægasta
tónleikahúsi heims, Fílharmóní-
unni í Berlín. Það er Fílharmóníu-
hljómsveit Berlínar, Berliner Phil-
harmoniker, sem bókaði mús-
ina til þess að koma og skemmta
Berlínar búum og fékk einn af
kammerhópunum sem starfa
innan hljómsveitarinnar, En-
semble Berlin, til þess að leika tón-
listina í nýrri kammerútsetningu
sem gerð var sérstaklega af þessu
tilefni. Miðar á tónleikana seldust
upp á tveimur tímum.
Gæðastimpill
„Þetta er einn besti gæða stimpill
sem við getum fengið og mikill
heiður að Fílharmóníusveit Berl-
ínar skuli taka Maxa inn í sitt pró-
gramm,“ segir Hallfríður Ólafs-
dóttir, flautuleikari og höfundur
bókanna um Maxímús. Hún segir
aðdragandann að tónleikunum
nokkuð langan. „ÚTÓN, útflutn-
ingsskrifstofa íslenskrar tónlistar,
hafði milligöngu um að nokkr-
um aðilum var boðið til lands-
ins vorið 2009 til að skoða verk-
efnið. Við ákváðum að fara beint
í toppana og biðja um fræðslu-
stjóra Berlínarfílharmóníunnar,“
lýsir Hallfríður. Honum leist vel
á verkefnið sem komst á lista hjá
hljómsveitinni.
Á ferð um Bandaríkin
Maxímús fer víðar en til Berlínar.
Eftir rúma viku heldur hann til
Bandaríkjanna til þess að koma
fram á Nordic Cool-hátíðinni í
Kennedy-miðstöðinni í Washing-
ton ásamt Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Hljómsveitin flytur fyrstu
bókina um Maxa, Maxímús Mús-
íkús heimsækir hljómsveitina, á
skólatónleikum í stóra tónleika-
salnum í Kennedy-miðstöðinni,
mánudaginn 4. mars, auk þess
að leika íslensk og norræn verk á
kvöldtónleikum sama dag.
Sagan af Maxa, Maximus Musi-
cus Visits the Orchestra, kom
nýverið út á ensku hjá útgáfu-
fyrirtækinu Music Word Media
sem staðsett er í New York, bæði
í prentaðri útgáfu og á rafbók.
Ferðalagi Maxa lýkur með upp-
lestri á ævintýrum hans í aðal-
barnabókabúðinni í New York,
Bankstreet Bookstore, laugardag-
inn 9. mars. Maxi verður á staðn-
um og hittir börn og áritar bækur.
Ný bók væntanleg
Bækurnar um Maxímús eru þrjár
en von er á þeirri fjórðu innan
tíðar. „Sú mun heita Maxímús
Músíkús kætist í kór,“ upplýs-
ir Hallfríður og bætir við að nú
þegar séu krakkar í kórum byrj-
aðir að æfa flutninginn. „Geisla-
diskur sem fylgir bókinni verður
tekinn upp í haust og síðan verður
sagan flutt með sinfóníunni í apríl
2014.“
Hallfríður er innt eftir því
hvað skýri vinsældir músarinn-
ar. „Ætli krökkum finnist hann
ekki skemmtilegur því hann er
eins og þau. Hann er með opinn
huga, til í allt, finnst allt sniðugt
og skemmtilegt og hefur enga for-
dóma,“ svarar hún.
Þetta er ekki lúður, amma
Hallfríður segir fólk duglegt að
segja sér sögur af krökkum sem
hlusta og lesa Maxa. „Mér finnst
skemmtileg saga af tveggja ára
stelpu sem var að horfa á sjón-
varpið með ömmu sinni og afa.
Amman segir: „Nei, sjáðu fína
lúður inn.“ Barnið svarar hneyksl-
unarrómi: „Amma, þetta er ekki
lúður, þetta er franskt horn“.“
Þýddur á kínversku
Allar bækurnar um Maxa hafa
komið út á þýsku. Hann hefur
einnig verið þýddur á ensku og
næst stendur til að kínversk börn
fái að njóta músarinnar, að sögn
Hallfríðar. „Fyrsta bókin um
Maxa verður gefin út í Kína á
þessu ári,“ segir hún og býst
við að Maxi hljóti enn meiri
frægð og frama á komandi
árum. „Ég vona að Maxi komist
um allan heim til að hjálpa krökk-
um að heyra skemmtilega tónlist.“
Maxímús ferðast um heiminn
Tónlistarmúsin Maxímús Músíkús hefur heillað íslensk börn upp úr skónum og nú munu börn víða um heiminn fá að njóta hans
líka. Maxi verður á faraldsfæti á næstunni, heldur til Bandaríkjanna með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fær auk þess að troða upp
með Fílharmóníusveit Berlínar. Þá munu krakkar í Kína brátt fá að njóta hins síkáta Maxa.
Nýjasta sagan um Maxa, Maxímús Músíkús bjargar ballettinum, verður flutt í einu
frægasta tónleikahúsi heims, Fílharmóníunni í Berlín, á laugardaginn. MYND/HARI
Á heimasíðunni Neutral.is er
að finna ítarlegar upplýsingar
um vörurnar ásamt góðum
ráðum um hvernig hægt sé
að fyrirbyggja ofnæmi hjá
börnum.