Fréttablaðið - 21.02.2013, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGKrakkar FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 20134
BÓLUSETNING MIKILVÆG
Börn á Íslandi eru bólusett við
ellefu sjúkdómum. Tilgangur
bólusetninganna er að koma í
veg fyrir barnasjúkdóma sem á
árum áður voru landlægir. Margir
þessara sjúkdóma eru mjög
alvarlegir og var ungbarnadauði
af þeirra völdum algengur á 19.
öldinni og framan af 20. öldinni.
Til þess að árangur náist þurfa
bólusetningar að ná til sem
flestra barna. Í Austur-Evrópu og
víðar hefur skort á bólusetningar
og þar hafa þessir sjúkdómar látið
á sér kræla á ný.
Ýmsar kenningar hafa verið á
kreiki um hættur sem fylgja bólu-
setningum og hefur verið reynt
að tengja þær við alls kyns kvilla. Í
ljósi þessara kenninga hefur borið
á því að foreldrar hafi sleppt því
að láta bólusetja börn sín. Fáar
þessara kenninga styðjast þó
við vísindaleg rök. Hins vegar er
vitað að ef of margir hætta að láta
bólusetja börn sín gætu þessir
sjúkdómar farið að taka sig upp á
ný þá er vandi á höndum.
SMÁFORRIT FYRIR KRÍLIN
Ógrynni smáforrita (appa) eru til fyrir yngstu börnin,
hvort sem þau eru sótt til notkunar í snjallsímum eða
spjaldtölvum. Mörg þeirra eru hönnuð með það í huga
að þroska getu barna til að teikna, muna og púsla en
önnur kynna undraveröld dýra og náttúrunnar fyrir
börnum.
Flestir kannast við samstæðuleiki sem spilaðir eru með
spilum. Þar finna þátttakendur tvö eins spil úr hópi spila
sem búið er að snúa á hvolf. Nú geta börnin spilað leikinn
Memory for kids þar sem leitað er að ýmsum samstæðum
í formi fána, ávaxta og spila. Keppt er um besta tímann
og ekki ólíklegt að börnin vinni foreldrana í fyrstu umferð.
Smáforritið er ætlað Android-símum og fæst ókeypis.
Kids zoo er einnig ætlað Android-símum. Forritið kennir
börnum ýmislegt gagnlegt og skemmtilegt úr dýraríkinu.
Hér er til dæmis hægt að skoða myndir af dýrum og
heyra ólík hljóð sem þau gefa frá sér. Þar sem smáforritið
er erlent inniheldur það ansi mörg dýr sem ekki sjást
hérlendis og því mikill ævintýraheimur fyrir litlu börnin.
Púsluspil eru holl fyrir fólk á öllum aldri. Yngstu fjöl-
skyldumeðlimirnir geta glímt við 20 ólík púsluspil í
Kids Preschool Puzzle Lite sem hefur notið mikilla
vinsælda. Sýndar eru útlínur ýmissa mynda, til dæmis
af bílum, bókstöfum eða dýrum. Börnin nota síðan
fingurinn til að stýra púslinu á réttan stað. Smá forritið
er ætlað Android-símum og hægt er að sækja það
ókeypis með 20 púsluspilum. Einnig er í boði að
kaupa uppfærslu með fleiri púsluspilum.
6H.IS FYRIR FORELDRA
Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins heldur úti vefsíðunni
6h.is fyrir foreldra barna og
unglinga. H-in sex standa fyrir
hamingju, hollustu, hreinlæti,
hugrekki, hreyfingu og hvíld.
Síðan er viskubrunnur um
hvaðeina sem viðkemur heilsu
barna og unglinga. Auk H-flokk-
anna sex má finna fjölbreyttan
fróðleik um vöxt og þroska, ung-
og smábarnavernd, kynheilbrigði,
slysavarnir, sjúkdóma og frávik,
bólusetningar og heilsuvernd
skólabarna.
Hafi foreldrar áhyggjur geta þeir
sent fyrirspurn inni á 6h.is sem
svarað er af hjúkrunarfræðingi
eða öðrum fagaðila að jafnaði
næsta virkan dag. Gætt er fyllsta
trúnaðar.