Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 44

Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 44
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32 Rannsóknir sýna að á milli fimm til sjö prósent barna glíma við athyglisbrest og ofvirkni, (ADHD). Haukur Örvar Pálmason hefur skoðað hvaða aðferðir nýtast þess- um börnum í námi. Haukur Örvar flytur fyrirlestur um athyglisbrest og nám á námskeiði um skóla- göngu barna með athyglisbrest og ofvirkni sem haldið er í næstu viku en Fréttablaðið sló á þráðinn til að forvitnast um efnið. Erfitt með að fylgja fyrirmælum Haukur Örvar: „Krakkar með ADHD eiga erfitt með að halda athygli, fylgja fyrirmælum og skipuleggja sig. Það gerir þeim erfiðara fyrir í námi en þessir erfiðleikar birtast með ólíkum hætti eftir því hve gömul þau eru enda breytast kröfurnar eftir því sem náminu vindur fram. Fyrstu árin snúast um að ná því að læra að lesa, skrifa og reikna, svo þarf að læra að tileinka sér efnið sem verið er að fara yfir. Í elstu bekkjum grunnskólans taka skipulagshæfileikar nem- enda að skipta meira máli, þá eru kannski mörg ólík verkefni sem nemendur þurfa að sinna og skila af sér,“ segir Haukur Örvar og bætir við að börn með ADHD séu oft með skerta stýrifærni, sem veldur þeim erfiðleikum með að koma sér að verki, skipu- leggja verkefni, forgangsraða og áætla tíma til að klára verkefni, halda einbeitingu og færa athygli frá einu atriði verkefnisins yfir á annað eða þau truflast auðveldlega af áreitum í umhverfinu og þegar þau truflast eiga þau erfitt með að koma sér að verki aftur. Þau þurfi aðstoð við að skipuleggja sig til þess að lenda ekki í ógöngum þegar verkefnum fjölgar og þau verða flóknari. Haldin frestunaráráttu „Þeim fallast hendur ef stórt og mikið verkefni bíður óklárað og hafa tilhneigingu til að fresta verkum fram á síðustu stundu.“ Haukur Örvar mælir til dæmis með því að unglingar noti tæknina til að minna sig á hvaða verkefnum sé ólokið, skrái til dæmis hjá sér í símanum eða gmail-dagbók á net- inu, sem getur sent SMS í síma um þau verkefni sem þarf að klára og í hvaða röð. „Krakkarnir eru kannski með mörg verkefni í gangi í einu og það getur verið mjög hjálplegt fyrir þau að fá áminningu í sím- ann um að byrja á einhverju verk- efni, eða huga að undirbúningi rit- gerðar, til þess að þau sitji ekki allt í einu uppi með allt of stór verk- efni óleyst. Lykilatriði hér að er að búta verkin niður í litlar einingar og mikilvægt að kennarar og for- eldrar veiti börnum ramma sem þau geta stuðst við þegar þau vinna verkefni. Margvíslegar fylgiraskanir „Með því að búta verkefnin niður ertu að setja þér markmið sem er viðráðanlegt og skýrt, þegar þú hefur náð þessu markmiði getur þú veitt þér einhverja umbun. Skýrir rammar, rútína, sjónrænar leiðbeiningar, hvatning og hrós eru mikilvægir þættir í kennslu barna. Þessir þættir eru hins vegar enn mikilvægari í kennslu barna með ADHD,“ segir Haukur Örvar og bætir við að ADHD sé mjög flók- ið fyrirbæri sem líkja megi við ísjaka, þar sem einungis brot af vandanum sé sýnilegur. „Það eru margvíslegar fylgi raskanir sem geta fylgt ADHD, eins og mót- þróaþrjóskuröskun og hegðunar- röskun, Tourette, kvíði, þung- lyndi og námsörðugleikar. Það sem flækir ADHD til muna er þessar fylgiraskanir og því mikilvægt að þekkja og taka tillit til einkenna ADHD og þessara fylgiraskana,“ segir hann að lokum. Námskeiðið áðurnefnda verður haldið í samvinnu ADHD-samtak- anna og Háskólans í Reykjavík 28. febrúar og 1. mars. Það er ætlað kennurum og starfsfólki grunn- skóla. sigridur@frettabladid.is Þeim fallast hendur ef stórt og mikið verk- efni bíður óklárað og hafa tilhneigingu til að fresta verkum fram á síðustu stund. Viðráðanleg og skýr markmið mikilvæg Skýrir rammar, rútína, sjónrænar leiðbeiningar, hvatning og hrós skipta miklu máli fyrir börn með ADHD, segir Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur. Hann segir börn með ADHD iðulega eiga erfi tt með að skipuleggja nám sitt en það hjálpi mjög að búta verkefni niður. HAUKUR ÖRVAR Fylgiraskanir flækja ADHD, segir Haukur Örvar, og því mikilvægt að þekkja og taka tillit til einkenna þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Athyglisbrestur og ofvirkni, oft kallað ADHD í daglegu tali, er taugaþrosk- aröskun sem kemur yfirleitt snemma fram, eða fyrir 7 ára aldur, og getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlögun. Athyglisbrestur og ofvirkni er algerlega óháð greind. ADHD er alþjóðleg skammstöfun og stendur fyrir „Attention deficit hyperactivity disorder” eða athyglisbrest og ofvirkni. Nýjar rannsóknir sýna að 5-10% barna og unglinga glíma við ofvirkni sem þýðir að 2-3 börn með ADHD gætu verið í hverjum bekk að meðal- tali í öllum aldurshópum. Auk þess geta börn haft vægari einkenni. Í hópi barna með ADHD eru þrír drengir á móti hverri einni stúlku. Nýjar rann- sóknir benda þó til að fleiri stúlkur séu með ADHD en talið hefur verið en þær koma síður til greiningar. Börn og unglingar með athyglisbrest með/án ofvirkni eiga einnig oft við aðra erfiðleika að stríða. Ákveðinn hópur er t.d. með sértæka náms- örðugleika og alvarlegir félags- og hegðunarerfiðleikar eru ekki óalgengir. Þeim er mjög hætt við að þróa með sér mótþróahegðun. Kvíði og depurð eru algeng og mörg þessara barna sýna einkenni áráttuhegðunar. *Heimild: www.adhd.is Taugaþroskaröskunin ADHD * Viðhorf sérkennara til mennta- stefnunnar skóli margbreytileik- ans er heiti erindis Rannveigar Klöru Matthíasdóttur M.Ed. sem flytur í dag erindi á vegum Rann- sóknarstofu um skóla án aðgrein- ingar við Háskóla Íslands. Erind- ið er byggt á meistararitgerð Rannveigar Klöru, sem kannaði viðhorf menntaðra sérkennara á Íslandi til skólastefnunnar í rann- sókn sem hún vann 2012. Tími mun gefast fyrir spurningar og umræður. Erindið hefst klukkan 16.10 og fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Skóli margbreytileikans Rannveig Klara Matthíasdóttir fj allar um viðhorf sérkennara í erindi sem byggir á meistararitgerð. 15% afsláttur Gildir út febrúar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.