Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 48
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 Fyrsta sólóplata Johnnys Marr, fyrrum gítarleikara The Smiths, kemur út eftir helgi. Hún kall- ast The Messenger og kemur út í Bretlandi á vegum Warner en í Bandaríkjunum hjá Sire Records. Marr, sem verður fimmtugur í október, er einn kunnasti gítar- leikari heims eftir veru sína í The Smiths, en sú hljómsveit hefur lengi verið í uppáhaldi hjá tónlistaráhugamönnum. Hann var kjörinn fjórði besti gítar- leikari síðustu þrjátíu ára í könn- un BBC árið 2010 og í næstu viku fær hann afhent Godlike Genius- heiðursverðlaunin hjá blaðinu NME fyrir framlag sitt til tón- listarinnar. Mörgum kemur eflaust á óvart að Marr hafi ekki gefið út sóló- plötu fyrr, því 26 ár eru síðan The Smiths lagði upp laupana. Á þessum tíma hefur forsprakki sveitarinnar, Morrissey, sent frá sér níu hljóðversplötur og þar af hafa þrjár komist á topp breska vinsældarlistans. Í stað þess að vera einn á báti hefur Marr spilað með hinum ýmsu hljómsveitum, annaðhvort sem opinber meðlimur eða á tón- leikaferðum. Eftir endalok The Smiths spilaði hann inn á tvær vinsælustu plötur The The, Mind Bomb og Dusk. Eftir það stofn- aði hann hljómsveitina Electronic ásamt Bernard Sumner úr New Order og náði fyrsta plata þeirra öðru sæti á breska listanum. Næst stofnaði Marr hljómsveit- ina Johnny Marr & The Healers sem gaf út plötuna Boomslang, sem fékk misjöfn viðbrögð. Í framhaldinu gekk hann til liðs við bandarísku indísveit- ina Modest Mouse árið 2006 og spilaði inn á tvær plötur henn- ar. Fór sú fyrri, We Were Dead Before the Ship Even Sank. á topp bandaríska listans en þang- að hafði Marr aldrei komist áður. Því næst gerðist Marr meðlimur í bresku indírokksveitinni The Cribs og tók upp eina plötu með henni en hætti 2011 til að einbeita sér að fyrstu sólóplötunni, sem hann tók alfarið upp sjálfur. Gagnrýnendur virðast ekk- ert yfir sig hrifnir af The Messenger. BBC segir plötuna vanta þann brodd sem Marr hefur fært hljómsveitum sínum í gegnum tíðina. Vefsíðan Pitch- fork gefur henni 6,3 af 10 og segir hana fanga athyglina í Gítargoðsögn stígur fram í sviðsljósið Johnny Marr, fyrrum gítarleikari The Smiths, gefur út sína fyrstu sólóplötu. JOHNNY MARR Fyrsta sólóplata Johnnys Marr, The Messenger, kemur út eftir helgi. NORDICPHOTOS/GETTY David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segist í nýlegu viðtali við BBC ætla að halda áfram að hlusta á The Smiths þrátt fyrir óskir Johnnys Marr um að hann snarhætti því. Á Twitter árið 2010 hafði Marr þetta að segja um aðdáun Cameron á The Smiths: „David Cameron, hættu að segja að þú fílir The Smiths. Þú gerir það ekki. Ég banna þér að fíla hljómsveitina.“ Söngvarinn Morrissey lýsti yfir ánægju sinni með ummæli Marrs og stutt er síðan Thom Yorke úr Radiohead sagðist ætla að höfða mál gegn Cameron ef hann notaði eitthvað af lögunum hans í kosningaherferð. Ósáttur við aðdáun Davids Cameron byrjun en vera ólíklega til að vekja áhuga til lengra tíma litið. Drowned in Sound gefur henni 4 af 10 og segir að Marr virð- ist eiga erfitt með að búa til góð lög eftir að hafa verið svo lengi í bakgrunninum. Þá segir vefsíðan Musicomh plötuna misgóða og of langa en gefur henni samt þrjár stjörnur. Marr ætlar að fylgja The Messenger eftir með tónleikaferð um Bretland sem hefst í mars, og í apríl ferðast hann til Bandaríkj- anna. freyr@frettabladid.is Sónar-hátíðin fór fram í Hörpu um síðustu helgi og þótti takast sérstaklega vel. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi margfræga tónlistarhátíð er haldin hér á landi og jafnframt í fyrsta sinn sem tónlistarhátíð sem að stærstum hluta er helguð raf- og danstónlist fer alfarið fram í Hörpu. Stærstu nöfnin voru í Silfurbergi og Norðurljósum en einnig var brugðið á það ráð að koma fyrir tveimur nýjum sviðum í húsinu. Vestanmegin á fyrstu hæðinni (gegnt höfninni) var svið þar sem íslenskir listamenn léku aðallega og í bílakjallara hafði verið afmarkað svæði og breytt í klúbb. Hvortveggja kom mjög vel út og opnar nýja möguleika á nýtingu hússins í framtíðinni. Það myndaðist góð stemning í Hörpu á Sónar-hátíðinni. Fólk flæddi á milli tónleikasviðanna fjögurra og allir virtust sáttir, enda var mikið af gæðatón- list í boði. Framkvæmdin tókst líka mjög vel. Hljómburður var framúrskar- andi og mikið lagt í sjónræna hlutann. Dagskráratriðin sem ég sá hófust öll á réttum tíma, nema Squarepusher sem fór af stað nokkrum mínútum fyrir auglýstan tíma … Hátíðin lífgaði líka upp á bæjarbraginn. Erlendir gestir voru áberandi, bæði í Hörpu og á götum miðborgarinnar. Það er ekkert sérstakt í gangi í tón- listarlífinu í Reykjavík í febrúar og þess vegna er hátíð eins og þessi afar kærkomin. Sónar 2013 var vel sótt en spurningin er auðvitað hvort fjár- hagsáætlanir hafi haldið og hvort útkoman hafi verið það góð að við fáum aðra hátíð að ári. Þess væri óskandi. Ég er sannfærður um að ef Sónar-hátíðin nær að festa sig í sessi verður hún bæði ómissandi atburður í vetrarprógrammi ferðaþjónustunnar og mikil lyftistöng fyrir íslenska tónlist– sérstaklega raf- og danstónlist. Áfram Sónar! Frábær Sónar-hátíð TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Foals– Holy Fire Oyama– I Wanna Árstíðir– Tvíeind Í spilaranum Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. LAGALISTINN TÓNLISTINN Sæti Flytjandi Lag 1 Ásgeir Trausti Nýfallið regn 2 Jónas Sigurðsson Fortíðarþrá 3 Retro Stefson Julia 4 Frank Ocean Lost 5 Eyþór Ingi Ég á líf 6 Valdimar Yfir borgina 7 Rihanna / Mikky Ekko Stay 8 Bruno Mars Locked Out of Heaven 9 Moses Hightower Háa C 10 Maroon 5 Daylight Sæti Flytjandi Plata 1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 2 Ýmsir Söngvakeppnin 2013 3 Retro Stefson Retro Stefson 4 Of Monsters and Men My Head Is an Animal 5 Raggi Bjarna Dúettar 6 Bloodgroup Tracing Echoes 7 Skálmöld Börn Loka 8 Moses Hightower Önnur Mósebók 9 Valdimar Um stund 10 Sin Fang Flowers 14.2.2013 ➜ 20.2.2013 Lífs-spor, sóló á Suðurpól - kraftur markmiða og drauma Vilborg Arna Gissurardóttir, sem brautskráðist úr MBA námi frá Háskóla Íslands árið 2011, náði eins og kunnugt er því einstaka markmiði að ganga ein síns liðs, fyrst íslenskra kvenna og sú níunda í heiminum á Suðurpólinn. Af því tilefni hefur MBA námið í Háskóla Íslands fengið Vilborgu til að fjalla um þessa ævintýraferð, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 12-13 í stofu 105 á Háskólatorgi. Verkefni Vilborgar krafðist gífurlegrar skipulagningar, þrautseigju og kjarks. Í erindi sínu fjallar Vilborg um áskoranir sínar. Skráning á mba@hi.is - Aðgangur er ókeypis www.mba.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.