Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 56
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 44 ➜ Leikir kvöldsins N1-DEILD KARLA 19.30 Fram - Afturelding 18.00 Haukar - Akureyri 19.30 FH - ÍR 19.30 Valur - HK DOMINOS-DEILD KARLA 19.15 Snæfell - Fjölnir 19.15 Grindavík - Skallagrímur 19.15 ÍR - Stjarnan 19.15 Njarðvík - KR HANDBOLTI „Þetta er svokallaður einn plús einn samningur. Eins árs samningur með möguleika á framlengingu,“ sagði Kári Krist- ján kátur við Fréttablaðið. Hann klárar tímabilið með Wetzlar og flytur svo næsta sumar. Línumaðurinn sterki, sem oftar en ekki er kallaður Heimaklettur- inn, óttast það ekki að binda sig í svo skamman tíma. „Það eru tvær hliðar á þess- um peningi. Ef ég meiðist get ég lent í vandræðum. Ef ég stend mig vel opnast örugglega margir möguleikar sem mér fannst líka heillandi. Ég ætla að koma inn með látum og standa mig vel. Þetta er svolítil áskorun líka og það finnst mér skemmtilegt.“ Það er búið að orða Kára við félagið síðustu vikur. Af hverju tók svona langan tíma að ganga frá samningum? „Þeir komu og sáu mig gegn Hamburg fyrir jól. Létu mig svo vita að þeir ætluðu að skoða mig vel á HM. Það mót gekk svo vel hjá mér. Eftir HM fór allt á fullt. Ég fór í heimsókn til þeirra á dög- unum. Þar skoðuðu læknar mig ásamt því að við ræddum saman. Þá sá ég virkilega hversu spenntir þeir voru fyrir mér og ég var sjálf- ur mjög spenntur fyrir því að fara þangað,“ segir Kári og bætir við að hann hafi alltaf verið spenntur fyrir félaginu. „Þarna er ég að fara í lið sem er að keppa um titla. Það er gaman að þeir hafa trú á mér í því verk- efni. Þeir hafa mátt horfa á eftir Danmerkurtitlinum til AG og FCK síðustu ár og ætla sér að fara alla leið. Þetta er lið sem er allt- af sigur stranglegt og það finnst mér líka töff. Ofan á það kemur meistara deild og svona. Þetta er mjög spennandi pakki og félagið afar metnaðarfullt.“ Kári hefur staðið sig mjög vel með Wetzlar í þýsku úrvalsdeild- inni og hafði úr ýmsu að velja. „Það hefur verið mjög gaman að spila í Þýskalandi í þessari sterku deild. Ég gat verið áfram í Þýska- landi og var í viðræðum við lið þar í landi sem og annað danskt lið. Ég er spenntur fyrir því að komast til Danmerkur. Þar er menning- in líkari því sem gerist heima,“ segir Kári en hann hittir fyrir hjá félaginu annan Íslending því Guð- mundur Árni Ólafsson hefur leik- ið með Bjerringbro undanfarin ár. Kári segir það vera góða tilfinn- ingu að vera búinn að ganga frá sínum málum. „Það er ekki hægt að vera með lífið í lúkunum í júlí. Það hefði því ekki verið gott að bíða of lengi. Ég hef samt svolítið gaman af þessum þreifingum. Það er alltaf smá stress og spenna en það er gaman að hafa úr ýmsu að velja og finna áhuga,“ segir Kári en hvernig er hann í dönskunni? „Ég er svokallað tungumála- kameljón. Ég bregð mér í allra kvikinda líki er það liggur vel á mér. Ég á ekki eftir að vera í vand- ræðum með þetta,“ segir Kári léttur. henry@frettabladid.is Kári á leið til Danmerkur Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson, leikmaður Wetzlar í Þýskalandi, skrifaði í gær undir samning við danska liðið Bjerringbro-Silkeborg. Línumaðurinn segist vera spenntur fyrir því að keppa um titla. HEIMAKLETTURINN Á FLUGI Kári Kristján mun flytja sig um set næsta sumar. Hann er hér í leik á HM, þar sem hann stóð sig mjög vel og heillaði forráðamenn danska liðsins. NORDICPHOTOS/AFP ÍÞRÓTTIR Það er nóg um að vera á íþróttavöllum landsins í kvöld en þá fara fram fjórir leikir í úrvalsdeildum karla í handbolta og körfubolta. Botnlið Vals í N1-deild karla tekur á móti Íslandsmeisturum HK í afar mikil- vægum leik. Valsmenn, sem eru með nýtt þjálfarateymi, töpuðu með einu marki gegn FH í síðustu umferð og þurfa sárlega á sigri að halda í botnbaráttunni. Topplið Hauka, sem hefur tapað þremur leikjum í röð, fær tækifæri til þess að komast á beinu brautina gegn Akureyringum. Í körfuboltanum þurfa nýkrýndir bikarmeistarar Stjörnunnar að fara upp í Breiðholt og spila gegn ÍR-ingum sem sitja á botni deildarinnar og verða að fara að næla í einhver stig. - hbg Nóg um að vera á heimavelli í kvöld HVAÐ NÚ? Þjálfarar Vals fara yfir málin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI visir.is Nánar um leiki gærkvöldsins. ÚRSLIT MEISTARADEILD EVRÓPU GALATASARAY - SCHALKE 1-1 1-0 Burak Yilmaz (12.), 1-1 Jermaine Jones (45.) AC MILAN - BARCELONA 2-0 1-0 Kevin Prince Boateng (56.), 2-0 Sulley Muntari (81.) N1-DEILD KVENNA KR - GRINDAVÍK 59-47 KR: Shannon McCallum 25/13 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 11/10 fráköst, Helga Einars- dóttir 8, Björg Einarsdóttir 7, Guðrún Gróa Þor- steinsdóttir 5/16 fráköst, Anna Ævarsdóttir 3. Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 19, Crystal Smith 9, Helga Rut Hallgrímsdóttir 9/11 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 6, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 2, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2. HAUKAR - KEFLAVÍK 67-58 Haukar: Siarre Evans 21/19 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 16/6 varin skot, Margrét Rósa Hálf- danardóttir 9, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 8, Dag- björt Samúelsdóttir 5, Gunnhildur Gunnarsd. 5. Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 24/8 fráköst/8 stolnir, Bryndís Guðmundsdóttir 12/11 fráköst, Jessica Ann Jenkins 12, Sandra Lind Þrastardóttir 4, Sara Rún Hinriksdóttir 4/8 fráköst. FJÖLNIR - NJARÐVÍK 89-94 Fjölnir: Britney Jones 52/18 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 17/9 fráköst/5 varin skot, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 7, Fanney Lind Guðmunds- dóttir 5/6 fráköst, Birna Eiríksdóttir 3, Eyrún Líf Sigurðardóttir 3, Telma María Jónsdóttir 3. Njarðvík: Lele Hardy 30/20 fráköst/8 stoðsending- ar/8 stolnir, Marín Hrund Magnúsdóttir 19, Guð- laug Björt Júlíusdóttir 9, Eyrún Líf Sigurðardóttir 8, Ína María Einarsdóttir 7, Sara Dögg Margeirs- dóttir 7, Emelía Ósk Grétarsdóttir 7. VALUR - SNÆFELL 46-60 Valur: Jaleesa Butler 23/15 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10, Kristrún Sigurjónsdóttir 8, Unnur Ásgeirsdóttir 3, Hallveig Jónsdóttir 2. Snæfell: Alda Leif Jónsdóttir 14, Kieraah Marlow 14/12 fráköst, Hildur Kjartansdóttir 11, Berglind Gunnarsdóttir 10, Hildur Sigurðardóttir 8/11 fráköst, Rósa Indriðadóttir 3. www.volkswagen.is Volkswagen Caddy Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað. Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan- vélum frá framleiðanda. *Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur. Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós. Góður vinnufélagi Atvinnubílar Til afgreiðslu strax Fæst einnig fjórhjóladrifinn Caddy* kostar aðeins frá 3.190.000 kr. (2.541.833 kr. án vsk) BOX Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather hefur skrifað undir samning sem gæti gert hann að ríkasta íþrótta- manni heims á næstu árum. Mayweather skuldbatt sig til að berjast sex sinnum á næstu þrjátíu mánuðum en samningurinn sem hann gerði snýr að sýningar- rétti á þeim bardögum í sjónvarpi. „Samningurinn er sá langstærsti sem hefur verið gerður hingað til í heimi hnefa- leikanna,“ segir í yfirlýsingu sem umboðsskrifstofan, sem er með Mayweather á sínum snærum, sendi frá sér. Engar upphæðir hafa verið gerðar opinberar en næsti bardagi hans verður gegn Robert Guerrero þann 4. maí næstkomandi. Það verður fyrsti bardagi hans síðan hann vann Miguel Cotto í maí síðastliðnum. Mayweather hefur nú barist í 43 bardögum á sínum atvinnumannaferli og unnið þá alla. - esá Mayweather mokar inn seðlum SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.