Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 58

Fréttablaðið - 21.02.2013, Page 58
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46 FÓTBOLTI „Það er ekkert að fela hjá okkur. Við erum lögaðilar í félags- starfi og það er allt uppi á borði hjá okkur,“ segir Jónas Þórhalls- son, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Félagið birti á heima- síðu sinni ársskýrslu stjórnarinnar þar sem farið var yfir starfsárið á hreinskilnislegan máta. Til að mynda var viðurkennt að mistök hefðu verið gerð með því að ráða bæði Guðjón Þórðarson sem þjálfara liðsins í fyrra sem og Sig- urð Jónsson árið 2006. Bæði þessi ár féll liðið úr efstu deild. Þá var sagt frá skuldastöðu félagsins og ótrúlegri ferð til Reykjavíkur sem skilaði 20 millj- ónum í kassann eftir „nokkurra mínútna fundi“ eins og það var orðað í skýrslunni. Þetta var gert í nóvember árið 2011. Vildu gjalda til baka „Við fórum í björgunar leiðangur – svokallaða ölmusuferð til Reykja- víkur. Það var komið gat í okkar áætlanir sem við þurftum að bregðast við og var þetta upp- skeran,“ sagði Jónas en viðkom- andi fyrirtæki sem leitað var til starfa í Reykjavík og eru þjónustu- aðilar í sjávarútveginum. „Þetta eru fyrirtæki sem hafa átt langt og farsælt samstarf við Grindvíkinga og vildu gjalda það til baka. Það voru margir sem komu að þessu og þetta var niður- staðan,“ segir Jónas og bætir við að um auglýsingasamninga hafi verið að ræða. Jónas segir að áfram sé stefnt að því að grynnka á skuldum deildar- innar. Hún var rekin með tæplega fjögurra milljóna króna tapi á síð- asta ári og er með fimmtán milljón króna yfirdráttarlán í banka. Verkefnið er þó erfitt því félagið verði af miklum tekjum með því að missa sæti sitt í efstu deild karla, auk þess sem mun meiri ferða- kostnaður fylgi því að spila í 1. deildinni. „Ég er þó alls ekki að kvarta undan því enda þurfa lið utan af landi að koma oft suður yfir tíma- bilið. Við kvörtum ekki yfir því að fara til þeirra,“ sagði Jónas en deildin hefur meðal annars grip- ið til óhefðbundinna aðgerða til að lækka launakostnað, eins og Fréttablaðið hefur áður fjallað um. Ætlum að ráðast á yfirdráttinn „Launakostnaður knattspyrnu- félaga er víða 80-90 prósent af heildarkostnaði og er það allt of mikið. Við höfum náð því niður og er ætlunin að ráðast á þennan yfirdrátt. En það er eina skuldin okkar – við erum ekki með nein langtímalán eða neitt slíkt,“ ítrek- ar Jónas. Hann segir að markmið félags- ins sé ávallt að ná árangri en hann gerir raunhæfar væntingar til liðsins nú í sumar. „Við erum með marga unga og efnilega stráka og ætlum ekki að setja of mikla byrði á þeirra herðar með því að segjast ætla að fara strax upp um deild. En ef okkur lánast að fá sterka leikmenn til félagsins fyrir sum- arið þá er allt hægt,“ segir Jónas en félagið skoðar nú að fá til sín erlenda leikmenn. En helsta markmiðið með starfi deildarinnar snýr fyrst og fremst að uppbyggingu knattspyrnunnar innan frá, að sögn Jónasar. „Við ætlum ekki að koma fram með yfirlýsingar um að verða Íslandsmeistari. Okkar mottó í dag er að efla okkar yngri flokka. Við erum stoltir af okkar starfi – við lentum í ólgusjó en erum að vinna okkur upp úr honum.“ eirikur@frettabladid.is 20 milljóna króna ölmusuferð „Við fórum í björgunarleiðangur– svokallaða ölmusuferð til Reykjavíkur,“ segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. Taka þurft i til í fj árhagsmálum deildarinnar og stendur sú vinna yfi r. GLAÐIR GRINDVÍKINGAR Stefna Grindavíkur er að hlúa vel að yngri flokkum félagsins og byggja þannig upp til framtíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Tomi Ameobi mun ekki spila með Grindavík í sumar en hann gaf félaginu afsvar á dög- unum. Þetta staðfesti Jónas Þór- hallsson, formaður knattspyrnu- deildar. Ameobi spilaði með Grind- víkingum síðastliðið sumar og skoraði þá fjögur mörk í tuttugu leikjum í deild og bikar. Hann lék árið áður með BÍ/Bolungarvík en bæði árin undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Fylkismenn voru í viðræðum við Ameobi fyrr í vetur en ekkert kom út úr þeim. Að sögn Haf- þórs Hafliðasonar, umboðsmanns hans, er Ameobi nýfarinn af stað á ný eftir að hafa gengist undir aðgerð og enn óljóst hvar hann mun spila næst. Það sé þó áhugi fyrir honum bæði á Íslandi sem og á hinum Norðurlöndunum. - esá Ameobi ekki með Grindavík AMEOBI Hér í leik með Grindavík síðastliðið sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÓLYMPÍULEIKAR Valentin Yordanov, formaður búlgarska glímusam- bandsins, hefur mótmælt ákvörðun Alþjóðaólympíunefndarinnar á sérstakan hátt. Yordanov ákvað að skila Ólympíugullinu sínu frá því á leikunum í Atlanta 1996. Alþjóðaólympíunefndin ákvað á dögunum að sparka glímuíþróttinni út af Ólympíuleikunum frá og með leikunum 2020. Yordanov er allt annað en sáttur og ákvað að fórna eina Ólympíugullinu sínu til að vekja athygli á málinu. Valentin Yordanov vann gullið sitt í frjálsri glímu í 52 kg flokki þegar hann var 36 ára gamall. Hann hætti eftir leikana í Atlanta. - óój Skilaði gullinu FÓTBOLTI Franska blaðið Le Paris- ien hefur heimildir fyrir við- ræðum á milli Carlos Ancelotti, stjóra franska liðsins PSG, og for- ráðamanna spænska stórliðsins Real Madrid. Það er því líklegt að mati þessa annars stærsta dag- blaðs Frakklands að Ancelotti taki við liði Real Madrid í sumar. Framtíð Carlos Ancelotti hjá Paris Saint-Germain hefur verið í uppnámi en núverandi samn- ingur hans rennur út í sumar. PSG er með klausu í samningn- um sem gefur félaginu tækifæri á að framlengja samninginn um eitt ár svo framarlega sem liðið kemst aftur í Meistaradeildina. José Mourinho, núverandi stjóri Real Madrid, er væntan- lega á sínu síðasta tímabili með Real Madrid og hefur verið sterk- lega orðaður við Paris Saint- Germain. Svo gæti því farið að PSG og Real skipti hreinlega á þeim Ancelotti og Mourinho. - óój Skipta þau á Ancelotti og Mourinho? CARLO ANCELOTTI Orðaður við starfið hans Jose Mourinho hjá Real Madrid. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Óvíst er hvort Kjartan Henry Finn- bogason geti spilað með KR í Pepsi-deildinni í sumar, þar sem hann á við þrálát hnémeiðsli að stríða. Hann missti af síðustu vikum síðasta tíma- bils þar sem hann fór í aðgerð vegna hné- meiðslanna. Hann meiddist þó strax í upp- hafi tímabilsins. „Sumarið var erfitt. Ég fékk áverka á hnéð í byrjun sumars og fann strax að það var eitthvað að. Ég gat ekki æft og spilaði bara leikina,“ sagði Kjartan Henry í samtali við Boltann á X-inu í gær. „Ég fór svo í aðgerðina 7. september en þar komu í ljós tvær brjóskskemmdir í hnénu. Liður inn var svo fullur af drasli sem var hreinsað út. Svo var borað í beinið til að reyna að framkalla einhverjar himnur,“ sagði hann. „Það hefur ekki gengið enn hjá mér. Ég er enn jafn slæmur og daginn eftir aðgerðina. Það er búið að reyna mjög á þolinmæðina hjá mér. Ég er enn hjá sjúkraþjálfara 1-2 sinnum á dag, aðallega til að styrkja vöðvana í kringum hnéð. Ég hef eitthvað reynt að hlaupa í vatni og á hlaupabretti en hnéð hefur alltaf tútnað út aftur,“ segir framherjinn sterki. „Svo virð- ist sem hnéskelin sé í einhverju ójafnvægi og dragist til hliðar. Mögulega þarf ég að fara í aðra aðgerð og létta aðeins á því og tylla henni á sína braut. Ef það verður gert er sumarið búið.“ Kjartan Henry ætlar þó að reyna aðrar lausn- ir áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann leggist undir hnífinn. „Ég er með mjög góðan hóp af sjúkraþjálfurum og ég er bjartsýnn á að þetta lagist. Ef ekki þá er ég ekki það gamall að þetta sé algjörlega búið.“ Hann segist ákveðinn í því að spila aftur knattspyrnu. „Ef ég næ ekki að spila í sumar ætla ég að vinna í hnénu þangað til að ég verð orðinn góður. Mér er ekki það illt að ég þurfi að leggja skóna á hilluna, það er ekki séns.“ - esá Kjartan Henry spilar mögulega ekki í sumar Þrálát hnémeiðsli gera Kjartani Henry Finnbogasyni erfi tt fyrir. Hann er þó ekki búinn að gefa upp alla von. GOLF Tiger Woods spilaði merkilegan golfhring um síðustu helgi en hann fékk þá tækifæri til þess að spila með sjálfum Bandaríkjaforseta, Barack Obama, en þeir spiluðu saman í Flórída og fengu engir fjöl- miðlamenn að fylgjast með golfinu. Með í hollinu voru Jim Crane, eigandi hafnaboltaliðsins Houston Astros, og Ron Kirk, fyrrum borgarstjóri Dallas. Mikil leynd var yfir golfhringnum og gaf skrifstofa Banda- ríkjaforseta engar upplýsingar um hann. Tiger mátti augljós- lega ekki heldur segja mikið. „Ef hann fer að eyða meiri tíma á golfvellinum þegar forsetatíð hans lýkur þá held ég að hann geti orðið nokkuð góður,“ sagði Woods í gær. Hann mátti þó segja að hann hefði verið í liði með Obama og þeir hefði unnið þá Crane og Kirk. Woods tekur nú þátt í Match Play-meistaramótinu og spurning hvort hann nái að fylgja eftir góðum hring með forsetanum. - hbg Tiger og Obama sigursælir í golfi nu HANDBOLTI Dómararnir Arnar Sigur- jónsson og Svavar Pétursson eru á leiðinni til Frakklands um næstu helgi þar sem þeir munu dæma Íslendingaslag í Evrópukeppninni. Franska liðið HBC Nantes og þýska liðið SC Magdeburg mætast þarna í toppslag í D-riðli í EHF-bikarnum en bæði lið hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum og eru því í mjög góðum málum. Gunnar Steinn Jónsson spilar með HBC Nantes og Björgvin Páll Gústavs- son er í markinu hjá SC Magdeburg. Það verður því um sannkallaðan Ís- lendingaslag í Nantes á sunnudaginn. Tvö efstu liðin í riðlinum fara í átta liða úrslit en fjögurra liða úrslita helgin mun síðan fara fram á heimavelli Gunnars Steins og félaga í HBC Nantes. - óój Arnar og Svavar dæma Íslendingaslag Á LEIÐ ÚT Arnar Sigurjónsson ræðir hér við Svavar Pétursson. LYKILMAÐUR Kjartan Henry Finnbogason í leik með KR síðastliðið sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kjartan Henry Finnbogason hefur spilað með KR undanfarin þrjú sumur eftir að hann kom aftur til liðsins úr atvinnumennsku. Síðustu sumur Kjartans 2010 8 mörk í 21 leik Mark á 200,9 mínútna fresti 2011 12 mörk í 19 leikjum Mark á 127,4 mínútna fresti 2012 8 mörk í 14 leikjum Mark á 133,1 mínútu fresti

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.