Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 47
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Það er þinn hagur að fylla út almenna umsókn á vefsíðunni okkar,
www.hagvangur.is.
Þannig getum við komið þér á framfæri við viðskiptavini sem kjósa að auglýsa
ekki laus störf. Við erum stöðugt að leita að góðu fólki til spennandi starfa hjá
traustum fyrirtækjum.
Starfsfólk Hagvangs leggur sig fram við að samþætta hag einstaklinga og
velgengni fyrirtækja og það er því engin tilviljun að Hagvangur er nú eitt
öflugasta ráðgjafar- og ráðningarfyrirtæki á íslenskum vinnumarkaði.
Vitum við af þér?
Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar stöðu háskólarektors. Við leitum að öflugum
leiðtoga með sterka framtíðarsýn sem getur þróað háskólann áfram í bæði innlendu og erlendu
umhverfi háskólastofnana.
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 10. mars nk.
Umsóknir óskast sendar á
netfangið thorir@hagvangur.is
eða á skrifstofu Hagvangs
Skógarhlíð 12, 108 Reykjavík
ásamt fylgigögnum merktar
„Háskólinn á Bifröst Rektor“.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á rekstri háskólans
• Leiða starfsemi, uppbyggingu og framtíðarsýn
háskólasamfélagsins í takt við stefnu skólans
• Ábyrgð á að starfstilhögun öll sé í samræmi við
hlutverk, markmið og gæðakröfur
• Leiðtogi háskólans og samfélagsins alls á Bifröst
Menntunar- og hæfniskröfur
• Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi eða hafa prófessors-
eða dósentshæfi að mati dómnefndar um hæfi háskólakennara
skv. 18. gr. laga nr. 63/2006 á einhverju fræðasviða háskólans
• Umtalsverð reynsla af stjórnun og rekstri
• Þekking á háskólaumhverfi
• Færni til að fá fólk til samstarfs og samvinnu
Rektor Háskólans á Bifröst
Bifröst er háskóli á sviði félags- og hugvísinda, sem menntar samfélagslega ábyrga leiðtoga.
Framtíðarsýn skólans er að verða leiðandi í námsframboði og kennsluháttum sem mótast af áherslum
hans á samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Við skólann er kennt á þremur sviðum á háskólastigi, viðskiptasviði,
lögfræðisviði og félagsvísindasviði. Jafnframt býður skólinn upp á aðfararnám á framhaldsskólastigi,
Háskólagátt. Skólinn hefur aðsetur í háskólaþorpinu á Bifröst í Borgarfirði.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. júlí nk. til fjögurra ára í senn. Húsnæði í boði á háskólasvæðinu. Valnefnd mun meta umsóknir og skila tillögum til
stjórnar. Upplýsingar um valnefnd er að finna á www.bifröst.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða viðhaldsstjóra.
Upplýsingar veita:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 3. mars nk.
Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.isStarfssvið
• Rekstur véla og tækja
• Viðhald og viðgerðir véla og alls tækjabúnaðar
• Fyrirbyggjandi viðhald
• Innkaup varahluta og tækjabúnaðar
• Tækniþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
• Nám í vélvirkjun, vélfræði, vélgæslu eða sambærileg menntun
• Reynsla af sambærilegu starfi skilyrði
• Þekking á tölvustýrðum iðnvélum
• Þekking á vélbúnaði, rafbúnaði, vökvakerfum, loftþrýstikerfum
sem og öðrum búnaði
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
• Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Viðhaldsstjóri á höfuðborgarsvæðinu
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is