Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 96
23. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
Halla Bára Gestsdóttir
Gunnar Sverrisson
homeanddelicious.com
1. Kókosskonsur
40 g kókosmjólk
2 msk. hunang eða agavesíróp
4 msk. hveiti eða heilhveiti
6 dl kókosmjöl
½ tsk. salt
2 tsk. lyftiduft
3 egg, hrærð
4 msk. púðursykur eða hrásykur
Komið upp vægri suðu á kókosmjólk
og hunangi/agavesírópi. Blandið þurr-
efnum saman fyrir utan sykurinn.
Hrærið kókosmjólkina saman við
þurrefnin. Hrærið eggin varlega saman
við svo úr verði mjúk blanda. Þetta
má gera kvöldið áður og láta standa í
ísskáp.
Hitið pönnu, pönnukökupönnu en
helst pönnu sem ekki festist við, á
rúmlega miðlungshita. Látið smjör-
klípu á pönnuna. Setjið um tvær mat-
skeiðar af deigi á pönnuna fyrir hverja
skonsu, stráið örlitlum sykri yfir. Snúið
skonsunni við þegar loftbólur mynd-
ast. Gætið þess að baka ekki of mikið,
slíkt gerist ansi hratt. Skonsurnar eiga
að vera gullnar að lit. Berið fram og
borðið heitar.
2. Amerískar pönnukökur með
bláberjasírópi
Bláberjasíróp:
170 g bláber*
4 msk. púðursykur eða hrásykur
4 msk. maple-síróp
2 msk. vatn
2½ dl hveiti eða heilhveiti
2½ dl spelt
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. natron
5 msk. púðursykur eða hrásykur
½ tsk. salt
4 msk. birkifræ
5½ dl súrmjólk eða ab-mjólk
2 egg, hrærð
2 msk. brætt smjör
Byrjið á sírópinu; setjið sykur, síróp
og vatn í pott ásamt helmingi af
berjum. Látið sjóða þar til berin fara
að mýkjast vel og springa. Takið þá af
hitanum og þrýstið sírópinu í gegnum
sigti þannig að hýðið af berjunum sitji
eftir. Setjið heilu berin út í sírópið.
Hrærið þurrefnin saman í deigið.
Setjið súrmjólk, egg og brætt smjör
saman við og hrærið vel svo úr verði
nánast kekkjalaust deig.
Hitið pönnukökupönnu en helst
pönnu sem ekki festist við, á rúmlega
miðlungshita. Bræðið örlitla smjör-
klípu á pönnunni. Setjið um 4 msk. af
deigi á pönnuna fyrir eina pönnuköku.
Snúið við þegar loftbólur myndast.
Gætið þess að baka ekki of mikið,
slíkt gerist ansi hratt. Berið fram með
bláberjasírópinu og borðið þær heitar.
*Hér má að sjálfsögðu nota önnur ber
í sírópið.
3. Grófar vöfflur
50 g spelt
50 g hveiti
50 g hveilhveiti
50 g haframjöl, malað í matvinnsluvél*
1½ msk. birkifræ
1 msk. hrásykur
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
4½ dl súrmjólk
3 egg, hrærð
3 msk. brætt smjör
3 msk. olía; isio, vínberja- eða önnur létt
olía
Hrærið saman þurrefnin. Hrærið
saman súrmjólk, egg og olíu. Blandið
saman svo úr verði mjúkt deig. Nú
verður vöfflujárn hvers og eins að
ráða ferðinni upp á hitann á járninu.
En bakið vöfflur og gott er að leggja
hverja og eina vöfflu á grind þegar hún
er tekin úr járninu, ekki stafla þeim
beint upp, svo vafflan nái að haldast
stökk og seig.
Berið fram með smjöri og sírópi,
hrásykri, ferskum berjum, skornum
eplum, nutella, grískri jógúrt, ís, rjóma
– eða smjöri og osti, marmelaði, góðu
salati eða hverju sem hugurinn girnist.
*Setjið haframjölið í matvinnsluvél
og malið þar til það verður fínt sem
heilhveiti. Þessu má sleppa og bæta
þá við sama magni af spelti, hveiti eða
heilhveiti.
Nýtt– upp á gamla mátann
Pönnukökur, skonsur, vöffl ur og fl eira í þeim dúr stendur svo sannarlega fyrir sínu þegar kemur að bakstri og því að kalla fram góðgæti
á skammri stundu. Uppskrift irnar hér fara örlítið aðrar leiðir þegar kemur að þessari klassík– dálítið meiri hollusta þegar deigið er út-
búið og áhugaverðar útfærslur á meðlæti.
www.volkswagen.is
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
Þ
ak
bo
ga
r
Volkswagen Polo
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km*
Þarfir okkar eru misjafnar og við leitum leiða til
þess að uppfylla þær. Volkswagen Polo er öruggur,
hagkvæmur og þægilegur bíll sem mætir þínum
þörfum fullkomlega.
Komdu og reynsluaktu nýjum Volkswagen Polo í dag.
Polo Trendline 1.2 bensín, 70 hestafla,
beinskiptur
Polo kostar aðeins frá
2.550.000 kr.
* Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Polo Trendline 1.2 TDI
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Polo
2
31