Fréttablaðið - 23.02.2013, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 20134
LUKTAHÁTÍÐ Í KÍNA
Fjöldi fólks tók þátt í
luktahátíð til að fagna lokum
vorhátíðar þann 21. febrúar
síðastliðinn í Rizhao í Kína.
Kínverska nýárshátíðin hefst á
gamlárskvöldi hins kínverska
dagatals og daginn eftir hefst
vorhátíðin á fyrsta degi fyrsta
mánaðar tungldagatalsins.
Þetta er sú hátíð sem er
Kínverjum mikilvægust og er
ríkust af hefðum, rétt eins og
jólin fyrir flestum Vesturlandabúum. Á 15. degi fyrsta mánaðar tungl-
dagatalsins lýkur vorhátíðinni og nefnist sá dagur Luktahátíðin.
Ljósin skína skært á ljósahátíð í Kína.
NORPDICPHOTOS/GETTY
Sumir leggja mikið á sig til að komast í hinn alræmda hálofta-
klúbb eða mile-high club upp á engilsaxnesku. Slíkt getur verið
áhættusamt enda ekki vel séð að pör séu að láta vel hvort að öðru í
farþegarými eða inn á flugvélasalernum.
Nú hefur breskt fyrirtæki wish.co.uk fundið lausn fyrir þá sem
þrá að komast í klúbbinn. Boðið er upp á sérstakar flugferðir í
einkaflugvélum þar sem pör geta átt huggulega stund, dreypt á
kampavíni, gætt sér á súkkulaði og dundað sér við að gera dodo.
Þeir sem það kjósa geta beðið um silkirúmföt, rómantíska lýsingu
og jafnvel rósarblöð sem dreift er um farþegarýmið.
Eins og allt annað í lífinu er þessi upplifun þó ekki gefins og
kostar litlar 4.999 pund eða um 980 þúsund krónur. Ekki lítið verð
fyrir einnar klukkustundar ánægju.
Nánari upplýsingar um þennan lúxusháloftaklúbb má finna á
vefsíðunni wish.co.uk/mile-high-club.
Í háloftaklúbbinn
fyrir rétta verðið
Nú er hægt að kaupa sér leið inn í háloftaklúbbinn.
Það eru ótrúlega spenn-andi hlutir að gerast í ferða-málum á Suðurnesjum. At-
vinnuþróunarfélag Suðurnesja tók
yfir rekstur Markaðsstofu Suður-
nesja um áramótin og hefur nafni
hennar verið breytt í Markaðsstofu
Reykjaness. Búið er að ráða Þur-
íði Halldóru Aradóttur sem verk-
efnastjóra Markaðsstofunnar og
lögð er áhersla á að auka sam-
starf fyrir tækja í ferðaþjónustu og
við fyrirtæki á svæðinu í öðrum
greinum atvinnulífsins,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson, upplýs-
inga- og þróunarfulltrúi Grinda-
víkurbæjar. Hann á jafnframt á
sæti í nýrri stjórn Ferðamálasam-
taka Suðurnesja en þar varð einnig
upp stokkun fyrr í vetur. Það er því
óhætt að segja að ferðaþjónustan
á Suðurnesjum gangi í gegnum
miklar breytingar þessi misserin.
Að sögn Þorsteins eru miklar
vonir bundnar við ráðningu Þur-
íðar. Hún er með B.Sc. í ferða-
málafræði og hefur lokið námi
í markaðssamskiptum og al-
mannatengslum frá Há skólanum
í Reykjavík. Hún var markaðs- og
kynningarfulltrúi hjá Rangár-
þingi eystra og forstöðumaður
Söguseturs Hvolsvallar auk þess
sem hún sá um rekstur upplýs-
ingamiðstöðva. Þuríður sat jafn-
framt í undirbúningshópi fyrir
Kötlu Geopark project.
Spennandi jarðvangur
„Það verkefni sem mér finnst mest
spennandi á Reykjanesi um þessar
mundir er nýstofnaður jarðvang-
ur, Reykjanes
G e opa rk , en
þetta er sjálfs-
eignarstofnun
sem sveitarfé-
lögin á Suður-
nesjum höfðu
forgöngu um að
stofna. Þá hafa
fulltrúar fræða-
og atvinnulífs á
svæðinu komið
að verkefninu. Reykjanesjarð-
vangur hefur skilað inn um-
sókn um aðild að European Geo-
parks Network (EGN) og um leið
UNESCO Global Geoparks Net-
work. Umsóknin er yfirgrips mikil
og tekur til margra ólíkra þátta,
s.s. ferða-, umhverfis-, efnahags-
og fræðslumála,“ segir Þorsteinn.
Eftir miklu er því að slægjast
með aðild að alþjóðlegum sam-
tökum jarðvanga en hug myndin
á bak við samtökin er að koma
á tengslum milli svæða með
áhugaverðar jarðminjar, miðla
upplýsingum og reynslu, leysa
sameigin leg vandamál og koma
svæðunum á framfæri.
Að sögn Þorsteins er aðal-
atriðið að ferðaþjónustan á
Suður nesjum vinni vel og mark-
visst saman til þess að ná betri ár-
angri. „Á Suðurnesjum eru allar
forsendur til þess að ferðaþjón-
ustan blómstri í framtíðinni. Hér
er alþjóðlegur f lugvöllur og vin-
sælasti ferðamannastaður lands-
ins, Bláa lónið. Jarðvangurinn er
góð viðbót enda er náttúran hér
stórbrotin með sínu mikla háhita-
svæði með tilheyrandi hverum
og gufustrókum, hraunbreiðum
og heimsþekktum fuglabjörgum
sem dýralífsunnendur mega alls
ekki láta fram hjá sér fara,“ segir
Þorsteinn.
Hann bendir á að á Suður-
nesjum er mikil saga nánast
við hvert fótmál. Þar eru mikl-
ar og fagrar strendur, ólgandi
brim, gamlar kirkjur hver með
sinn sjarma og sína gömlu sögu,
gamlar minjar og sel. Ekki má
gleyma söfnunum á Suðurnesjum
sem spila stórt og geysilega veiga-
mikið hlutverk í menningu Suður-
nesjamanna, svo eitthvað sé nefnt.
Reykjanesskaginn leynir á sér
Ferðalangar velja sjaldan Reykjanesið sem fyrsta valkost þegar ferðast er um landið. Þangað er þó margt áhugavert og skemmtilegt
að sækja eins og fallegar strendur, merkar minjar og söfn. Miklar vonir eru bundnar við nýstofnaðan Jarðvang á Suðurnesjum.
Svartsengi við Bláa lónið á Reykjanesi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Þorsteinn Gunnars-
son, upplýsinga-
og þróunarfulltrúi
Grindavíkurbæjar.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
56
3
53
Borgarferðir
Osló
Billund
Köben
frá9.900kr.
frá14.900kr.
frá9.900kr.
febrúar og mars
aðra leið með sköttum.
á frábæru verði
maí, júní, júlí, ágúst og september
aðra leið með sköttum.
mars, apríl og maí
aðra leið með sköttum.