Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 2
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Sunneva, ertu nú orðin öllum
hnútum kunnug?
„Já, ég þarf allavega ekki að fara í
sjómannaskólann eftir þetta.“
Sunneva Sverrisdóttir er annar stjórnenda
þáttarins Tveir plús sex, sem hefur göngu
sína á Popptívi í kvöld. Þar var meðal annars
fylgst með ástundun BDSM-kynlífs.
UMHVERFISMÁL Ef sektir fyrir að fleygja rusli á
almannafæri eiga að þjóna tilgangi sínum og hafa
fælingarmátt þarf hert eftirlit og hærri sektir.
Þetta segir deildarstjóri umhverfis- og úrgangs-
stjórnunar hjá Reykjavíkurborg.
Að því er segir í umsögn deildarstjórans til
umhverfis- og skipulagsráðs hefur lögreglan ein-
staka sinnum sektað fólk fyrir að henda rusli. Upp-
hæð sektarinnar fer eftir eðli og umfangi brotsins
en lágmarkssekt er tíu þúsund krónur.
„Árið 2007 voru sautján sektaðir fyrir að fleygja
rusli og fimm árið áður. Sektum fyrir að fleygja
rusli á almannafæri hefur ekki verið beitt að neinu
ráði síðustu ár, meðal annars vegna anna og mann-
eklu innan lögreglunnar,“ segir í umsögninni, sem
tekin var saman vegna ábendingar á vefnum Betri
Reykjavík um refsingar fyrir að henda rusli. Þar
lýstu sig 105 fylgjandi því en tíu sögðust andvígir.
Deildarstjórinn segir beinan kostnað vegna
hreinsunar rusls í borgarlandinu nema um 60
milljónum króna. Skoða megi hvort sekta eigi
fólk á staðnum. „Rétt er að benda á að það að
sekta einstaklinga fyrir að henda rusli eitt og sér
mun einungis taka á hluta vandans þar sem rusl
á almannafæri á sér fleiri uppsprettur,“ segir í
umsögninni. - gar
Beinn kostnaður borgarinnar vegna rusls á almannafæri er 60 milljónir á ári:
Sektum gegn rusli er ekki beitt
RUSL Í MIÐBORGINNI Fleiri ruslastampar og aukin fræðsla
eru meðal þess sem borgin er sögð geta beitt gegn rusli á
almannafæri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VÍSINDI Lofttegundir sem eldfjöll spúðu út í andrúmsloftið gætu skýrt
hvers vegna spár um hækkandi hitastig á fyrsta áratug aldarinnar
gengu ekki eftir, að mati vísindamanna við Colorado-háskóla í Banda-
ríkjunum.
Eldfjöllin hafa líklega orðið þess valdandi að hitastigið hækkaði allt
að fjórðungi minna en spáð var frá árinu 2000 til 2010, ef marka má
niðurstöður vísindamannanna.
Þetta þýðir að vísindamenn verða að taka meira tillit til meðalstórra
og minni eldfjalla þegar þeir reyna að meta breytingar á umhverfinu,
að mati vísindamannanna. - bj
Hlýnun loftslags minni en spáð var á síðasta áratug:
Eldgos tempra hlýnun jarðar
FJÖLMIÐLAR Steinunn Stefáns-
dóttir, aðstoðarritstjóri Frétta-
blaðsins, lét af störfum á blaðinu
í gær, sam-
kvæmt sam-
komulagi við
365 miðla,
útgáfufyrir-
tæki blaðsins.
Steinunn
hefur starfað á
Fréttablaðinu
frá upphafi,
í tólf ár, og
sem aðstoðar-
ritstjóri frá 2006.
Steinunn segir að með ráðn-
ingu nýs ritstjóra að blaðinu hafi
þetta orðið hennar niðurstaða.
„Ég held að tveir ritstjórar og
aðstoðarritstjóri sé of mikið,“
segir Steinunn, sem segist kveðja
sátt en hefur ekki ákveðið hvað
hún tekur sér fyrir hendur.
Breytingar á Fréttablaðinu:
Steinunn lætur
af störfum
VIÐSKIPTI Björgólfur Jóhanns-
son, forstjóri Icelandair Group,
var kjörinn formaður Samtaka
atvinnulífisns á
aðalfundi sam-
takanna í gær.
Hann tekur við
af Vilmundi
Jósefssyni, sem
hafði gegnt
embættinu í
fjögur ár en gaf
ekki kost á sér
til áframhald-
andi setu.
Björgólfur fékk 98,5% greiddra
atkvæða í rafrænni kosningu
meðal aðildarfyrirtækja samtak-
anna. Björgólfur hefur verið for-
stjóri Icelandair Group frá árinu
2008 en starfaði áður í sjávar-
útvegi í áratugi og var stjórnar-
formaður stjórnar Landssamtaka
íslenskra útvegsmanna. - mþl
Hlaut yfirburðakosningu:
Björgólfur nýr
formaður SA
GOS Stór eldgos eins og gosið í Eyjafjallajökli vekja athygli en minni gos hafa einnig
mikil áhrif. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STEINUNN
STEFÁNSDÓTTIR
BJÖRGÓLFUR
JÓHANNSSON
ALÞINGI Þingmenn stjórnarflokkanna og
Bjartrar framtíðar munu leggjast gegn
því að ný vantrauststillaga Þórs
Saari, þingmanns Hreyfingar-
innar, verði tekin á dagskrá
í dag eins og hann fer fram
á, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Þeim er meira
í mun að nýtt stjórnarskrár-
frumvarp sem forystumenn
flokkanna þriggja lögðu fram
í gær verði rætt og eftir
atvikum afgreitt.
Nýja frumvarpið,
sem Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingar innar, Katrín Jakobsdóttir, for-
maður Vinstri grænna, og Guðmundur
Steingrímsson, formaður Bjartrar fram-
tíðar, mæla fyrir kveður aðeins á um eina
stjórnarskrárbreytingu: að ekki þurfi
lengur tvö þing til að breyta stjórnarskrá,
heldur sé nóg að 60 prósent þingheims
samþykki slíka breytingu, og í kjölfarið
60 prósent þátttakenda í almennri þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Samhliða lögðu þremenningarnir fram
þingsályktunartillögu um að skipuð skyldi
fimm manna þingnefnd sem hefði það að
markmiði að vinna áfram að framgangi
annarra stjórnarskrárbreytinga.
Þór Saari lagði fram vantrauststillögu
gegn ríkisstjórninni í gær og óskaði eftir
því að hún yrði tekin á dagskrá í dag. Það
er forseta Alþingis, Ástu Ragn-
heiðar Jóhannesdóttur, að
ákveða hvort borin verður
upp tillaga þess efnis. Ekki
náðist í hana í gær, en heim-
ildir blaðsins herma sem áður
segir að stjórnarliðum og tví-
menningunum í Bjartri framtíð
hugnist það ekki. - sh
Liðsmenn stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar vilja ræða stjórnarskrármál frekar en vantraust í dag:
Vantrauststillagan gæti beðið til morguns
SKATTAMÁL Af um þrjú þúsund
einstaklingum sem greiddu
auðlegðar skatt árið 2012 greiddu
um 260 stærstan hluta heildar-
tekna sinna frá árinu á undan í
opinber gjöld. Þeir sem greiða
auðlegðarskatt eru að stofninum
til einstaklingar sem eru 65 ára
og eldri.
Þetta kemur fram í svari Katr-
ínar Júlíusdóttur, fjármála- og
efnahagsráðherra, við fyrirspurn
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokks, um
auðlegðar skatt í gær.
Í fyrirspurn Guðlaugs er spurt
hversu stór hluti þeirra sem
greiddu skattinn greiddi meira en
75% en minna en 100% af tekjum
sínum í opinber gjöld. Það eru
1,9% af heildarfjölda þeirra sem
greiddu skattinn, eða um sextíu
manns. Þegar spurt var hversu
margir greiddu meira en helming
en minna en 75% af tekjum sínum
í opinber gjöld er svarið 6,4%
sem greiddu skattinn, eða um 200
manns.
„Uppistaðan af því fólki sem
greiðir þennan skatt er fólk sem
fékk ekki að greiða í lífeyris-
sjóð og þurfti því að gera eigin
ráðstafanir. Fólk sem eignað-
ist góðar skuld lausar eignir sem
þarf núna að selja þær til að
borga skattinn. Enginn sem þarf
að borga svona hátt hlutfall af
tekjum sínum í skatt getur mætt
þessu með öðrum hætti. Það hefur
verið hrópað mannréttindabrot af
minna tilefni en þessu,“ segir Guð-
laugur.
Auðlegðarskattur, sem var tek-
inn upp í lok árs 2009, er lagður
á einstaklinga sem eiga eignir
umfram 75 milljónir króna og hjón
sem eiga eignir umfram 100 millj-
ónir króna. Um þriðjungur þeirra
sem greiða skattinn eru 65 ára
eða eldri og margir þeirra hafa
innan við fimm milljónir króna
í árstekjur en eignir bundnar í
húsnæði sem engar tekjur eru af.
Eignastýring Íslandsbanka, meðal
annarra, hefur birt greiningar
sem sýna þetta. Skatturinn átti að
vera tímabundinn til þriggja ára
en var síðar framlengdur og hann
hækkaður.
Guðlaugur bendir á að marg-
ar þeirra þjóða sem lagt hafa á
eignaskatt sem þennan hafa lagt
hann af fljótlega. Í Þýskalandi
var hann ekki talinn samræm-
ast stjórnarskrá landsins. „Þegar
þessi skattur var lagður á hér var
þessi þróun erlendis ekki höfð til
hliðsjónar,“ segir Guðlaugur.
svavar@frettabladid.is
260 borga mest allt
sitt í auðlegðarskatt
Nokkur hundruð manns borga stóran hluta tekna sinna í auðlegðarskatt. Yfirleitt
er um fólk að ræða sem er 65 ára og eldra. Stór hópur hefur innan við fimm
milljónir í árstekjur. Eignasala er oft eina lausnin til að mæta skattinum.
ÆVIKVÖLDIÐ Þeir sem greiða auðlegðarskatt eru gjarnan 65 ára og eldri með undir
fimm milljónir í árslaun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það hefur verið
hrópað mannréttindabrot
af minna tilefni en þessu.
Guðlaugur Þór Þórðarson
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
SPURNING DAGSINS
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
ÍSLENSKUR OSTUR
100%