Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 6
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi, Holtum, föstudaginn 26. mars 2010 og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Reykjavík, 9. mars 2010. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. l l s svf. ver ur haldinn á Goðalandi Fljó shlíð, föstudagi n 22. mars 2013 og hefst kl. 15:00. f l si s. r l, l l il r á fra á a alfundi þurfa að vera fl í r stj r arinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir 6 3 meiri orku Orkulausnir henta þeim sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda. Hentar vel þeim sem vilja byggja upp orku vegna vefjagigtar eða eftir veikindi. SAMFÉLAGSMÁL Börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi eru meira ein- mana en önnur börn, sýna frekar áhættuhegðun, líður verr í skól- anum og finnst framtíðin dekkri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem kemur út í dag. Í skýrslunni er fjallað um ýmiss konar ofbeldi gegn börnum, kynferðislegt, heimilisofbeldi, ein- elti og vanrækslu. „Þetta er graf- alvarlegt mál og kallar á skýr við- brögð samfélagsins,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmda- stjóri UNICEF á Íslandi. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að börn sem hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi heima fyrir eru miklu líklegri en önnur til þess að reykja, drekka og neyta kannabisefna. Nær helmingi stúlkna finnst framtíð sín oft eða nær alltaf vera vonlaus og í kring- um 15 til 30 prósentum drengja. Þá er tilkynnt um vanrækslu á börnum í þrjú þúsund skipti á hverju ári, en vanræksla er van- ræktur flokkur ofbeldis að sögn Barnahjálparinnar. „Sama hver er aldur barns er líklegast að brot gegn barninu eigi sér stað inni á heimili brotaþola, ofbeldismanns eða á sameiginlegu heimili. Eftir því sem barnið er yngra er líklegra að ofbeldis maður sé tengdur brotaþola í gegnum fjöl- skyldu,“ segir um kynferðis legt ofbeldi gegn börnum. „Það sem gögnin sýna er að skýr tengsl eru á milli andlegrar van- líðanar og þess að hafa orðið fyrir ofbeldi,“ segir Stefán Ingi. Hann segir það kunna að sæta furðu að öll gögnin sem skýrslan byggir á hafi legið fyrir áður. Tölurnar hafi einfaldlega ekki verið skoðaðar með þessum hætti. „Mikið magn upplýsinga er til staðar hjá ýmsum stofnunum í samfélaginu en þær eru ekki greindar með skipulögð- um hætti.“ thorunn@frettabladid.is Tilkynnt um átta vanrækt börn á dag Barnaverndaryfirvöld fá þrjú þúsund tilkynningar um vanrækslu á börnum á ári og allt að fjögur þúsund börn búa við heimilisofbeldi. Allt ofbeldið hefur víð- tækar afleiðingar en mælingar skortir frá hinu opinbera, segir í skýrslu UNICEF. Stelpa 1: „Ég var að hugsa um ofbeldi og barnavernd og fór strax að hugsa um hvað kerfið er lengi að koma öllu í gegn, frá því að maður segir frá og þangað til eitthvað gerist. Öll biðin á milli. Að bíða eftir því hvort það verði dæmt í málinu tekur ár.“ Stelpa 2: „Þetta er lengri tími heldur en dómurinn sem gerandinn fær, ef hann er þá dæmdur.“ Strákur: „Ég veit ekki hvað gerði það að verkum að ég sagði frá en mér leið í alvöru eins og ég hefði unnið í lottói þegar ég var búinn að því. Ég sagði mömmu minni frá þessu fyrst þegar ég var barn. Ég sá auglýsingu um alnæmi þegar ég hef verið svona 10 ára og þá vildi ég vita hvernig maður fengi alnæmi. Ég var orðinn alveg viss um að ég væri með alnæmi.“ Tilvitnanirnar eru af fundi með sérfræðihópi barna hjá UNICEF. Bið barnanna lengri en dómur gerenda 40% þeirra sem verða fyrir einelti fi nna fyrir vanlíðan og kvíða – 2-4% þeirra sem ekki verða fyrir einelti fi nna fyrir vanlíðan og kvíða. 2.909 tilkynningar um vanrækslu berast barnavernd á hverju ári, eða átta á dag. 1 af hverjum 23 börnum á Íslandi hefur orðið fyrir líkamlegu ofb eldi á heimili sínu. Það eru 4,4 prósent barna. 2-4.000 börn eru beitt eða búa við heimilisofb eldi á hverju ári. 56% kynferðisbrota gegn börnum eru mjög gróf. Stúlka er 12 sinnum líklegri til að reykja daglega ef hún hefur orðið fyrir kynferðis- legu ofb eldi og drengur 7 sinnum líklegri. 1. Íbúar hvaða landa halda fullri starfsorku lengst í Evrópu? 2. Hvað heitir forstöðumaður geð- deildar Sjúkrahússins á Akureyri? 3. Fyrir hvaða stjórnmálafl okk situr tónlistarmaðurinn Mugison í heiðurs- sæti? SVÖR: 1. Svíþjóðar, Noregs og Möltu 2. Sigmundur Sigfússon 3. Bjarta Framtíð SAMFÉLAGSMÁL „Það er mjög brýnt að byrja á því að kynja- skipta afeitrun inni og skoða þessar kvennameðferðir sem eru í gangi til að sjá hvað má betur fara,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og stofnfélagi Rótarinnar – félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Félagið var stofnað í byrjun sem Kvenfélag SÁÁ, en hefur nú klofið sig úr samtökunum vegna samskiptaörðugleika við formann félagsins, Gunnar Smára Egilsson. Hann vísaði öllum ásökunum á bug í fjölmiðlum í vikunni og sagði árekstrana fyrst og fremst vera á milli Rótarinnar og sérfræðinga innan SÁÁ. Ilmur segir forsvarsmenn félags- ins hafa hrokkið í vörn þegar Kven- félag SÁÁ var stofnað og tekið það sem gagnrýni á starfið. „Það er einhver vörn í gangi sem við skilj- um ekki,“ segir hún. „Þeir eru við- kvæmir fyrir því að við segjum að þetta sé karllæg meðferð og þeir séu að gera eitthvað vitlaust - en það er ekki rétt. Það eina sem við viljum gera er að skoða hlutina og reyna að betrumbæta.“ Ilmur segir það þekkta staðreynd að færri konur en karlar leiti sér aðstoðar vegna fíknivanda og setur spurningarmerki við það. „Áttatíu prósent kvenna inni á Vogi hafa til að mynda orðið fyrir einhvers konar ofbeldi og þessar upplýsingar eru ofan í skúffu,“ segir hún. „Við þurfum að færa úrræðin sem við bjóðum upp á inn í 21. öldina.“ - sv Rótin klauf sig út úr SÁÁ vegna samskiptaörðugleika við formanninn og gagnrýnir „karllæga“ meðferð: Vilja sérstaka afeitrunarmeðferð fyrir konur STOFNFUNDUR HALDINN Á MORGUN Ilmur Kristjánsdóttir er einn stofnenda Rótarinnar, félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÍNA Gríðarleg reiði hefur brot- ist út í Kína eftir að þjófur stal bíl fyrir utan verslun í borginni Changchun á mánudag og kyrkti í kjölfarið barn sem hann uppgötv- aði að svæfi í aftursætinu. Þjófur- inn gróf barnið síðan í fönn. Maðurinn gafst upp á þriðjudag í miðri dauðaleit 3.500 lögreglu- manna að honum. Málið hefur vakið mikla hneykslan. Margir hafa krafist þess opinberlega að morðinginn fái dauðarefsingu en foreldrar barnsins hafa einnig fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir að gæta þess ekki nógu vel. Faðir barnsins, eigandi verslunar innar sem bíllinn stóð fyrir utan, hafði skilið bílinn eftir opinn og í gangi á meðan hann stökk inn til að tendra eld í kuld- anum. Þá hefur mörgum sömu leiðis þótt auglýsingaherferð sem Buick-bílaframleiðandinn efndi til í framhaldinu í svívirðileg. Þar eru bílarnir auglýstir sem full- komlega öruggir og sérstaklega einblínt á GPS-kerfi sem gerir eigandanum kleift að slökkva á bílnum og læsa honum hvaðan sem er. Með auglýsingunum fylgja myndir af barninu, sem nú er látið. - sh Hneykslunaralda ríður yfir Kína vegna barnsmorðs og viðbrögðum við því: Stal bíl með barni og myrti það VEISTU SVARIÐ? ➜ Bílaframleiðandinn Buick hefur bara gert illt verra með auglýsingaherferð sem flestum finnst í meira lagi ósmekkleg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.