Fréttablaðið - 07.03.2013, Síða 8
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Inngangur
að lögfræði
Ketilbjöllur
3.350 kr.
8.390 kr.3 nætur
á Mývatni 46.370 kr.
Vefverslun á að
virka alls staðar
Meira en helmingur Íslendinga notar netið með farsímum
og spjaldtölvum. Er þín vefverslun tilbúin?
Fáðu frekari upplýsingar á borgun.is/vefgreidslur eða í síma 560 1600
NÁM Í
DANMÖRKU
EÐA SVÍÞJÓÐ
Námskynning verður í Sunnusal á
Hótel Sögu laugardaginn 9. mars
frá kl. 12–16.
Eftirfarandi háskólar munu kynna:
- Syddansk Universitet, www.sdu.dk
- Högskolan í Skövde, www.his.se
- Luleå Tekniska Universitet, www.ltu.se
Ennfremur munu eftirfarandi danskir háskólar, sem eru með lengri
og styttri nám á háskólastigi kynna sína skóla:
- Erhvervsakademi Kolding, www.eakolding.dk
- Erhvervsakademi Lillebælt, www.eal.dk
- Erhvervsakademi Sydvest, www.easv.dk
- University College Sjælland, www.ucsj.dk
- VIA University College, www.via.dk
Margir skólanna kenna á ensku. University College Sjælland mun
kynna alþjóðlegt kennaranám á ensku, sem er nýjung hjá þeim,
sjá nánar á www.ucsj.dk/ite
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknis-
embættinu hefur enn ekki borist
greinargerð frá forsvarsmönnum
geðdeildar Sjúkrahússins á Akur-
eyri varðandi sjálfsvíg sjúklings
á deildinni í október síðastliðnum.
Embættið ítrekaði beiðnina í
janúar, en hefur enn ekki fengið
svör. Samkvæmt lögum ber Land-
lækni að rannsaka öll óvænt atvik
sem koma upp innan heilbrigðis-
stofnana, en rannsóknin á sjálfs-
víginu á Akureyri hefur tafist
vegna greinargerðarinnar.
Fréttablaðið greindi frá því
í gær að í úttekt Landlæknis á
Sjúkrahúsinu á Akureyri komi
fram að aðbúnaður sjúklinga á
geðdeildinni sé óviðunandi og
óforsvaranlegur. Starfsfólk óttist
um öryggi sjúklinga, mannekla sé
mikil og álag viðvarandi. Biðlistar
lengjast stöðugt og eftirspurn eftir
þjónustu hefur aukist jafnt og þétt
undanfarin ár, þá sér í lagi eftir
lokun dagdeildar árið 2010.
Tveir inniliggjandi sjúklingar
hafa framið sjálfvíg inni á geð-
deild sjúkrahússins undanfarin
tvö ár og er Landlæknir með það
síðara í skoðun, eins og fyrr segir.
sunna@frettabladid.is
Hefur enn ekki skilað
umsögn um sjálfsvíg
Landlæknisembættinu hefur enn ekki borist greinargerð frá Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri um sjálfvíg sjúklings. Embættinu ber að skoða málið en rannsókn tefst sökum
þessa. Faðir sjúklings segir þjónustuna á Norðurlandi fyrir neðan allar hellur.
SEINAGANGUR Á GEÐDEILDINNI Landlæknir ítrekaði beiðni sína eftir greinargerð
geðdeildarinnar um sjálfsvíg sjúklings í janúar. Enn hafa engin svör borist frá sjúkra-
húsinu.
Norðlenskur faðir reyndi árangurslaust í meira en þrjár vikur að ná sam-
bandi við lækna á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri vegna sonar síns sem
á við geðræn vandamál að stríða. Maðurinn, sem vill ekki koma fram undir
nafni, segist ítrekað hafa skilið eftir skilaboð á deildinni, sent pósta og
beðið um samband við lækna en engin svör fengið. Eftir meira en þrjár
vikur sagðist maðurinn ætla að fara með málið til Landlæknis ef engin
svör bærust. Þegar hann svo gerði það fékk hann símtal frá geðlækni
sjúkrahússins daginn eftir að kvörtun hans var lögð inn til Landlæknis.
Maðurinn segir þjónustu við sjúklinga á Norðurlandi fyrir neðan allar
hellur og bendir á að ástandið sé sérstaklega slæmt utan Akureyrar í
minni bæjarsamfélögum.
Beið í meira en þrjár vikur eftir samtali