Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 10
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
50% afsláttur af
lántökugjöldum
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Það er gaman að fá sér nýjan bíl.
Í mars býður Ergo 50% afslátt af lántökugjöldum bílalána og bílasamninga þegar
þú fjármagnar kaup á bíl. Það gildir einu hvort bíllinn kemur beint úr kassanum eða
er kominn með reynslu.
Við aðstoðum þig með ánægju!
E
N
N
E
M
M
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
/
S
ÍÍ
N
M
5
6
9
3
6
8
8
HUGO CHAVEZ FRIAS 1954-2013
■ 28. júlí 1954 Hugo Rafael Chavez
Frias fæddur í Sabaneta í Venesúela.
■ 1971-75 Nám í herskóla Venesúela.
Þróar kenningu um að herinn eigi að
grípa til aðgerða gegn spilltum stjórn-
málamönnum.
■ 1982 Stofnar Byltingarhreyfingu
Bolivars 200, leynihóp innan hersins
innblásinn af hugmyndum þjóðhetj-
unnar Simons Bolivar.
■ 1992 Settur í fangelsi eftir að hafa reynt
að steypa Carlos Perez forseta af stóli.
■ 1994 Náðaður af Rafael Caldera
forseta Venesúela.
■ 1997 Stofnar Hreyfingu fimmta lýðveldisins
og boðar félagslegar og efnahagslegar umbætur.
■ 1998 Sigrar í forsetakosningum með
56 prósent atkvæða.
■ 1999 Setur af stað
Bolivar-áætlunina
um stóraukna vel-
ferðarþjónustu, gerir
stjórnarskrárbreyting-
ar og breytir nafni
ríkisins í Bólívarska
lýðveldið Venesúela.
■ 2000 Endurkosinn forseti. Færir
hverja ríkisstofnunina á fætur annarri
undir yfirráð sín. Gerir skiptasamning
við Kúbu um olíu fyrir lyf.
■ 2002 Tilraun gerð til að ráða
Chavez af dögum.
■ 2006 Endurkosinn forseti með
63 prósentum atkvæða.
■ 2009 Samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu að afnema hámarkslengd
forsetatíðar, þannig að hann geti setið
lengur en tvö kjörtímabil í embætti.
■ Júní-júlí 2011 Undirgengst
krabbameinsmeðferð á Kúbu.
■ Október 2012 Vinnur sigur í
forsetakosningum í fjórða sinn með
55 prósentum atkvæða.
■ Desember Aftur í krabbameins-
meðferð á Kúbu. Tilefnir Nicolas
Maduro varaforseta arftaka sinn.
■ Febrúar 2013 Aftur til Venesúela.
■ 5. mars 2013 Hugo Chavez forseti
tapar baráttunni við krabbameinið og
deyr, 58 ára gamall.
© Graphic News
VENESÚELA, AP Viðbrögðin við
andláti Hugo Chavez, forseta
Venesúela, hafa ýmist verið sorg
eða gleði. Aðdáendur hans gráta
hástöfum en aðrir fagna því að
þessi umdeildi leiðtogi sé farinn
frá.
Töluverð óvissa ríkir þó um
hvað við tekur nú þegar Chavez
er farinn. Efna þarf til forseta-
kosninga innan 30 daga og sjálfur
hafði Chavez hvatt landsmenn til
að kjósa varaforseta sinn, Nicolas
Marduro.
Stemmningin í kringum
íburðar mikla jarðarför, sem
haldin verður á næstunni með
lang orðum lofgjörðum um Cha-
vez, mun vafalaust styrkja stöðu
Marduros en hann getur þó engan
veginn gengið að sigri vísum.
Fátækari hluti landsmanna mun
að vísu flykkja sér um Marduro,
enda hefur Chavez óspart notað
olíuauð landsins til að styrkja
stöðu fátækra. Helsti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, Henrique
Capriles, á þó einnig mikinn
stuðning meðal þeirra sem hafa
verið ósáttir við stjórnarhætti
Chavez.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch segja stjórnartíð
Chavez hafa einkennst af einræð-
ishneigð og grímulausu virðingar-
leysi fyrir mannréttindum. Hann
hafi í reynd sölsað undir sig
hæstarétt landsins og gengið
hart fram gegn blaðamönnum og
öðrum sem gagnrýndu forsetann
eða stefnu hans.
Hugo Chavez var fyrst kosinn
forseti Venesúela árið 1998 með
56 prósentum atkvæða. Sex árum
áður hafði hann reynt að gera
stjórnarbyltingu og sat tvö ár í
fangelsi.
Eitt fyrsta verk hans í embætti
var að semja nýja stjórnarskrá.
Hann hefur síðan þrisvar verið
endurkosinn forseti, nú síðast í
haust en honum entist ekki heilsa
til að taka við embættinu form-
lega í janúar þegar nýtt kjörtíma-
bil hófst.
Hann veiktist af krabbameini
árið 2011 og hefur nokkrum sinn-
um leitað sér lækninga á Kúbu, en
aldrei hefur verið gert opinbert
nákvæmlega hvaða tegund af
krabbameini það var sem hrjáði
hann. gudsteinn@frettabladid.is
Margir syrgja
sárt en sumir
eru fegnir
Efna þarf til forsetakosninga í Venesúela innan 30
daga, nú þegar Hugo Chavez er látinn. Notaði olíuauð
landsins til að styrkja stöðu fátækra en hefur verið
gagnrýndur fyrir virðingarleysi fyrir mannréttindum.
SJÁVARÚTVEGUR Frysting á loðnu-
hrognum hófst hjá fiskiðjuveri
HB Granda á Akranesi um liðna
helgi og hefur hrognaskurður-
inn og frystingin gengið vel þessa
fyrstu daga. Unnið er allan sólar-
hringinn í loðnuhrognavinnslunni
á Akranesi.
Gunnar Hermannsson, sem
hefur umsjón með vinnslunni,
segir í frétt á heimasíðu
fyrirtækis ins að hrognaþroskinn
sé þegar 100% og vinnslan gangi
eins og best verði á kosið.
Unnið er allan sólarhringinn í
loðnuhrognavinnslunni á Akra-
nesi. Mest er unnið á tveimur
tólf tíma vöktum og vinna um 50
manns á hvorri vakt. Afkastagetan
í frystingunni er um hundrað tonn
á sólarhring en hægt er að skera
og hreinsa mun meira magn.
Að sögn Gunnars verða þau
hrogn sem eru umfram frysti-
getu vinnslunnar send landleiðina
til Vopnafjarðar og fryst þar, en
hrognafrysting er enn ekki hafin
á Vopnafirði. - shá
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn í loðnuhrognavinnslu HB Granda:
Hrogn fryst allan sólarhringinn
ALDINN HÖFÐINGI Víkingur AK var
sendur á loðnu en alla jafna liggur hann
í höfn á Akranesi.
MYND/KARL SIGURJÓNSSON
Mahmoud Ahmadinejad, forseti
Írans, hefur árum saman verið
einn dyggasti aðdáandi Hugo
Chavez. Ahmadinejad segir að
Chavez hafi dáið píslardauða,
því eitthvað gruggugt hafi verið
við sjúkdóminn sem dró hann
til dauða. Hins vegar sagðist
Ahmadinejad sannfærður um að
Chavez muni snúa aftur, „ásamt
hinum réttsýna Jesú og hinum
fullkomna manni“, en með
þessum síðasta á Ahmadinejad
við tólfta ímaminn, þann sem
sjíamúslimar trúa að muni snúa
aftur til jarðar ásamt Jesú til
þess að koma á friði og réttlæti.
Þessar yfirlýsingar Ahmadinejads
gætu hæglega orðið upphafið að
nýjum trúarbrögðum.
Snýr aftur til
jarðar ásamt Jesú
NÍSTANDI SORG „Ég er Chavez“ stend-
ur á skiltunum sem þessir eldheitu
aðdáendur forsetans drógu upp eftir að
frést hafði af láti hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP