Fréttablaðið - 07.03.2013, Side 17
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
RÉTTU DEKKIN
BREYTA ÖLLU
N1 HJÓLBARÐAVERKSTÆÐIN HLJÓTA MICHELIN-VOTTUN 2013
Bíldshöfða 2 Reykjavík sími 440 1318
Réttarhálsi 2 Reykjavík sími 440 1326
Fellsmúla 24 Reykjavík sími 440 1322
Ægisíðu 102 Reykjavík sími 440 1320
Langatanga 1a Mosfellsbæ sími 440 1378
Reykjavíkurvegi 56 Hafnarfirði sími 440 1374
Dalbraut 14 Akranesi sími 440 1394
Grænásbraut 552 Reykjanesbæ sími 440 1372
Hjólbarðaþjónusta N1 er á eftirtöldum stöðum:
Í ERFIÐRI FÆRÐ
Á dögunum hlutu öll hjólbarðaverkstæði
N1 Michelin-vottun 2013 annað árið í röð.
Michelin-vottun tryggir að sölustaður
uppfyllir ströngustu gæðakröfur sem
Michelin gerir um meðhöndlun, þjónustu,
samskipti við sölu og meðferð á vöru sinni.
Flest verkstæði N1 fóru í „excellent“-flokk
sem þýðir að þau náðu yfir 80% þeirra krafna
sem gerðar eru. Hjólbarðaverkstæði N1 eru
þau einu á Íslandi sem hafa þessa vottun.
ORKUMÁL Framkvæmdastjóri
hjá Alþjóðabankanum hefur lagt
til að íslensk stjórnvöld víkki út
hlutverk Jarðhitaskóla Samein-
uðu þjóðanna og bjóði yfirmönn-
um nýrra jarðhitafyrirtækja
erlendis upp á þjálfun hér á landi.
Þetta kom fram í máli Össurar
Skarphéðinssonar utanríkisráð-
herra þegar hann setti alþjóðlega
jarðhitaráðstefnu í Hörpu í gær.
Sri Mulyani Indrawati, fram-
kvæmdastjóri hjá Alþjóða-
bankanum, sagði í erindi sínu
á ráðstefnunni mikilvægt fyrir
aðrar þjóðir að nýta sér þekkingu
og reynslu Íslendinga í jarðhita-
málum.
Hún sagði að minnsta kosti
fjörutíu ríki eiga nægar jarðhita-
auðlindir til að virkja. Vand-
inn við jarðhitann, eins og aðra
endurnýjan lega orkugjafa, væri
hár stofnkostnaður.
Auk þess að víkka út hlutverk
jarðhitaskóla sagði hún mikil-
vægt að sem flestir fjármála-
ráðherrar ríkja sem gætu nýtt
jarðhita heimsæktu landið.
Þannig gætu þeir fengið reynslu
Íslendinga beint í æð og væru
líklegri til að beita sér fyrir fjár-
útlátum til jarðhitaverkefna. Eins
og tilkynnt var seint á síðasta ári
er fram undan viðamikið sam-
starf Íslands og Alþjóða bankans
þar sem leita á að jarðhita í
þrettán ríkjum Austur-Afríku.
Alþjóðabankinn mun byggja
upp 65 milljarða króna sjóð og
munu íslensk stjórnvöld leggja
800 milljónir króna í sjóðinn. Þá
munu Íslendingar aðstoða ríkin
við jarðhitaleit og nauðsynlegar
grunnrannsóknir. - bj
Viðamiklu alþjóðlegu jarðhitaverkefni ætlað að auðvelda ríkjum í Austur-Afríku að nýta jarðhita:
Yfirmenn jarðhitaverkefna fái reynslu hér
RISI Ísland er risi á sviði jarðhita og
mikilvægt fyrir ríki sem ætla að hasla
sér völl á því sviði að nýta reynslu
Íslendinga, sagði Sri Mulyani Indrawati
á jarðhitaráðstefnu í Hörpu í gær.
EVRÓPA Rúm 500 kíló af húsasorpi
féllu til frá hverjum íbúa ESB-
ríkjanna árið 2011, að því er fram
kemur í tölum Euro stat. Um 40%
af því fóru í endurvinnslu eða
voru sett í safnhaug, en 60% fóru
í landfyllingu eða var brennt.
Þetta er talsverð breyting frá
því sem áður var þar sem áratug
áður, árið 2001, fóru aðeins 27% í
endurvinnslu eða safnhauga.
Meira en helmingur sorps
er endurunninn í Þýskalandi,
Austur ríki, Hollandi og Belgíu.
Mest rusl fellur til frá Dönum,
rúm 700 kíló, en minnst rusl
fellur til frá Mið- og Austur-
Evrópuríkjunum, minna en 400
kíló á mann. - þj
Sorpeyðing í Evrópu 2011:
40% af rusli í
endurvinnslu
FERÐAMÁL Rétt um 40 þúsund
erlendir ferðamenn sóttu Ísland
heim í febrúar, nærri helmingi
fleiri en í febrúar í fyrra.
Samkvæmt Ferðamálastofu
fóru rétt tæplega 40 þúsund
erlendir ferðamenn af landi brott
í febrúar, samanborið við tæp-
lega 28 þúsund í febrúar í fyrra.
Aukningin er rúm 43 prósent.
Flestir af ferðamönnunum voru
frá Bretlandi, um 40 prósent.
Þá komu um þrettán prósent frá
Bandaríkjunum og átta prósent
frá Noregi. - bj
Fleiri ferðamenn í febrúar:
Fjölgaði um
nærri helming
EFNAHAGSMÁL Hagkerfi Evrópu-
sambandsins skrapp saman um
0,5% á síðasta fjórðungi síðasta
árs. Þar með var samdráttur á
svæðinu samanlagt 0,3% á árinu.
Þróunin var enn neikvæðari í
ríkjum evrusvæðisins, þar sem
samdrátturinn var 0,6% bæði á
fjórða ársfjórðungi og yfir allt
árið. Aðild að evrunni eiga sautj-
án af 27 ríkjum ESB.
Sé litið á einstök ríki var fjórði
ársfjórðungur 2012 verstur í
Portúgal, þar sem mældist 1,8%
samdráttur. Þá skruppu hagkerfi
Kýpur og Slóveníu saman um 1%.
Í Eystrasaltslöndunum mældist
aftur á móti nokkur hagvöxtur.
- mþl
Hagkerfi ESB minnkaði 2012:
Áfram sam-
dráttur í ESB
VÍSINDI Tugir eðlutegunda munu
deyja út á næstu 50 árum vegna
hlýnunar jarðar, að mati náttúru-
fræðinga.
Eðlurnar eiga það sameiginlegt
að hafa aðlagast kaldara veður-
fari en aðrar eðlur með því að
eignast lifandi afkvæmi í stað
þess að verpa eggjum.
Með hækkandi hitastigi jarðar
eru þessar tegundir nú komnar
í öngstræti á þróunarbrautinni,
segir dr. Daniel Pinchira-Donoso,
einn af fáum sérfræðingum
heimsins í þessum eðlu tegundum.
Hann segir útdauða þessara teg-
unda mikið áhyggjuefni fyrir
fjölbreytileika dýraríkisins. - bj
Á öngstræti á þróunarbraut:
Tugir eðluteg-
unda deyja út
VILNIUS Í LITHÁEN Mestur þróttur
innan ESB var í hagkerfum Eystrasalts-
ríkjanna undir lok síðasta árs. MYND/GETTY
FIMMTUDAGUR 7. mars 2013 | FRÉTTIR | 17