Fréttablaðið - 07.03.2013, Side 20
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
ASKÝRING VIÐSKIPTI | 20
UMRÓT Í EIGNARHALDI Á ÞROTABÚUM GÖMLU BANKANNA
Alþjóðlegu bankarisarnir Morg-
an Stanley og Deutsche Bank
hafa bætt við sig kröfum á Glitni
upp á 86,5 milljarða króna frá
því í lok nóvember. Samtals
eiga þeir nú 8,36 prósent allra
krafna í búið en áttu 4,57 prósent
fyrir rúmum þremur mánuðum.
Heildar umfang krafna þeirra
er nú 189,6 milljarðar króna en
var 103,1 milljarður í nóvember.
Þetta kemur fram á yfirliti yfir
stærstu kröfuhafa Glitnis hinn
5. mars síðastliðinn sem Frétta-
blaðið hefur undir höndum.
Alls hafa samþykktar kröfur
hækkað um tæpa tuttugu millj-
arða króna á síðustu mánuðum og
eru nú 2.274 milljarðar króna. Þar
af eiga 50 stærstu kröfu hafarnir
um 80 prósent krafna en 2.978
kröfuhafar tæp tuttugu prósent.
Fimm stærstu kröfu hafarnir eiga
fjórðung allra krafna.
Greint var frá því í Frétta-
blaðinu í gær að Burlington
Loan Management, stærsti ein-
staki kröfuhafi Glitnis, hefði
selt kröfur fyrir 56 milljarða
króna frá því í lok nóvember. Þá
átti félagið kröfur á Glitni fyrir
190,7 milljarða króna. Í byrjun
þessa mánaðar hafði sá stabbi
minnkað niður í 134,5 milljarða
króna. Burlington, sem er írskt
skúffufyrirtæki sem er fjár-
magnað og stýrt af bandaríska
sjóðsstýringar fyrirtækinu David-
son Kempner, er einnig á meðal
stærstu kröfuhafa föllnu bank-
anna Kaupþings og Straums. Þá
á félagið stóran hlut í Klakka,
áður Exista, og umtalsverðan
hlut í Bakkavör. Þrotabú Kaup-
þings, eða dótturbanki þess
Arion banki, eru stórir eigendur
í bæði Klakka og Bakkavör. Við-
mælendur Fréttablaðsins telja
að stjórnendur Burlington hafi
ákveðið að einbeita sér að þeirri
blokk frekar en Glitni.
Félagið er enn stærsti kröfu-
hafi Glitnis, þótt litlu muni á þeim
og vogunarsjóðnum Silver Point
Luxem borg Platform. Sá hefur
bætt við sig kröfum upp á 37,3
milljarða króna á síðustu mán-
uðum og á nú slíkar fyrir 130,6
milljarða króna.
Eftirtektarvert er að tveir
vogunar sjóðir aðrir en Burling-
ton hafa minnkað stöðu sína
mikið frá því í nóvember. Hinn
bandaríski Owl Creek Invest-
ments minnkar til að mynda
um meira en helming niður í 33
2.274
milljarðar króna eru
samþykktar kröfur í bú Glitnis.
Þær hafa hækkað um tuttugu
milljarða síðustu mánuði.
20 STÆRSTU KRÖFUHAFAR Í ÞROTABÚ GLITNIS 5. MARS 2013
5,92%
Burlington Loan
Management Ltd. 4,98%
Landsbanki
Íslands hf.
4,19%
The Royal Bank
of Scotland PLC
4,13%
CCP Credit
Acquisition Holdings
Luxco, S.A.R.L.
3,96%
Morgan Stanley
Bank
International Ltd.
3,58%
Deka Bank
Deutsche
Girozentrale
3,21%
SPB hf, áður
Sparisjóðabanki
Íslands hf.
3,05%
ACMO S.a.r.l.
2,91%
Max Participa-
tions II S.a.r.l.
2,87%
Barclays
Bank PLC
1,53%
Serengeti
Manyara
Cooperatief U.A.
1,45%
Owl Creek Inest-
ments I, LLC
1,56%
Credit Agricole
Vita S.p.A.
1,68%
Botticelli, L.L.C.
2,01%
Kaupþing banki hf.
2,30%
TCA Opportunity
Investment S.A.R.L.
2,60%
Perry Luxco S.A.R.L.
1,68%
Goldman Sachs
Lending Partners LLC
36,27%
Minni
kröfur
4,38%
Deutsche Bank AG,
Lundúnaútibú
5,74%
Silver Point
Luxemburg
Platform Sarl
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
rrrrrrrrrrrrrrrrr
B
irt
m
eð
fy
rir
v
u
ar
a
um
p
re
m
nt
vi
llu
r.
s
H
ei
m
sf
er
ð
i
fe
r
fe
r
ás
ki
lja
ér
r
sé
r
ré
tt
t
il
le
ið
ré
t
ið
ré
ið
r
g
a
tin
g
a
á
sl
á
u
ík
u.
A
th
.
AA
að
v
e
að
ð
g
e
ð
g
e
rð
g
tu
r
b
tu
r
b
re
ys
t
ys
t
re
ys
fff
án
f
án
ff
á
n
f
n n
á
nááá
vrvvvrir
vvvvrvvvrvrvirvrir
vir
yr
irrirririryr
iririryryryryyyyy
aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
a.a.a.a.a.a.a.a.a.aa.aaaaaaaaa
E
N
N
E
M
M
/
N
S
IA
•
N
M
56
94
3
M
Kanarí
Sól, sjór, sandur og sundlaugar eða snjór,
kuldi og ófærð? Heimsferðir bjóða nú frábært
verð á allra síðustu sætunum í sólina á Gran
Canaria þann 12. mars. Láttu það eftir þér að
bóka ferð í sólina, þú átt svo sannarlega eftir
að njóta þess.
Fjöldi gististaða í boði – ekki missa af þessu!
Flugsæti eingöngu
Frá kr. 54.900
Netverð á mann flugsæti báðar leiðir 12.-21. mars með
sköttum.
Stökktu tilboð
Frá kr. 74.900
Netverð á mann m.v. 2 - 4 í íbúð/studio/herbergi
í 7 nætur. Sértilboð 12. mars.
79.900,- á mann m.v. 2 - 4 í íbúð/studio/herbergi
í 9 nætur. Sértilboð 12. mars.
Parque Bali **+ – smáhýsi
Frá kr. 79.900
Netverð á mann m.v. 2-3 í íbúð með einu svefnherbergi í 7
nætur. Aukagjald fyrir einbýli 28.000 kr í 7 nætur. Sértilboð
12. mars. Verð á mann fyrir 9 nætur er 5.000 kr aukalega á
mann. Aukagjald fyrir einbýli í 9 nætur kr. 36.000.
12. mars í 7 eða 9 nætur
Komdu með okkur í sólina!
frá kr. 54.900
flugsæti eingöngu
Bankarisar bæta miklu við sig
Morgan Stanley og Deutsche Bank hafa keypt kröfur á
Glitni upp á tæplega 90 milljarða króna á þremur mánuð-
um. Á sama tíma hafa þrír vogunarsjóðir selt kröfur fyrir
að minnsta kosti 120 milljarða króna. Talið að kröfuhafar
séu að taka stöður í öðrum hvorum bankanum.
milljarða. Thingvellir S.a.r.l., sem
skráð er til heimilis í Lúxemborg,
var í 20. sæti yfir stærstu kröfu-
hafa Glitnis í fyrrahaust, með
kröfur upp á tæpa 38 milljarða
króna. Sjóðurinn er nú dottinn
út af lista yfir 50 stærstu kröfu-
hafana, sem þýðir að kröfur hans
í dag eru komnar undir 6,5 millj-
arða króna. Thingvellir á líka
stórar kröfur í þrotabú Kaup-
þings.
Alls nema samþykktar almenn-
ar kröfur í bú Glitnis 2.274 millj-
örðum króna. Væntar endur-
heimtur eru nú, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins, á
bilinu 25-26 prósent. Það þýðir
að virði krafna kröfuhafanna er
á bilinu 568,5 til 591,2 milljarðar
króna. thordur@frettabladid.is
Pólitískur hnútur stendur í vegi
fyrir því að hægt sé að tvöfalda
verðmæti íslensks útflutnings
á næstu fimmtán árum eins og
stefnt hefur verið að. Þetta er mat
Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi
forsætisráðherra.
Þorsteinn var aðalræðumaður
á aðalfundi Samtaka atvinnulífs-
ins (SA) sem fram fór á Hilton
Reykjavik Nordica í gær. Yfir-
skrift fundarins var Samstöðu-
leiðin: Fleiri störf – betri störf.
Í ræðu sinni fjallaði Þorsteinn
um stöðu lands og þjóðar í efna-
hags- og stjórnmálum. Lagði hann
áherslu á mikilvægi þess að auka
verðmætasköpun og framleiðni í
atvinnulífinu.
„Meðan atvinnulífið nær ekki
framleiðni á við það sem best ger-
ist í grannlöndunum geta stjórn-
málamennirnir aldrei tryggt sam-
keppnishæfni velferðar kerfisins.
Loforð þar um hljóma eins og
hvellandi bjalla og klingjandi
málmur,“ sagði Þorsteinn, sem
fjallaði svo um tvö viðfangsefni
sem hann taldi til þess fallin að
ýta undir aukna verðmætasköpun.
Í fyrsta lagi sagði Þorsteinn
að Íslendingar þyrftu að fullnýta
möguleika sína á innri markaði
Evrópu, sem hann kallaði heima-
markað og stóran stökkpall í
aðrar áttir. Það yrði hins vegar
ekki gert án gjaldmiðils sem
væri gjaldgengur í milliríkja-
viðskiptum.
Í öðru lagi sagði hann ótækt að
markaðslausnir yrðu látnar víkja
í sjávarútvegi, höfuðatvinnugrein
þjóðarinnar, fyrir félagslegum
markmiðum. Enda myndu lífskjör
versna eftir því sem framleiðni
minnkaði í sjávarútvegi.
Gaf Þorsteinn í skyn að samspil
stöðugrar myntar og markaðs-
lausna í sjávarútvegi gætu
verið grunnur að lífskjarasókn.
Vandinn væri sá að stjórnmála-
flokkarnir settu þessi mál í hnút.
„Á annað borðið róa flokkar
sem vilja sjávarútvegsstefnu sem
getur verið grundvöllur stöðug-
leika og vaxandi framleiðni. Þeir
flokkar geta aftur á móti ekki fall-
ist á að tekin verði upp stöðug,
alþjóðleg mynt. Á hitt borðið róa
flokkar sem vilja taka upp nýja
mynt. Þeir geta hins vegar ekki
fallist á sjávarútvegsstefnu sem
er forsenda fyrir því að unnt verði
að stíga það skref,“ sagði Þor-
steinn. - mþl
Þorsteinn ræddi samspil myntar og sjávarútvegs:
Pólitísk deila í vegi
verðmætasköpunar
NORDICA Í GÆR Þorsteinn Pálsson var
aðalræðumaður á aðalfundi Samtaka
atvinnulífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA