Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 25

Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 25
FIMMTUDAGUR 7. mars 2013 | SKOÐUN | 25 Þegar Jón Gnarr var kosinn borgarstjóri sagði útlendur stjórnmálarýnir á þá leið að það bæri vott um pólitískt heilbrigði á Íslandi að í miðju hruni kysu menn grínista frekar en rasista eða fasista. Okkur er ekki oft hælt fyrir pólitískan þroska af skiljanlegum ástæðum. En þarna var þó einhver innistæða, hvað sem mönnum kann að finnst um Jón. Hólið átti líka sitt alþjóðlega samhengi því einn meginótti manna við kreppuna á Vesturlöndum var sá að vaxandi andúð á flokkunum sem báru ábyrgð á henni myndi leiða til uppgangs öfgamanna. Kosninga- úrslit hafa hins vegar fram undir þetta reynst lítið söguleg í flestum löndum. Einfaldar lausnir Nú aukast áhyggjur manna aftur. Þó ekki vegna þess að öfgaöflum sé að vaxa fylgi held- ur vegna þess að þolinmæði kjósenda virðist á þrotum. Þeir virðast því ginnkeyptir fyrir gylliboðum og töfralausnum. Loforð Grillo á Ítalíu snerust ekki um ísbirni. Berlusconi sló líka í gegn með loforðum um endurgreiðslu á sköttum. Ein- faldar lausnir eru í boði víða í Evrópu og njóta fylgis. Þær eru orðnar snar þáttur í vandanum og gætu framlengt kreppuna. Grunntónar Hávaðinn er mikill og ekki von á öðru. Sögurnar eru líka ólíkar, bankahrun og ónýtur gjald- miðill á Íslandi, fasteignabólur á Spáni og Írlandi, spilling í Grikk- landi og Ítalíu og magnað hatur á sköttum í Bandaríkjunum. Það er þó unnt að greina ákveðna grunntóna. Einn er sá að almenn- ingur eigi ekki að borga skuldir samfélagsins. Og sums staðar að fólk í vanda eigi heldur ekki að borga eigin skuldir eða að þjóðir eigi ekki að greiða útlendum lán- veitendum. Annar er að stjórn- málamenn séu stór hluti vandans og líka kerfið sem gat þá af sér. Vandi þótt sekt finnist Þessar skoðanir eiga sínar orsakir, flestar vel skiljanlegar og sumar ígrundaðar. Lýðræðið virðist hins vegar skorta styrk til að leysa úr þeim sérstaka vanda sem af þeim leiðir. Málið snýst öðrum þræði um blekkingar og hver beri ábyrgð á þeim. Að hinu leytinu snýst það hins vegar um alvarlegan vanda sem er til staðar hverjum sem hann er að kenna, vanda sem fer ekki í burtu þótt sökudólgur finnist. Ímyndað góðæri Góðæri Vesturlanda reyndist fengið að láni. Kakan stækkaði en þó hægar en algengt er að menn álíti. Hagvöxtur var til dæmis víðast á Vesturlöndum mun meiri bæði á sjötta og sjöunda ára- tugnum en á hinni nýgengnu og skammlífu gullöld sem drukkn- aði í hafsjó skulda fyrir nokkrum misserum. Þetta reyndist trix með einkavæddri margföldun á peningamagni, ekki gullöld. Laun í lágmarki Það sem skildi hina ímynduðu gullöld þó mest frá fyrri vaxtar- skeiðum var að sneiðin sem almenningi var sniðin af kök- unni fór hlutfallslega minnkandi. Þarna er ein meginrót vandans. Hlutfall launa af landsfram- leiðslu náði sögulegu lágmarki á Vesturlöndum en hlutfall hagn- aðar að sama skapi nýju hámarki. Þetta jók auðvitað stórlega ójöfn- uð í flestum samfélögum. Tilfinn- ing manna og þjóða um ábyrgðar- leysi á eigin skuldum á rætur í þessari þróun. Það var vitlaust gefið, segja menn. Slegið fyrir neyslu Lengi virtist þetta þó ekki koma að sök því að lánsfé var bæði auð- fengið og ódýrt, einkum vegna uppgangs utan Vesturlanda. Neysluna var því hægt að auka, en út á krít. Þarna liggur önnur meginrót vandans. Vaxandi lán- tökur til húsnæðiskaupa mynduðu eignabólu sem fékk fólk til að trúa því að það væri að verða stórum ríkara en áður. Sem jók neysluna og skuldsetninguna enn frekar. Við vitum hvað gerðist næst. Blekkingin Kjarni málsins er sá að almenn- ingur lét blekkjast. Menn geta deilt lengi um hverjum eigi helst að kenna um þetta, stjórnmála- mönnum, bankamönnum eða almenningi sjálfum. Sú deila breytir ekki þeirri niðurstöðu að almenningur lét blekkjast og heldur ekki hinni, þeirri að við sitjum uppi með afleiðingar sem ekki er hægt að galdra í burtu. Menn héldu sig ríkari en þeir voru. Auðvitað ekki nálægt því allir en nógu margir. Hvert land fyrir sig á sér sína sögu og sínar skýringar og það er enginn vafi á því að sviksemi einstaklinga og gáleysi, fákunnátta og dramb ein- stakra stjórnmálamanna gerði sums staðar illt stórum verra. En mynstrið ætti að sjást af því að flest ríki Vesturlanda lentu í vanda af svipuðu tagi á sama tíma. Blekkingin var í grunninn alls staðar sú sama. Ræður lýðræðið við þetta? Nú stendur lýðræðið frammi fyrir þeim vanda að í stað þess að hægt sé að halda uppi fölskum lífs- kjörum þarf að greiða upp skuld- ir hinnar ímynduðu gull aldar. Hvernig sem menn snúa sér og hvort sem þeir hengja bakara eða smið þá er til staðar vandi sem mun valda venjulegu fólki um öll Vesturlönd verulegum óþægind- um á næstu árum. Það þarf mikið þrek til að segja kjósendum erfið- ar fréttir og það eru að vonum fáir sem í það leggja. En þar er prófsteinn lýðræðisins. Lýðræði snýst ekki um að allir fái það sem þeir vilja helst. Ábyrgð er ekki síður grunnur þess en sjálft valið á milli kosta, ímyndaðra eða raun- verulegra. Prófsteinn lýðræðisins Í DAG Jón Ormur Halldórsson dósent Hvernig sem menn snúa sér og hvort sem þeir hengja bakara eða smið þá er til staðar vandi sem mun valda venjulegu fólki um öll Vesturlönd verulegum óþægindum á næstu árum. Ertu ekki á hjólinu? Alltaf hressandi að fá þennan ágæta brandara á dögum eins og þessum þegar fárviðri gengur yfir: „Ertu ekki á hjólinu?“. Ég tek því mjög vel og læt öllum finnast eins og þeir séu fyrstir til að fatta þessa hnyttni. Undirliggjandi er samt kannski alvarlegri misskilningur. Hann er sá að við sem berjumst fyrir hjólastígum og betri aðstöðu fyrir þá sem vilja hjóla, viljum í raun að ALLIR hjóli ALLTAF. Það er auðvitað ekki rétt. http://eyjan.pressan.is Gísli Marteinn Baldursson Kosningar– býður einhver betra veður? Kosningar eru framundan. Sjálfstæðisflokkur og Fram- sókn bjóða gull og græna skóga. Niður fellingar skulda, afnám verð tryggingar mörg ár aftur í tímann, betri heilbrigðisþjónustu og menntun, betri kjör fyrir lífeyris þega og ýmislegt fleira gott fyrir alla. Það á líka að fjárfesta meira og greiða niður gríðarlegar skuldir ríkisins. Þetta á svo allt að fjármagna með skattalækkunum! Hmmmm… Við erum sem sagt stödd í landi vúdú-hagfræða og sjónhverfinga. Ég velti því fyrir mér í morgun hvort enginn ætlaði að bjóða upp á betra veður á þessari sundurtættu eyju. Það væri verðugt viðfangsefni fyrir vúdú-menn stjórnmálanna… http://blog.pressan.is/stefano/ Stefán Ólafsson AF NETINU SHIFT_ NISSAN QASHQAI BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 FJÓRHJÓLADRIFINN QASHQAI DÍSIL FRÁ 5.090 ÞÚS. KR. ENGIN FURÐA AÐ QASHQAI ER SVONA VINSÆLL Flestir sem hafa keypt sér nýjan jeppling á árinu 2012 hafa valið Nissan Qashqai. Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóladrifnum bíl, sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu. Eldsneytisnotkun einungis frá 4,6l/100km. · 20 cm veghæð · Litaðar rúður · Tölvustýrð loftkæling · 5 stjörnu einkunn í EURO Ncap · Fjórhjóladrif með LOCK stillingum · Handfrjáls Bluetooth símabúnaður · Bakkskynjari · 17“ álfelgur og margt fleira E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 9 4 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.