Fréttablaðið - 07.03.2013, Síða 25
FIMMTUDAGUR 7. mars 2013 | SKOÐUN | 25
Þegar Jón Gnarr var kosinn
borgarstjóri sagði útlendur
stjórnmálarýnir á þá leið að það
bæri vott um pólitískt heilbrigði
á Íslandi að í miðju hruni kysu
menn grínista frekar en rasista
eða fasista. Okkur er ekki oft
hælt fyrir pólitískan þroska
af skiljanlegum ástæðum. En
þarna var þó einhver innistæða,
hvað sem mönnum kann að
finnst um Jón. Hólið átti líka sitt
alþjóðlega samhengi því einn
meginótti manna við kreppuna á
Vesturlöndum var sá að vaxandi
andúð á flokkunum sem báru
ábyrgð á henni myndi leiða til
uppgangs öfgamanna. Kosninga-
úrslit hafa hins vegar fram
undir þetta reynst lítið söguleg í
flestum löndum.
Einfaldar lausnir
Nú aukast áhyggjur manna
aftur. Þó ekki vegna þess að
öfgaöflum sé að vaxa fylgi held-
ur vegna þess að þolinmæði
kjósenda virðist á þrotum. Þeir
virðast því ginnkeyptir fyrir
gylliboðum og töfralausnum.
Loforð Grillo á Ítalíu snerust
ekki um ísbirni. Berlusconi sló
líka í gegn með loforðum um
endurgreiðslu á sköttum. Ein-
faldar lausnir eru í boði víða í
Evrópu og njóta fylgis. Þær eru
orðnar snar þáttur í vandanum
og gætu framlengt kreppuna.
Grunntónar
Hávaðinn er mikill og ekki von
á öðru. Sögurnar eru líka ólíkar,
bankahrun og ónýtur gjald-
miðill á Íslandi, fasteignabólur á
Spáni og Írlandi, spilling í Grikk-
landi og Ítalíu og magnað hatur
á sköttum í Bandaríkjunum. Það
er þó unnt að greina ákveðna
grunntóna. Einn er sá að almenn-
ingur eigi ekki að borga skuldir
samfélagsins. Og sums staðar að
fólk í vanda eigi heldur ekki að
borga eigin skuldir eða að þjóðir
eigi ekki að greiða útlendum lán-
veitendum. Annar er að stjórn-
málamenn séu stór hluti vandans
og líka kerfið sem gat þá af sér.
Vandi þótt sekt finnist
Þessar skoðanir eiga sínar
orsakir, flestar vel skiljanlegar
og sumar ígrundaðar. Lýðræðið
virðist hins vegar skorta styrk til
að leysa úr þeim sérstaka vanda
sem af þeim leiðir. Málið snýst
öðrum þræði um blekkingar og
hver beri ábyrgð á þeim. Að hinu
leytinu snýst það hins vegar
um alvarlegan vanda sem er til
staðar hverjum sem hann er að
kenna, vanda sem fer ekki í burtu
þótt sökudólgur finnist.
Ímyndað góðæri
Góðæri Vesturlanda reyndist
fengið að láni. Kakan stækkaði en
þó hægar en algengt er að menn
álíti. Hagvöxtur var til dæmis
víðast á Vesturlöndum mun meiri
bæði á sjötta og sjöunda ára-
tugnum en á hinni nýgengnu og
skammlífu gullöld sem drukkn-
aði í hafsjó skulda fyrir nokkrum
misserum. Þetta reyndist trix
með einkavæddri margföldun á
peningamagni, ekki gullöld.
Laun í lágmarki
Það sem skildi hina ímynduðu
gullöld þó mest frá fyrri vaxtar-
skeiðum var að sneiðin sem
almenningi var sniðin af kök-
unni fór hlutfallslega minnkandi.
Þarna er ein meginrót vandans.
Hlutfall launa af landsfram-
leiðslu náði sögulegu lágmarki á
Vesturlöndum en hlutfall hagn-
aðar að sama skapi nýju hámarki.
Þetta jók auðvitað stórlega ójöfn-
uð í flestum samfélögum. Tilfinn-
ing manna og þjóða um ábyrgðar-
leysi á eigin skuldum á rætur í
þessari þróun. Það var vitlaust
gefið, segja menn.
Slegið fyrir neyslu
Lengi virtist þetta þó ekki koma
að sök því að lánsfé var bæði auð-
fengið og ódýrt, einkum vegna
uppgangs utan Vesturlanda.
Neysluna var því hægt að auka,
en út á krít. Þarna liggur önnur
meginrót vandans. Vaxandi lán-
tökur til húsnæðiskaupa mynduðu
eignabólu sem fékk fólk til að trúa
því að það væri að verða stórum
ríkara en áður. Sem jók neysluna
og skuldsetninguna enn frekar.
Við vitum hvað gerðist næst.
Blekkingin
Kjarni málsins er sá að almenn-
ingur lét blekkjast. Menn geta
deilt lengi um hverjum eigi helst
að kenna um þetta, stjórnmála-
mönnum, bankamönnum eða
almenningi sjálfum. Sú deila
breytir ekki þeirri niðurstöðu
að almenningur lét blekkjast og
heldur ekki hinni, þeirri að við
sitjum uppi með afleiðingar sem
ekki er hægt að galdra í burtu.
Menn héldu sig ríkari en þeir
voru. Auðvitað ekki nálægt því
allir en nógu margir. Hvert land
fyrir sig á sér sína sögu og sínar
skýringar og það er enginn vafi
á því að sviksemi einstaklinga og
gáleysi, fákunnátta og dramb ein-
stakra stjórnmálamanna gerði
sums staðar illt stórum verra.
En mynstrið ætti að sjást af því
að flest ríki Vesturlanda lentu
í vanda af svipuðu tagi á sama
tíma. Blekkingin var í grunninn
alls staðar sú sama.
Ræður lýðræðið við þetta?
Nú stendur lýðræðið frammi fyrir
þeim vanda að í stað þess að hægt
sé að halda uppi fölskum lífs-
kjörum þarf að greiða upp skuld-
ir hinnar ímynduðu gull aldar.
Hvernig sem menn snúa sér og
hvort sem þeir hengja bakara eða
smið þá er til staðar vandi sem
mun valda venjulegu fólki um öll
Vesturlönd verulegum óþægind-
um á næstu árum. Það þarf mikið
þrek til að segja kjósendum erfið-
ar fréttir og það eru að vonum
fáir sem í það leggja. En þar er
prófsteinn lýðræðisins. Lýðræði
snýst ekki um að allir fái það sem
þeir vilja helst. Ábyrgð er ekki
síður grunnur þess en sjálft valið
á milli kosta, ímyndaðra eða raun-
verulegra.
Prófsteinn lýðræðisins
Í DAG
Jón Ormur
Halldórsson
dósent
Hvernig sem menn
snúa sér og hvort
sem þeir hengja bakara eða
smið þá er til staðar vandi
sem mun valda venjulegu
fólki um öll Vesturlönd
verulegum óþægindum á
næstu árum.
Ertu ekki á hjólinu?
Alltaf hressandi að fá þennan
ágæta brandara á dögum eins
og þessum þegar fárviðri gengur
yfir: „Ertu ekki á hjólinu?“. Ég tek
því mjög vel og læt öllum finnast
eins og þeir séu fyrstir til að fatta
þessa hnyttni.
Undirliggjandi er samt kannski
alvarlegri misskilningur. Hann
er sá að við sem berjumst fyrir
hjólastígum og betri aðstöðu
fyrir þá sem vilja hjóla, viljum í
raun að ALLIR hjóli ALLTAF. Það
er auðvitað ekki rétt.
http://eyjan.pressan.is
Gísli Marteinn Baldursson
Kosningar– býður
einhver betra veður?
Kosningar eru framundan.
Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sókn bjóða gull og græna skóga.
Niður fellingar skulda, afnám
verð tryggingar mörg ár aftur í
tímann, betri heilbrigðisþjónustu
og menntun, betri kjör fyrir
lífeyris þega og ýmislegt fleira
gott fyrir alla.
Það á líka að fjárfesta meira og
greiða niður gríðarlegar skuldir
ríkisins.
Þetta á svo allt að fjármagna
með skattalækkunum!
Hmmmm… Við erum sem sagt
stödd í landi vúdú-hagfræða og
sjónhverfinga.
Ég velti því fyrir mér í morgun
hvort enginn ætlaði að bjóða
upp á betra veður á þessari
sundurtættu eyju.
Það væri verðugt viðfangsefni
fyrir vúdú-menn stjórnmálanna…
http://blog.pressan.is/stefano/
Stefán Ólafsson
AF NETINU
SHIFT_
NISSAN
QASHQAI
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
FJÓRHJÓLADRIFINN QASHQAI
DÍSIL FRÁ 5.090 ÞÚS. KR.
ENGIN FURÐA AÐ QASHQAI ER SVONA VINSÆLL
Flestir sem hafa keypt sér nýjan jeppling á árinu 2012 hafa valið Nissan Qashqai.
Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóladrifnum bíl, sem er
hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu.
Eldsneytisnotkun einungis frá 4,6l/100km.
· 20 cm veghæð
· Litaðar rúður
· Tölvustýrð loftkæling
· 5 stjörnu einkunn í EURO Ncap
· Fjórhjóladrif með LOCK stillingum
· Handfrjáls Bluetooth símabúnaður
· Bakkskynjari
· 17“ álfelgur og margt fleira
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
9
4
0