Fréttablaðið - 07.03.2013, Síða 35
TÍSKA | FÓLK | 3
Ég setti mér það markmið að nota íslensku ullina sem tískuvöru en ekki sem handavinnu og sýna fram á að það sé fullvel hægt að nota íslenskan lopa í tískufatnað.
Það er íslensk, eða allavega skandinavísk aðferð, að prjóna
peysur á hringprjón svo engir saumar eru á flíkinni og ég
notfærði mér það. Bæði peysurnar og pilsin eru ein heild
og engir saumar,“ útskýrir Erna Einarsdóttir fata hönnuður,
en hún sýnir útskriftarlínu sína frá Central Saint Martins-
skólanum í London í versluninni Geysi á HönnunarMars.
Erna hefur ekki sýnt línuna hér á landi áður en hún hlaut
talsverða athygli fyrir hana þegar hún útskrifaðist fyrir ári
síðan og Erna landaði starfi hjá Yves Saint Laurent strax
eftir útskrift.
„Línan mín var valin ein af bestu línunum í útskriftar-
árganginum og svo fékk tilboð um að koma í viðtal til Yves
Saint Laurant. Ég var þá á leiðinni heim til Íslands eftir 8 ára
nám úti og hlakkaði mikið til að koma heim. Ég ákvað þó að
skella mér í viðtalið því ég hafði aldrei komið til Parísar. Ég
fékk starfið og var byrjuð að vinna tveimur vikum seinna. Þá
komst ég líka að því að ég var ólétt. En það gekk bara fínt að
vera ólétt í París og tíminn leið hratt. Ég kom heim í septem-
ber og átti í október,“ segir Erna hress. Hún hefur nú verið
ráðin yfirhönnuður hjá Geysi og segist hlakka til að taka þátt
í uppbyggingunni á íslenskri fatahönnun.
„Það eru spennandi hlutir að gerast í fatahönnun á Ís-
landi og mikil vitundarvakning um hvað sé hönnun og hvað
ekki. Hér er mikið af flottum hönnuðum sem hafa alla burði
til að ná langt og mér finnst að mætti styðja meira við. En
mér finnst Fatahönnunarfélagið að gera góða hluti og þá er
HönnunarMars frábær vettvangur til að sýna á og er kominn
til að vera.“
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir | Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir,
jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
SÝNIR ÚTSKRIFARLÍNUNA Erna Einarsdóttir fata-
hönnuður landaði starfi hjá Yves Saint Laurent í París út
á útskriftarlínu sína. Hún sýnir línuna nú í fyrsta skipti
hér á landi, í versluninni Geysi á HönnunarMars. Erna
hefur störf sem yfirhönnuður hjá Geysi á næstu vikum.
Peysurnar eru prjónaðar eftir íslenskri hefð, engir saumar
og allt handgert. Pilsin eru úr silfurlituðu gervileðri sem
í eru leysigeislaskorin göt. Íslenskur lopi er svo hand-
saumaður í leðrið með krossaumi. MYND/STEFÁN
LOPINN SLÓ Í GEGN
ÍSLENSK HÖNNUN Erna Einarsdóttir fatahönnuður var ráðin hjá Yves Saint
Laurent í kjölfar lokaverkefnis hennar frá Central Saint Martins-skólanum. Hún
hefur verið ráðin yfirhönnuður hjá Geysi og sýnir á HönnunarMars.
LAGERHREINSUN!
MIKIÐ ÚRVAL AF ÍÞRÓTTASKÓM OG
FATNAÐI Á GÓÐUM AFSLÆTTI!
Í ANDDYRI SALS FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS - MÖRKINNI 6
DAGANA 6. - 17. MARS.
OPIÐ: MÁN.-FÖS: 12-18 OG LAU.-SUN: 12-16.
EASTPAK TASKA
ÁÐUR: 10.990.-
NÚ: 4.990.-
TEVA SANDALAR
ÁÐUR: 9.990.-
NÚ: 4.990.-
ASICS 2170
ÁÐUR: 27.990.-
NÚ: 14.990.-
ASICS KAYANO
ÁÐUR: 29.990.-
NÚ: 16.990.-
ASICS NIMBUS
ÁÐUR: 29.990.-
NÚ: 16.990.-
ASICS BUXUR
ÁÐUR: 10.990.-
NÚ: 6.490.-
ASICS BOLUR
ÁÐUR: 7.390.-
NÚ: 3.490.-
SEAFOLLY
SUNDBOLUR
ÁÐUR:19.990.-
NÚ: 9.990.-
CASALL BOLUR
ÁÐUR: 7.990.-
NÚ: 3.990.-
CASALL BUXUR
ÁÐUR: 14.990.-
NÚ: 6.990.-
EASTPAK TASKA
ÁÐUR: 11.490.-
NÚ: 5.990.-
ASICS JAKKI
ÁÐUR: 15.990.-
NÚ: 8.990.-
CASALL PEYSA
ÁÐUR: 17.990.-
NÚ: 6.990.-
CASALL KJÓLL
ÁÐUR: 16.990.-
NÚ: 5.990.-
KETCH BARNAHÚFA
ÁÐUR: 4.990.-
NÚ: 2.490.-
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS