Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 37
TÍSKA | FÓLK | 5
Víðar bermúdabuxur, hangandi á mjöðmum, hafa verið áberandi á tískupöllunum. Þær eru þeim kærkomnar sem treystu sér ekki
í stuttu og níðþröngu galla- og leðurstutt-
buxurnar sem hafa notið vinsælda síðustu
ár. Þetta er einstaklega þægileg og hentug
tíska sem á örugglega eftir að ná til al-
mennings.
Sumar buxurnar ná alveg niður að
hnjám en á öðrum nema skálmarnar við
mið læri. Flestar eru víðar og svolítið
rykktar og oft er hægt að stinga höndum
þægilega í vasann.
Íslensk sumur bjóða ekki alltaf upp á
bera leggi en við því má sjá með hnaus-
þykkum sokkabuxum og þannig ganga
buxur sem þessar árið um kring.
STUTTBUXURNAR
SÍKKA OG VÍKKA
ÞÆGILEG SUMARTÍSKA Þröngu stutt-
buxurnar eru á undanhaldi og víkja fyrir
síðari, víðari og þægilegri buxum.
ÞÆGINDIN Í FYRIRRÚMI
Sumar buxurnar ná alveg niður
að hnjám en aðrar nema við
mið læri.
FLOTTAR VIÐ
SOKKABUXUR
Íslensk sumur
bjóða ekki endilega
upp á bera leggi en
við því má sjá með
þykkum sokka-
buxum.
TÖFF
Stuttbuxnadraktir þykja smart.
KLÆÐILEGT
Þessi tíska nær langt út
fyrir tískupallana enda
klæðir hún flesta.
RETRO-STEMNING Ekki þykir
verra ef buxurnar virðast not-
aðar. Þær eru flestar víðar og
svolítið rykktar og oft er hægt
að stinga höndum þægilega í
vasann.
Ætlar þú að breyta
um lífsstíl?
Heilsulausnir
“Mér fannst allt gott, hafði enga
stjórn á skammtastærðum og
hafði lítið þrek. Ég var farin að
óttast um heilsu mína og langaði
ekki að vera svona illa á mig komin
lengur,” segir Sólveig sem vildi
læra að borða rétt og lifa í sátt við
sjálfa sig.
„ Þegar ég fór að ná árangri, léttast
og líða betur hugsaði ég tíðum hví
í ósköpunum ég hefði ekki tekið
í taumana fyrr. Ég hafði ekki gert
mér grein fyrir að ég væri að missa
35 kílóum léttari
en fyrir ári síðan
„Ég hafði ekki
gert mér grein
fyrir að ég
væri að missa
af lífinu og
get ég ekki
ímyndað mér
hvernig lífið
væri nú hefði
ég ekki farið í
Heilsuborg.”
Sólveig Sigurðardóttir
af lífinu og get ég ekki ímyndað
mér hvernig lífið væri nú hefði ég
ekki farið í Heilsuborg.”
“Að breyta um mataræði er mikil
vinna í fyrstu og ég hef reynt að
boð og bönn virka ekki. Ég hætti
að vera svöng þegar ég lærði að
borða reglulega og langar sjaldnast
í nammi því mér líður svo vel
að borða rétt,” segir Sólveig, 35
kílóum léttari en fyrir ári síðan.
Sólveig Sigurðardóttir
Kynningarfundur mánudaginn 11. mars
kl. 17:30 – Allir velkomnir!
Ert þú óviss með næstu skref?
Pantaðu tíma í Heilsumat og hjúkrunar-
fræðingur fer yfir stöðuna á þinni heilsu
og aðstoðar með næstu skref.