Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 46
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
BAKÞANKAR
Friðriku Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. útmá, 6. skst., 8. pili, 9. kvk nafn,
11. átt, 12. aðfall, 14. fet, 16. hróp, 17.
útsæði, 18. nafar, 20. tveir eins, 21.
rænuleysi.
LÓÐRÉTT
1. nýja, 3. frú, 4. afbrot, 5. tunna, 7.
orðrómur, 10. þrá, 13. hluti verkfæris,
15. matur, 16. hljóðfæri, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. afmá, 6. no, 8. rim, 9. gró,
11. sa, 12. aðsog, 14. skref, 16. óp, 17.
fræ, 18. bor, 20. ðð, 21. óráð.
LÓÐRÉTT: 1. unga, 3. fr, 4. misgerð,
5. áma, 7. orðspor, 10. ósk, 13. orf, 15.
fæði, 16. óbó, 19. rá.
Bahh!
Þarna!
Þarna!
gekkstu
of langt kona!
AAAA!
Ekkert
svona!
Þetta var
öxl í öxl!
Nú á stöð
5: „Ég tala
við dauða
hamsturinn
minn“
Verðurðu
heima
í kvöldmat,
Palli?
Ég ætla
að líta
á dagskrána.
Sonur minn,
lifandi
minn-
ismiðinn.
Geturðu
skoðað
blaðsíðu
3 fyrir mig?
Þetta er
lögfræðingurinn minn,
ég brenndi tunguna
á hafragrautnum
ykkar!
ÖLL dýrin.
...sem
hræddi
dýrin.
Öll dýrin.
Þá sagði
ljónið...
SAGÐI
þá ljónið.
Kannski ættirðu
bara að lesa
fyrir sjálfa þig.
Án þess
að neinn
leiðrétti mig??
FYRSTI ÞÁTTUR Í KVÖLD KL. 22:05
TVEIR + SEX
ALLT SEM ÞÚ VILDIR VITA UM KYNLÍF
EN ÞORÐIR EKKI AÐ SPYRJA UM.
Nýr og spennandi þáttur um kynlíf ungs fólks.
Þáttastjórnendur ræða málin, spyrja sérfræðinga
og prófa sig áfram.
Popptíví fylgir frítt með áskrift að Stöð 2
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Fyrirsögn á Vísi vakti athygli mína í gærmorgun: Samkynhneigð hjón fá
hæli í Svíþjóð. Skilyrt hugsanaferli fór í
gang og ég átti erfitt með að koma því heim
og saman hvernig hjón gætu verið samkyn-
hneigð. „Er hann þá hommi og hún lesbía?“
stóð ég mig að því að hugsa áður en það
rann upp fyrir mér að auðvitað var verið að
tala um tvo karlmenn sem eru giftir. Og, já,
giftir hvor öðrum.
ÞESSI hugsun kom mér satt að segja
algjörlega í opna skjöldu. Hjónabönd sam-
kynhneigðra hafa lengi verið sjálf-
sagður hlutur í mínu nærumhverfi,
enda margir af mínum bestu vinum
hommar og lesbíur. Það var því
ekki hugtakið hjónaband sam-
kynhneigðra sem ég hafði eitt-
hvað við að athuga. Nei, það er
orðið hjón sem hefur þessi áhrif.
Svo rækilega er það innprentað að
hjón séu karl og kona; þau hjónin,
að þegar besta vinkona mín gift-
ist ástkonu sinni töluðum við
alltaf um „þær hjónurnar“, ekki
hjónin. Giftir hommar kallast
þá væntanleg „þeir hjónarnir“.
„Þau hjónin“ er enn einskorðað
við hið hefðbundna gagnkyn-
hneigða hjónaband.
TUNGUMÁLIÐ er ansi harður
húsbóndi. Ákveðin orð hafa
ákveðna merkingu og það er hæg-
ara sagt en gert að fá þau til að
öðlast nýja vídd. Þótt samfélagið breytist
og opnist fyrir nýjum hjónabandsformum
harðneitar hugtakið hjón að taka þátt í
þeirri breytingu. Þannig viðhelst sú hugsun
að hjónaband konu og konu eða karls og
karls sé ekki „alvöru“ hjónaband og jafnvel
þeir sem þykir ekkert sjálfsagðara en að
samkynhneigðir fái rétt til skilnaðar – eins
og stóð á einu kröfuspjaldinu í stuðnings-
göngu við frumvarp um hjónabönd
samkyn hneigðra í Frakklandi – hnjóta um
þennan tungumálsþröskuld hefðarinnar og
draga ósjálfrátt kolranga ályktun.
ÉG hef yfirleitt ekki kippt mér upp við
það að rótgróin orð þýði eitthvað annað en
nútíminn krefst, enda óttalegur íhalds-
seggur þegar kemur að tungumálinu. Hef
til dæmis aldrei séð neitt athugavert við
það að konur séu kallaðar ráðherra, for-
stjóri, kennari, rithöfundur og svo fram-
vegis. Konur eru menn og það má í þeim
skilningi heimfæra þessi orð upp á þær
með góðum vilja, hef ég tuðað aftur og
aftur. Tittlingaskítur og hártoganir að
vera að amast við því og búa til orðskrípi á
borð við ráðfrú og forstýra. Þessi óþægi-
lega hugsun í gærmorgun fékk mig þó til
að efast um að það sé eitthvert kappsmál
að halda tungumálinu í föstum skorðum
hefðar innar. Orð sem kynda undir fordóm-
um og fastmótuðum siðum ættu kannski
bara að hverfa og önnur ný sem túlka þann
veruleika sem við búum við í dag að taka
við. Kannski væri það stærsta skrefið í
jafnréttisátt að afnema kyn orðanna.
Fordómar orðanna