Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 54
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 46
Tónleikaárið 2013 hefur farið frekar rólega af stað ef undanskilin er Sónar-hátíðin
sem lífgaði upp á annars daufan febrúarmánuð. Fram undan eru þó flottir
tónleikar. David Byrne mun spila ásamt St. Vincent í Hörpu í ágúst. Það er strax
hægt að fara að hlakka til. Sunnudagskvöldið 17. mars spilar svo saxófónleikarinn
Colin Stetson á Volta. Stetson hefur gefið út nokkrar plötur með eigin tónlist en
er líka þekktur fyrir að hafa mikið spilað með öðrum listamönnum. Hann hefur
spilað inn á plötur með Tom Waits, Feist, Bon Iver og TV on the Radio. Þekktastur
er hann samt sennilega fyrir samstarf sitt við Arcade Fire. Hann spilaði bæði inn
á Neon Bible og The Suburbs og hefur mikið spilað með hljómsveitinni á tón-
leikum.
Stetson spilar á margar tegundir blásturshljóðfæra; klarinettu, bassaklarinettu,
franskt horn og fleira. Hann er samt þekktastur fyrir saxófónleikinn. Hann spilar
m.a. á bassasaxófón, sem er stærsti meðlimur saxófónafjölskyldunnar og frekar
sjaldgæft hljóðfæri. Tónlistin á sólóplötum Stetsons er að stórum hluta leikin
af fingrum fram. Hún er bæði framúrstefnuleg og tilraunakennd. Hljóðin sem
hann nær út úr saxófóninum og tjáningin í spilamennskunni er einstök. Það má
því gera ráð fyrir magnaðri tónleikaupplifun á Volta. Auk Stetsons spilar Úlfur á
tónleikunum.
Colin Stetson hefur gefið út nokkrar stórar plötur. Hann er með fína vefsíðu
(colinstetson.com) þar sem finna má hlekki yfir á bandcamp- og soundcloud-
síðurnar hans. Á þeim er mikið af tónlist sem hægt er að hlusta á. Næsta plata
Stetsons, New History Warfare Vol. 3: To See More Light, kemur út 30. apríl. Hún
var tekin upp undir stjórn Bens Frost. Á henni spilar Stetson á altó-, tenór- og
bassasaxófón en Justin Vernon úr Bon Iver syngur í fjórum lögum.
Spennandi heimsókn
MAGNAÐUR
Colin Stetson
spilar á Volta
17. mars.
David Bowie - The Next Day
Ólafur Arnalds - For Now I Am Winter
Atoms For Peace - Amok
Í spilaranum
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
28.2.2013 ➜ 06.3.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Ásgeir Trausti Nýfallið regn
2 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason
3 Valdimar Yfir borgina
4 Rihanna / Mikky Ekko Stay
5 Frank Ocean Lost
6 Jónas Sigurðsson Fortíðarþrá
7 Ragnar Bjarnas. /Lay Low Þannig týnist tíminn
8 Bruno Mars Locked Out of Heaven
9 Eyþór Ingi Ég á líf
10 Maroon 5 Daylight
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Retro Stefson Retro Stefson
3 Ýmsir Söngvakeppnin 2013
4 Raggi Bjarna Dúettar
5 Ýmsir Pottþétt 58
6 Hjaltalín Enter 4
7 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
8 Valdimar Um stund
9 Dimma Myrkraverk
10 Skálmöld Börn Loka
Þriðja sólóplata popparans Justins
Timberlake, The 20/20 Experience,
kemur út síðar í mánuðinum, heil-
um sjö árum eftir að FutureSex/
LoveSounds leit dagsins ljós.
Samstarfsmenn hans eru upp-
tökustjórarnir Timbaland og
Jerome „J-Roc“ Harmon, sem báðir
hafa unnið með honum áður, auk
þess sem rapparinn Jay-Z syngur
með honum í fyrsta smáskífu laginu,
Suit & Tie. Platan er sú fyrsta frá
Timberlake síðan hann færði sig
um set frá Jive Records yfir til RCA
Records.
FutureSex/LoveSounds kom
út 2006 og hitti í mark bæði hjá
gagnrýnendum og tónlistar-
áhugamönnum. Sex smáskífulög
voru gefin út þar á meðal Sexy-
Back, My Love og What Goes Aro-
und… Comes Around. Eftir að
Timber lake lauk tónleikaferð sinni
um heiminn til að fylgja henni eftir
2007 tók hann sér frí frá tónlist-
inni til að einbeita sér að leiklist-
inni. Einnig stofnaði hann útgáfu-
fyrirtækið Tenman Records og var
gestasöngvari í nokkrum lögum,
þar á meðal 4 Minutes með Mad-
onnu og Carry Out með Timbaland.
Árið 2011 keypti popparinn,
ásamt fyrirtækinu Specific Media
Group, vefsíðuna Myspace í von um
að hefja hana til vegs og virðingar á
nýjan leik. Hann hefur því langt því
frá setið auðum höndum þess sjö ár,
þrátt fyrir að aðdáendur hans um
heim allan hafi beðið óþreyjufullir
eftir nýrri tónlist frá honum í allt of
langan tíma að þeirra mati.
Timberlake ætlar í tónleikaferð
um Norður-Ameríku í sumar undir
yfirskriftinni The Legends of the
Summer ásamt Jay-Z og verða þeir
fyrstu í Toronto 17. júlí. Skömmu
áður, eða 12. júlí, spilar hann á
Wireless Festival í Bretlandi, en
stutt er síðan hann kom fram á Brit-
hátíðinni í London við góðar undir-
tektir.
Popparinn nýtur mikillar hylli á
Bretlandseyjum og fór nýjasta smá-
skífulagið hans, Mirrors, á toppinn
á breska smáskífulistanum fyrir
skömmu. freyr@frettabladid.is
Timberlake mættur
aft ur eft ir sjö ára hlé
Þriðja plata Justins Timberlake kemur út á næstunni. Eft irvæntingin er mikil.
ENDURKOMA Justin Timberlake er mættur aftur með plötuna The 20/20 Experience. NORDICPHOTOS/GETTY
1. Pusher Love Girl
2. Suit & Tie
3. Don‘t Hold the Wall
4. Strawberry Bubblegum
5. Tunnel Vision
6. Spaceship Coupe
7. That Girl
8. Let the Groove Get In
9. Mirrors
10. Blue Ocean Floor
Lagalistinn á The
20/20 Experience
- Fræðsla um líkamsbeitingu
- Vinnustaðaúttektir
- Ráðgjöf við gerð áættumats starfa
- Vinnuvistarráðgjöf
- Innleiðing og kennsla hléæfinga
Vinnuvernd ehf. sinnir fræðslu og ráðgjöf á sviði
vinnuverndar fyrir alla vinnustaði.
Vinnuvernd ehf. er viðurkenndur þjónustuaðili
á sviði öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum.
Nánari upplýsingar í síma 578 0800 og á vinnuvernd.is
Vinnuumhverfi á þínum vinnustað
Vinnuvernd ehf. hefur um árabil sinnt fræðslu og ráðgjöf á sviði
vinnuverndar, heilsuverndar og heilsueflingar.