Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 56
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Grínistinn og þáttastjórnandinn
vinsæli, John Stewart, hyggst taka
sér stutt frí frá The Daily Show í
sumar til að leikstýra sinni fyrstu
kvikmynd. Myndin ber titilinn
Rosewater og er handrit henn-
ar byggt á bókinni Then They
Came for Me: A Family’s Story Of
Love, Captivity And Survival eftir
fréttamanninn Maziar Bahari.
Bókin segir frá því þegar Bah-
ari heimsótti Íran árið 2009 í þeim
tilgangi að flytja fréttir af forseta-
kosningunum þar í landi. Bahari
átti aðeins að dvelja í viku í land-
inu en var handtekinn fyrir njósn-
ir og fangelsaður í 118 daga.
Stewart skrifar einnig handrit
myndarinnar en Scott Rudin mun
framleiða hana.
Leikstýrir kvikmynd
John Stewart þreytir frumraun sína sem leikstjóri.
TEKUR SÉR FRÍ
John Stewart
tekur sér frí
frá The Daily
Show til þess að
leikstýra sinni
fyrstu kvikmynd.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Carrie Fisher, sem fór með hlutverk Lilju prinsessu í
upprunalega Stjörnustríðsþríleiknum á árunum 1977 til 1983, virð-
ist reiðubúin að draga prinsessubúninginn fram á ný fyrir væntan-
lega Star Wars-mynd.
Í viðtali við Palm Beach Illustrated var Fisher spurð beint út
hvort hún hygðist leika Lilju í nýju myndinni, sem leikstýrt verður
af J.J. Abrams, og svaraði játandi. „Hún verður gömul,“ sagði
Fisher, innt eftir því hvernig hún myndi koma fram í myndinni.
„Hún er á elliheimili í geimnum. Ég hugsa að hún verði alveg eins
og hún var, nema hægari og síður til í miklar orrustur.“
Einnig er talið líklegt að Mark Hamill og Harrison Ford, sem léku
Loga Geimgengil og Hans Óla í gömlu myndunum, bregði sér einn-
ig í sömu hlutverk í væntanlegri Star Wars-mynd en ekkert hefur
verið staðfest í þeim efnum.
Carrie Fisher fer aft ur
í prinsessubúninginn
Lilja prinsessa „gömul“ í nýju Star Wars-myndinni.
STJÖRNUSTRÍÐ Carrie Fisher, hér með þá Mark Hamill og Harrison Ford á milli sín,
virðist tilbúin í meira Star Wars.
Ævintýramyndin Oz the Great
and Powerful verður frumsýnd í
kvikmynda húsum annað kvöld.
Myndin er í leikstjórn Sam Raimi
og þykir minna um margt á stíl
meistara Tim Burton.
Oz the Great and Powerful segir
frá töframanninum Oscar Diggs,
sem er þeytt frá Kansas af felli-
byl til hins litríka lands Oz. Diggs
telur sig hafa dottið í lukkupott-
inn enda er Oz töfrandi staður og
íbúar landsins hafa lengi beðið
eftir miklum töframanni sem
gæti verið sjálfur Diggs. Hann
hittir svo þrjár nornir, Theodóru,
Evanóru og Glindu, sem eru fullar
efasemda um að Diggs sé í raun sá
mikli töframaður sem hann segist
vera. Í kjölfarið flækist Diggs inn í
þann vanda sem blasir við landinu
og íbúum þess en með hæfileikum
sínum og gáfum tekst honum ekki
einungis að verða betri maður,
heldir einnig umbreyta sér í
hinn mikla galdramann sem allir
þekkja.
Stórstjörnur fara með helstu
hlutverk myndarinnar og má þar
helst nefna James Franco í hlut-
verki töframannsins Oscar Diggs.
Michelle Williams leikur norn-
ina Glindu, Rachel Weisz fer með
hlutverk nornarinnar Evanóru og
Mila Kunis leikur Theodóru. Að
sögn Williams þótti henni sérlega
gaman að fá tækifæri til að leika
„góðu nornina“ og þá sérstaklega
vegna þeirra viðbragða sem hún
fékk frá börnum þegar hún var í
fullum skrúða. Kunis sagðist ekki
hafa fengið sömu viðbrögð við
sinni persónu. „Persónurnar taka
allar breytingum í gegnum mynd-
ina, hvort sem þær eru líkamlegar
eða andlegar. Börn brostu ekki til
mín þegar ég var komin í búning-
inn, það get ég sagt ykkur,“ sagði
hún í viðtali við vefsíðuna Yahoo!
Movies.
Leikstjóri myndarinnar, Sam
Raimi, er ekki ókunnugur því að
leikstýra kvikmyndum sem byggð-
ar eru á skáldskap því hann hefur
leikstýrt þremur kvikmyndum um
Köngulóarmanninn; Spider-Man,
Spider-Man 2 og Spider-Man 3.
Síðasta mynd hans var hrollvekj-
an Drag Me to Hell frá árinu 2009
sem hlaut einstaklega góða dóma.
Oz the Great and Powerful hlýt-
ur 67 prósent í einkunn á vef-
síðunni Rottentomatoes.com og
7.2 á vefsíðunni Imdb.com. Gagn-
rýnandi Village Voice var lítt hrif-
inn af myndinni og sagði að við
áhorfið hafi hann lengt eftir þeim
töktum sem Raimi sýndi í Drag Me
to Hell. Annar gagnrýnandi segir
Oz the Great and Powerful aftur á
móti vera ánægjulega endurkomu
til Oz. - sm
Fín endurkoma til Oz
Kvikmyndin Oz the Great and Powerful verður frumsýnd annað kvöld. Myndin
skartar James Franco í hlutverki galdrakarlsins og hefur fengið ágæta dóma.
GÓÐ ENDURKOMA Oz The Great And Powerful er forsaga hinnar sígildu sögu um Galdrakarlinn í Oz.
Verslunarhúsnæði til leigu
Gott 245m² - 530m² verslunarhúsnæði í Bolholti til leigu og
afhendingar strax. Verslunin er í alfaraleið rétt fyrir ofan Lauga-
veginn með góðu aðgengi og bílastæðum beint við inngang. Hús-
næðið getur leigst í 2 einingum, en það skiptist í 245m² á jarðhæð
með 105m² bakrými á 2. hæð, auk samtengdri 180m² óupphitaðri
skemmu með stórum innkeyrsludyrum. Hentar vel verslunum sem
þurfa að hafa vinnu-/sýningaraðstöðu og lagerinn við hendina.
Verð tilboð.
Áhugasamir hafið samband við
sölumenn okkar.
Sími 511 2900
FERÐAFÉLAGAR Líf Sal Paradise breytist til muna þegar hann kynnist parinu
Dean Moriarty og Marylou og ferðast með þeim þvert yfir Bandaríkin.
Stolið nafn og ógleymanleg ferð
Auk Oz eru tvær myndir frumsýndar um helgina. Þær eiga það sameiginlegt að í
báðum ferðast fólk þvert yfi r Bandaríkin, í mismunandi erindagjörðum þó.
Gamanleikarinn Jason Bateman
leikur kaupsýslumanninn kurteisa
Sandy Patterson í gamanmyndinni
Identity Thief, sem er frumsýnd
um helgina. Sandy þessi neyðist
til að ferðast þvert yfir Bandarík-
in, frá Denver alla leið til Miami,
til þess að standa uppi í hárinu á
manneskjunni sem er að stela nafn-
inu hans. Þar hittir hann hina sak-
leysislegu Diönu, sem er leikin af
hinni sprenghlægilegu Melissu
McCarthy, og í ljós kemur að hún
er búin að lifa góðu lífi í dágóðan
tíma á hans kostnað. Hann reynir
öll brögð til að ná Diönu með sér
aftur til Denver og þannig hreinsa
nafn sitt, en það er ekki eins auð-
velt og það hljómar því Diana er
ekkert lamb að leika sér við.
Græna ljósið frumsýnir drama-
myndina On the Road um helgina.
Myndin er eftir Walter Salles og
skartar þeim Sam Riley, Garrett
Hedlund, Kristen Stewart og Amy
Adams í aðalhlutverkum. Kirsten
Dunst og Viggo Mortensen eru síðan
á meðal annara leikara.
Myndin byggir á samnefndri bók
Jacks Kerouac og segir frá rithöf-
undinum unga Sal Paradise. Líf hans
breytist til muna þegar hann kynnist
hinum frjálslynda Dean Moriarty og
kærustunni hans Marylou.
Saman ferðast þremenningarnir
um Bandaríkin og hitta fyrir fjölda
fólks, sem allt á sinn þátt í því að
gera ferðina ógleymanlega.
- trs