Fréttablaðið - 07.03.2013, Síða 60
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
„Þetta var bara alveg geðveikt og minn besti árang-
ur hingað til,“ segir Páll Valdimar Guðmundsson
Kolka sem nýverið lenti í fjórða sæti á Evrópu-
meistaramótinu í jójó sem fór fram síðustu helgi í
Búdapest.
Um 120 manns kepptu á Evrópumótinu þar sem
Páll var í svokölluðum A-hópi fyrir færustu kepp-
endurna. Páll hefur iðkað jójólistina síðastliðin
átta ár, en það sem byrjaði sem saklaust áhugamál
hefur aldeilis undið upp á sig. Páll er nú kominn
á samning hjá kanadíska jójóframleiðandanum
CLYW sem bæði skaffar honum jójó og styrkir
hann til keppnisferða víðs vegar um heiminn. „Það
var árið 2006 sem ég fattaði að ég gæti gert meira
úr þessu áhugamáli mínu. Þá fór ég sem áhorfandi
á keppni í Flórída með vini mínum og komst í sam-
band við fólk í þessum geira. Svo keppti ég í minni
fyrstu alvöru keppni árið 2010,“ segir Páll, sem er
iðinn við að halda út í heim að sýna jójólistir sínar.
„Í fyrra keppti ég í Flórída, Tékklandi, Japan og á
Spáni svo það er nóg að gera. Það munar miklu að
vera með styrktaraðila sem hjálpar til við ferða-
kostnaðinn.“
Páll hefur hannað sitt eigið jójó sem CLYW fram-
leiðir og er vinsælt meðal annarra iðkenda. Hann
segist semja sín jójótrix sjálfur og telur mikilvægt
að sýna hversu skapandi hann er þegar kemur að
stigagjöf dómara. „Svo finnur maður skemmtilega
tónlist undir og býr til atriði. Allt snýst þetta um að
búa til skemmtilega sýningu fyrir áhorfendur.“
Páll starfar sem vaktstjóri hjá Dominos en hættir
í lok mánaðarins. Hann hyggst einbeita sér að upp-
gangi jójólistarinnar hér á landi. Að sögn Páls er
jójó vinsælast í Tékklandi, Japan og Rússlandi en
á Íslandi er hann bara rétt að byrja að breiða út
boðskapinn. „Mig langar að búa til alvöru senu á
Íslandi og ég stefni á að halda Norðurlandamótið í
jójó hér á landi á næsta ári.“ alfrun@frettabladid.is
Keppir í jójólistinni
úti um allan heim
Páll Valdimar Guðmundsson Kolka er 21 árs Hafnfi rðingur og einn mesti jójó-
snillingur landsins. Hann er nýkominn heim eft ir frækna för til Búdapest þar
sem hann lenti í 4. sæti af 120 á Evrópumeistaramótinu í jójó.
Fyrsta jójóið var búið til í Grikklandi til forna en það varð fyrst vinsælt sem leik-
fang og afþreying á þriðja áratug síðustu aldar í Bandaríkjunum. Fyrsta sérhæfða
jójó fyrirtækið sem vitað er um, Yo-yo Manufacturing Company, var opnað í Santa
Barbara í Kaliforníu árið 1929 og síðan hefur jójóæði gripið æskufólk af og til í
gegnum söguna, meðal annars hér á Íslandi í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar.
Jójóæði skýtur upp kollinum
HÁLFGERÐUR ATVINNU-
MAÐUR Páll Valdimar
Guðmundsson Kolka
lenti í fjórða sæti á
Evrópumeistara mótinu í
jójó í Búdapest um síðustu
helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÁÐU GÓÐ RÁÐ VIÐ OFNÆMI
NEUTRAL.IS
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum fráDönsku astma- og ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
6
27
19
0
1.
20
13
BÍÓ ★★★ ★★
Jagten
Leikstjórn: Thomas Vinterberg
Leikarar: Mads Mikkelsen, Thomas Bo
Larsen, Alexandra Rapaport, Annika
Wedderkopp, Susse Wold.
Það sem margir óttast mest af öllu
er að vera sakaðir ranglega um
hræðilegan glæp. Hin martraðar-
kennda Jagten fjallar einmitt um
það, og segir frá Lúkasi, leikskóla-
kennara í litlu þorpi, sem grunur
leikur á að hafi brotið kynferðislega
gegn barni í sinni umsjá. Við þess-
ar ásakanir fer líf hans algjörlega
á hvolf og smám saman er honum
útskúfað úr samfélaginu.
Umfjöllunarefni myndarinn-
ar er vandmeðfarið, enda er það
hagsmunamál allra að grafa ekki
undan trúverðugleika barna sem
segja frá ofbeldi. Á köflum er erf-
itt að njóta myndarinnar án þess
að spóla í þeim hugsunum. En Jag-
ten er ekki pólitísk yfirlýsing held-
ur þrælspennandi og hádramatísk
kvikmynd með frábærum leikhópi.
Mads Mikkelsen er ekki bara
einn allra besti núlifandi leikarinn
frá Danmörku, heldur alþjóðlegur
stórleikari sem virðist geta tekist á
við hvaða hlutverk sem er. Hin unga
Annika Wedderkopp gefur honum
lítið eftir og leikstjórinn passar
að persóna hennar detti ekki í ein-
hvern grautfúlan klisjupytt um „illa
barnið“. Afleiðingar orða hennar
eru hrikalegar, en áhorfandinn áttar
sig á því að hún er óviti.
Og óneitanlega hugsar maður
til athugasemdakerfa vefmiðlanna
þegar íbúar smábæjarins ráðast
gegn Lúkasi, fullir af heilagri reiði
og sjálfsréttlætingu. Erfiðar senur
að horfa á, sérstaklega þegar áhorf-
andinn veit betur.
Það hefðu ekki allir getað tæklað
Jagten jafn vel og Thomas Vinter-
berg, og þegar myndin færir sig
hægt og rólega inn á slóðir spennu-
tryllisins verður hún bara sterkari
ef eitthvað er. Lokasenan er síðan
kynngimögnuð, en ég held henni
fyrir mig að svo stöddu.
Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Mögnuð mynd sem
situr lengi í áhorfandanum.
Martröð Mikkelsen