Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 61
FIMMTUDAGUR 7. mars 2013 | MENNING | 53
Svo virðist sem ástarloginn hafi
slokknað hjá stjörnuparinu Miley
Cyrus og Liam Hemsworth.
Sögur hafa verið á kreiki um það
að undanförnu að parið hafi gengið
í það heilaga í laumi, eftir að Miley
ýjaði að því í viðtali í marsútgáfu
tímaritsins Cosmo politan. Nú
hefur heimildarmaður ná kominn
parinu látið hafa eftir sér við
blaðið US Weekly að þau séu hætt
saman. Sá heimildar maður sagði
ástæðu sambandsslitanna vera
tímaleysi beggja og röng forgangs-
röðun.
Parið byrjaði saman árið 2009
en hefur gengið í gegnum miklar
hæðir og lægðir síðan.
Búið spil?
HÉLT HANN FRAMHJÁ? Sagan segir
að Liam hafi haldið framhjá Miley með
January Jones.
Leikkonan unga og efnilega Hera
Hilmarsdóttir er gestur Ragnhild-
ar Steinunnar í Ísþjóðinni í kvöld.
Þátturinn var tekinn upp á síðasta
ári þar sem Ragnhildur fór meðal
annars út til Bretlands og fylgd-
ist með Heru í tökum á sjónvarps-
eríunni Da Vinci‘s Demons sem
verður sýnd með vorinu í Evrópu
og Bandaríkjunum.
Sýnishorn úr þáttunum verður
einmitt frumsýnt í þættinum sem
og stikla úr stórmynd-
inni Anna Karenina
þar sem Hera leikur
samhliða Jude Law
og Keiru Knightly.
Hera er búsett í
Bretlandi en er
stödd hér á
landi þessa
dagana við
tökur á
myndinni
Vonar-
stræti.
Sýnt úr nýjum
þætti Heru
LEIKKONA
Hera
Hilmars dóttir
leikur þessa
dagana í
kvikmyndinni
Vonarstræti.
Útgáfurisinn Sony hefur lögsótt sænskan
mann fyrir að dreifa plötu söngkonunnar
Beyoncé á netinu áður en hún var gefin
út opinberlega. Sony fer fram á rúmar 29
milljónir króna í skaðabætur. Frá þessu er
greint á vefsíðu tónlistartímaritsins NME.
Lögfræðingar Somy halda því fram að
hinn 47 ára gamli maður frá Gautaborg hafi
„lekið“ plötunni 4 með Beyoncé á netið hinn
8. júní árið 2011, rúmum tveimur vikum
áður en platan var gefin út opinberlega.
Nafn Svíans hefur ekki verið gert opinbert
en talið er líklegt að hann starfi innan tón-
listargeirans.
Sony heldur því fram að athafnir
mannsins hafi haft margvíslegar nei-
kvæðar afleiðingar í för með sér, þar
á meðal fyrir sölutekjur af plötunni og
markaðs herferð fyrir kynningu hennar.
Sony heldur því einnig fram að lekinn hafi
skaðað samband fyrirtækisins við söng-
konuna og að orðspor Beyoncé hafi beðið
hnekki fyrir vikið.
Fyrr á þessu ári voru tveir enskir menn
dæmdir í sex mánaða skilorðsbundið fang-
elsi og hundrað klukkustunda samfélags-
vinnu fyrir að niðurhala ólöglega um
7.000 skjölum með tónlist frá Sony, meðal
annarra plötum með Michael Jackson, Elvis
Presley og téðri Beyoncé.
Lögsóttur vegna Beyoncé-leka
Útgáfurisinn Sony fer fram á 29 milljónir í skaðabætur frá Svía.
BEYONCÉ
Sony heldur
því fram að
orðspor söng-
konunnar
hafi beðið
hnekki
vegna leka á
óútkominni
plötu hennar.