Fréttablaðið - 07.03.2013, Page 62
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
IDENTITY THIEF 8, 10.20
21 AND OVER 8, 10
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D 6
VESALINGARNIR 6, 9
ÍSL TAL!
5%
ÓSKARSVERÐLAUN
M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS
DANIEL DAY-LEWIS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
-EMPIRE
21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10 14
THIS IS 40 KL. 8 12 / DIE HARD 5 KL. 10.20 16
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.50 12
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
IDENTITY THIEF LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L
ÓFL TTINN F ÁR JÖRÐU 2D KL. 3.40 L
THIS IS 40 KL. 6 12
DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16
DJANGO KL. 9 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L
- H.S.S., MBL
IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THIS IS 40 KL. 10.40 12
LINCOLN KL. 6 - 9 14
LIFE OF PI 3D KL. 5.20 - 8 10
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
V I P
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
EMPIRE
3
R.EBERT
ENTERTAINMENT WEEKLY
LA TIMES
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miða-
sala: 412 7711 Hverfi sgata 54 Rvík www.bioparadis.is Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
****- Rás 2
****- Fréttablaðið
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinnHVELLUR
*****-Morgunblaðið THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 20:00, 22:10BEYOND THE HILLS (16) 21:30
KON-TIKI (12) 20:00, 22:10
HVELLUR (L) 19:00
ST. SIG: STRIGI OG FLAUEL (L) 17:45, 20:15
RISE FLUGUVEIÐIHÁTÍÐIN (L) 20:00ST. SIG:
STRIGI OG
FLAUEL
★★★ ★★
Árstíðir
Tvíeind
EIGIN ÚTGÁFA
Árstíðir er ein af þessum harð-
duglegu íslensku hljómsveitum
sem fjármagna plöturnar sínar
sjálfar og spila úti um allar triss-
ur. Tvíeind er þriðja plata hljóm-
sveitarinnar sem var stofnuð 2008,
en hún hefur þegar spilað á tón-
leikum mjög víða í Evrópu, auk
þess sem fyrri plöturnar hennar
tvær voru endurútgefnar af þýska
fyrirtækinu Beste Unterhaltung
í fyrra. Tvíeind er EP-plata með
endurgerðum af fimm lögum af
annarri plötunni, Svefns og vöku
skil. Platan kom upphaflega bara
út stafrænt og var seld á Gogoyoko,
en vegna mikils áhuga var ákveðið
að gefa hana út á föstu formi líka.
Endurgerðirnar á Tvíeind eru
nokkuð ólíkar. Fjórar þeirra eru
„remix“ en ein er alveg ný útgáfa.
Tvö laganna fá trommu- & bassa-
yfirhalningu, annars vegar Ljóð í
sand í meðförum Danans Sakaris
og hins vegar Lost In You sem
Rússinn Veell endurgerir. Ruxpin
(Days & Nights) og Kippi Kanínus
(Shades) vinna báðir mjög vel úr
stemningunni í frumútgáfunum í
sínum endurgerðum þó að þær séu
ólíkar. Loks er það hljómsveitin
Iamthemorning frá St. Pétursborg,
en hún gerir alveg nýja útgáfu af
laginu Á meðan jörðin sefur. Söng-
kona sveitarinnar syngur lagið á
íslensku.
Tónlist Árstíða er undir venju-
legum kringumstæðum sambland
af órafmögnuðu indískotnu þjóð-
lagapoppi og klassík. Breytingin
hér er þess vegna töluverð. Það er
búið að raf- og taktvæða tónlistina.
Þó að endurgerðirnar séu ólíkar
þá eru þær allar vel heppnaðar og
bæta miklu við frumgerðirnar. Fín
plata. Trausti Júlíusson
NIÐURSTAÐA: Fimm áhugaverðar
endurgerðir af tónlist Árstíða.
Raf- og taktvæddar Árstíðir
Gítarleikarinn Guðmundur Péturs-
son og Kippi Kaninus halda tón-
leika á Faktorý Bar annað kvöld.
GP! band Guðmundar hefur
starfað frá útkomu plötunnar
Elabórat árið 2011. Hljómsveitin
leikur einnig efni af Ologies sem
kom út 2008 en báðar plöturnar
hafa vakið athygli fyrir nýstár-
lega blöndun ólíkra tónlistaráhrifa.
Á tónleikum er ferðast milli þaul-
skipulags og spuna af ættum progs,
síðrokks, blúss og glam-djass.
Kippi Kaninus hefur verið
starfandi í tólf ár og fengist við
tilrauna glaða raftónlist. Hann var
einn á báti til ársins 2011 þegar
trommarinn Magnús Trygvason
Eliassen gekk til liðs við hann.
Síðan þá hafa fleiri með limir bæst
við, eða þeir Pétur Ben, Óttar
Sæmundsen, Ingi Garðar Erlends-
son og Sigtryggur Baldurs son. Þeir
hafa nýlokið upptökum á plötu sem
kemur út á árinu.
Tónleikarnir annað kvöld hefj-
ast kl. 23 og er aðgangseyrir 1.000
krónur.
Gummi og Kippi spila
Guðmundur Péturs og Kippi Kaninus með tónleika.
SPILA
Á FAKTORÝ
Guðmundur
Pétursson og
Kippi Kaninus
spila annað
kvöld.
„Um leið og ég heyrði að það væri
verkefni í áfanganum sem sneri að
því að skipuleggja og setja upp við-
burð datt mér þetta í hug,“ segir
tómstundafræði neminn Jón Skúli
Traustason, sem ásamt samnem-
endum sínum Signýju Árna-
dóttur og Sirrý G.S. Sigurðar-
dóttur stendur að baki
styrktartónleikum fyrir Stíga-
mót í Fríkirkjunni í Reykjavík
hinn 4. apríl næstkomandi.
Viðburðastjórnun er einn
kúrs sem þremenningarnir
taka í tómstundafræðinámi
sínu í HÍ og segir Jón Skúli
að hann hafi ekki verið
mjög spenntur fyrir áfang-
anum áður en hann hófst en
sú skoðun hafi þó fljótlega
breyst. „Að setja upp þessa
tónleika er eitt það skemmti-
legasta sem ég hef gert, þó
að þetta hafi vissulega verið
mikil vinna,“ segir hann. Hann
telur þau þó hafa sloppið frekar
vel, þar sem allt hafi gengið draumi
líkast. „Allir sem við höfum talað
við um að aðstoða okkur við tón-
leikana hafa sagt já og auk þess hafa
listamennirnir verið duglegir við að
ráðleggja með hitt og þetta, sem er
ómetan legt,“ segir hann en þetta er
fyrsti stóri viðburðurinn sem Jón
Skúli, Signý og Sirrý standa fyrir.
Páll Óskar, Monika, Eyþór Ingi,
Vala Guðna, Andrea Gylfa, Lay Low
og Ellen Kristjáns stíga á stokk á tón-
leikunum og öll gefa þau vinnu sína.
Exton styrkir tónleikana um hljóð-
kerfið og afnot af Fríkirkjunni eru
einnig endurgjaldslaus. „Það eru allir
glaðir að geta styrkt þetta verðuga
málefni,“ segir Jón Skúli. „Ég þekki
það sjálfur hvað er unnið ótrúlega
mikilvægt starf þarna þar sem fólk
nákomið mér hefur þurft að leita
sér hjálpar hjá Stígamótum. Mér
finnst því frábært að fá tækifæri til
að styrkja þau á þennan hátt,“ bætir
hann við. Miðasala á tónleikana hefst
í dag á Midi.is. - trs
Frábært tækifæri
til að styrkja Stígamót
Nemar úr tómstundafræði í HÍ halda styrktartónleika
í Fríkirkjunni þar sem fram koma nokkur stór nöfn.
STÓR NÖFN Meðal þeirra
sem fram koma á tón-
leikunum eru Páll Óskar
og Monika, Lay Low og
Eyþór Ingi.