Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 70
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 62 Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 HARÐFISKUR - barinn og óbarinn LAXAFLÖK - beinhreinsuð og flott Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is „Ég er byrjaður að leggja drög að handritinu og ef allt gengur að óskum gæti ég byrjað að taka myndina upp á næsta ári,“ segir Ragnar Bragason leikstjóri, sem er í óða önn að breyta leikverk- inu Gullregn í kvikmyndahandrit. Verkið er frumraun Ragnars á sviði leiklistar og var frumsýnt í Borgar- leikhúsinu í nóvember í fyrra. Gullregn segir frá Indíönu, sem býr í blokk í Fellahverfinu og er umkringd fólki sem hún fyrirlítur. Meðal leikenda eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Bryn- hildur Guðjónsdóttir. Aðspurður segir Ragnar að það þurfi að huga að ýmsu þegar breyta á leikriti í kvikmyndahandrit. „Fyrst þarf að yfirstíga virðinguna fyrir frum- verkinu og þegar maður skrifaði frumverkið sjálfur, þá eru tilfinn- ingarnar djúpstæðari. Þegar Gull- regn varð til sem leikverk var ég alltaf með radarinn úti og spáði í það hvernig ég gæti mögulega gert verkið að kvikmynd. Ég hripaði hugmyndirnar niður á sínum tíma og gat því gengið að þeim núna.“ Hann segist vilja fá sama leikara hópinn til að endurtaka hlutverk sín í kvikmyndinni. „Ég hef leyft leikurunum að fylgjast með gangi mála og það ríkir mikil spenningur fyrir verkefninu.“ Ragnar viðurkennir að þær góðu móttökur sem Gullregn hefur feng- ið hafi ýtt enn frekar undir þá löng- un hans til að vinna meira við leik- hús. „Mér finnst ágætt að blanda þessu tvennu saman. Smjörþefur- inn sem ég fékk við gerð Gullregns hefur bara æst í manni hungrið,“ segir leikstjórinn að lokum. - sm Breytir frumrauninni í kvikmyndahandrit Ragnar Bragason vinnur að því að breyta leikritinu Gullregn í bíóhandrit. Tökur gætu hafi st á næsta ári. LEIKHÚSIÐ HEILLAR Ragnar Bragason vinnur að því að breyta leikverki sínu, Gullregni, í kvikmyndahandrit. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Þegar ég sá hann fyrst fannst mér hann bara vera í þrívídd, þetta var svo óraunverulegt,“ segir Auður Eva Peiser Ívarsdóttir, sem hitti goðið sitt Justin Bieber bak- sviðs fyrir tónleika í London um síðustu helgi. Auður Eva, sem er á fimm- tánda aldursári, vann svokallaðan „meet and greet“-miða í gegnum aðdáenda síðu hans. Hún þurfti að senda þangað tölvupóst með ljós- mynd af öllu Justin Bieber-dótinu sem hún átti, ásamt fleiri upplýs- ingum. Að auki lét hún fylgja með aukalega tveggja blaðsíðna langt bréf um að hún væri frá Íslandi og að hún væri á leiðinni til London á tónleikana. Hún bætti við að hún hefði staðið fyrir Bieber-göngunni á Íslandi árið 2011 ásamt vinkon- um sínum. „Það voru um tvö þúsund manns sem tóku þátt í þessari keppni en bara tíu sem unnu og ég var ein af þeim,“ segir Auður Eva, sem er enn í skýjunum. „Ég fékk að vita kvöldið fyrir tónleikana að ég fengi að hitta hann og ég grét og grét.“ Hún segir fundinn með Bieber hafa verið draumi líkastan. „Þegar ég labbaði inn til að stilla mér upp við hliðina á honum þá var hann brosandi og rosalega ánægður og ég varð mjög glöð að sjá það.“ Eftir að tekin hafði verið mynd af þeim saman föðmuðust þau áður en Bieber þurfti að fara og hitta fleira fólk. „Ég labbaði tvö skref frá honum í gegnum eitthvert tjald og þá datt ég í gólfið og fór að hágráta. Ég gat varla andað. Ég hljóp svo til mömmu í fangið á henni og hélt áfram að gráta. Ég grét í svona klukkutíma eftir þetta,“ segir hún hlæjandi. Auður Eva, sem er í Hvaleyrar- skóla í Hafnarfirði, segir Bie- ber vera fullkominn á alla vegu. „Hann er líka svo indæll. Ég er sko alls ekki búin að jafna mig og ég mun pottþétt aldrei gera það.“ Breskir fjölmiðlar greindu frá því daginn eftir tónleikana að þeim hefði seinkað um tvo tíma og vönduðu Bieber ekki kveðjurnar. Auður Eva segir það algjört kjaft- æði. Tæknilegir örðugleikar hafi valdið því að þau þurftu að bíða í 45 mínútur eftir popparanum. „Þetta var ekki Justin að kenna og það var bara mjög illa gert af þeim af klína þessu öllu á hann.“ freyr@frettabladid.is Hitti Justin Bieber og hágrét í klukkutíma Auður Eva Peiser Ívarsdóttir hitti goðið sitt Justin Bieber á tónleikum í London. MEÐ BIEBER Auður Eva með átrúnaðargoði sínu Justin Bieber baksviðs í London. Justin Bieber var ekki eina stjarnan sem Auður Eva hitti baksviðs því leikarinn Jaden Smith var einnig á svæðinu og gaf henni miða með auglýsingu fyrir nýjustu kvikmynd sína After Earth sem kemur í bíó í júní. Fékk miða frá leikaranum Jaden Smith María Ólafsdóttir syngur lagið Lýsi í myrkri ásamt Kristmundi Axel, en myndband við lagið hefur fengið yfir tólf þúsund áhorf á Youtube á aðeins þremur dögum. Lagið er úr smiðju upptökuteymisins Stop Wait Go, sem er skipað Sæþóri Kristjáns- syni og bræðrunum Pálma Ragnari og Ásgeiri Orra Ásgeirssonum. „Ég hef aðeins unnið með strák- unum í Stop Wait Go og þeir spurðu mig hvort ég vildi ekki syngja lagið með Kristmundi,“ segir María um verkefnið. Lýsi í myrkri er þegar komið í spilun á útvarpsstöðinni Fm 957 og viðurkennir María að það sé skrýtið að heyra sjálfa sig syngja í útvarpinu. „Ég vissi ekki alveg við hverju ég mátti búast en viðtökurn- ar hafa verið góðar.“ Hún segir söng og leiklist helstu áhugamál sín og hyggur á framhalds nám í tón- og leiklist. „Ég hef aldrei lært söng en hef sungið frá því ég man eftir mér. Ég hef líka tekið þátt í leiksýningum frá tíu ára aldri, þar á meðal Söngvaseið sem var sett upp í Borgar leikhúsinu og í Michael Jackson-sýningunni á Broadway,“ segir María, sem hefur að auki komið fram í þremur nemendaleiksýningum Verslunar- skóla Íslands, þaðan sem hún lýkur stúdents prófi í vor. Þegar hún er spurð út í titil lags- ins segir hún hann hafa verið upp- sprettu góðlátlegs gríns meðal vina hennar. „Mér datt ekki í hug að titill inn gæti misskilist fyrr en vinir mínir byrjuðu að djóka með hann. En lagið fjallar ekki um lýsi,“ segir hún og hlær. - sm Lagið fj allar ekki um lýsi María Ólafsdóttir syngur danssmellinn Lýsi í myrkri sem er vinsælt á Youtube. SÖNGUR HELSTA ÁHUGAMÁLIÐ María Ólafsdóttir syngur lagið Lýsi í myrkri ásamt Kristmundi Axel. Lagið hefur fengið góðar viðtökur á Youtube. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI „Ég mæli eindregid med nýkreistum Jugo Verde-safa. Sérstaklega ef maður er staddur í Mexíkó.“ Ísold Uggadóttir kvikmyndagerðarkona. DRYKKURINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.