Fréttablaðið - 14.03.2013, Síða 32
FÓLK|TÍSKA
Áhugafólk um íslenskt skart og silfurgripi ætti að heimsækja Þjóðminjasafnið á Hönnunar-
Mars en þar eru í gangi þrjár ólíkar
sýningar sem allar fjalla um íslenska
silfur- og gullsmíði.
Sýningin Silfur...13 var opnuð á
þriðjudaginn á Torgi Þjóðminjasafns-
ins. Þar sýna fjórir gullsmiðir, þau
Erling Jóhannesson, Helga Ósk Einars-
dóttir, Orri Finnbogason og Þorbergur
Halldórsson, en þau tefla saman hug-
myndum um samtíma gullsmíði og
sögulega arfleifð og veita innsýn inn
í fjölbreytileika starfs gull- og silfur-
smiða í dag.
Sýningu fjórmenninganna er áhuga-
vert að skoða í samhengi við hátíðar-
sýningu Þjóðminjasafnsins, Silfur Ís-
lands, í Bogasalnum, en sú sýning var
sett upp í tilefni 150 ára afmæli safns-
ins. Þar gefur að líta silfurgripi frá síð-
miðöldum og frá fyrri hluta 20. aldar,
meðal annars borðbúnað, búninga-
silfur og kaleika.
Þá er sýningin Silfursmiður í hjáverk-
um á annarri hæð safnsins þar sem
sett hefur verið upp dæmigert alda-
mótaverkstæði silfursmiðs og hægt
er að skoða áhugaverð verkfæri og tól
smiðsins.
ÍSLENSK SILFUR-
SMÍÐI ÞÁ OG NÚ
HÖNNUNARMARS Íslensk silfursmíði er nú í aðalhlutverki á Þjóðminjasafni
Íslands, en yfirstandandi eru þrjár sýningar sem allar fjalla um silfur og gull.
SILFUR ÍSLANDS Á hátíðarsýningu Þjóðminjasafnsins í Bogasal er að finna
silfurgripi frá síð-miðöldum og frá fyrri hluta 20. aldar, meðal annars borð-
búnað, búningasilfur og kaleika. MYND/VILHELM
SILFUR...13 Sýningu fjórmenninganna á Torgi Þjóðminjasafnsins
er áhugavert að skoða í samhengi við hátíðarsýningu safnsins,
en þeir tefla saman hugmyndum um samtíma gullsmíði og sögu-
lega arfleifð í verkum sínum.
SILFURSMIÐUR Í HJÁVERKUM Á annarri hæð safnsins hefur
verið sett upp dæmigert aldamótaverkstæði silfursmiðs þar sem
hægt er að skoða verkfæri og tól.
Save the Children á Íslandi
20%
afsláttur af öllum vörum
Vorútsala
13.–16. mars
Holtagörðum, s. 553-1800
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15
www.facebook.com/fondurlist
Föndur
FönFöndur
Fríar vinnustofur•
Kertaskreytingar
Skreyta Gestabækur
Shamballa Skartgripagerð
Skreyta myndaalbúm (skrapp)
• Þú greiðir aðeins fyrir efni
Úrvalið er hjá okkur
Föndraðu fyrir
ferminguna
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING AF VORVÖRUM!
Allt fyrir sumarfríið og fermingarnar.
50% AFMÆLISAFSLÁTTUR
AF VÖLDUM VÖRUM.
Ferskar fréttir
á Facebook!
facebook.com/frettabladid
Splæstu á eitt like á Fréttablaðið á Facebook
og fáðu ferskustu fréttirnar á síðuna þína.
Heppinn vinur Fréttablaðsins vinnur iPad.