Fréttablaðið - 05.04.2013, Síða 8
5. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
RÚMGÓÐUR, SPARNEYTINN
…OG 7 MANNA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
0
8
8
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
Sæti fyrir sjö 16” álfelgur Tölvustýrð miðstöð með loftkælingu Fjarlægðarvari að framan og aftan
Bluetooth handfrjáls símabúnaður Aðfallanlegir rafmagnsspeglar Aðgerðahnappar í stýri
Hraðastillir (Cruise control) Hiti í framsætum iPod og Aux-tengi Regnskynjari LED ljósabúnaður
VERÐ 4.790.000 KR.
RENAULT GRAND SCENIC
DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
B
íll
á
m
yn
d
er
m
eð
D
yn
am
ic
a
uk
ah
lu
ta
pa
kk
a
og
1
7”
á
lfe
lg
um
.
Það vekur þó sérstak-
lega áhyggjur að þessi
verkefni eru ekki það sem
slökkvilið sveitarfélag-
anna voru hönnuð í
kringum.
Björn Karlsson,
forstjóri Mannvirkjastofnunar
ASKÝRING | 8
HÆTTA Á GRÓÐURELDUM ÓGNAR SUMARHÚSABYGGÐUM
Slökkvilið á landsbyggðinni
eru ekki skipulögð með baráttu
við gróðurelda í huga og er það
áhyggjuefni, segir Björn Karls-
son, forstjóri Mannvirkjastofn-
unar. Hann hefur áhyggjur af tíð-
ari gróðureldum og stækkandi
umfangi þeirra.
„Við höfum áhyggjur af þessu
því loftlagsbreytingar og gróður-
farsbreytingar hafa orðið,“ segir
Björn. Hann bendir jafnframt á að
breytingar hafi orðið á því hvernig
bændur beita skepnum á gróður-
lendi. Birkiskógar í sumarhúsa-
byggðum hafa farið stækkandi og
sina verður meiri.
„Breytingarnar hafa orðið til
þess að miklu meiri líkur eru á
því að svona eldsvoðar verði og
að þeir verði stórir,“ segir Björn.
Hann bætir við að í ofanálag verði
að hafa í huga þétta sumarhúsa-
byggð, þar sem gróður nær oft
alveg upp að húsunum.
„Það vekur þó sérstaklega
áhyggjur að þessi verkefni eru
ekki það sem slökkvilið sveitar-
félaganna voru hönnuð í kring-
um,“ bætir Björn við. Verkefnin
eru mannfrek því hafa þarf tugi
manna á vöktum við að klappa
eldinn. Slökkvilið sveitarfélaga
eru oft aðeins skipuð fámennum
sveitum. Gróðureldar verða því
fljótt að almannavarnarástandi
þar sem viðbragðsáætlanir taka
yfir staðbundið verkskipulag.
Eftir Mýraelda árið 2006 hóf
Mannvirkjastofnun menntunar-
átak til þess að búa viðbragðsaðila
undir gróðurelda. „Okkur brá við
Mýraeldana,“ segir Björn.
Hugað að sértækum áætlunum
Hvergi eru til sértækar viðbragðs-
áætlanir fyrir sumarhúsabyggðir
annars staðar en í Skorradal en
Björn telur það aðeins til bóta að
slíkar áætlanir séu unnar fyrir
þétt sumarhúsasvæði.
„Þó almenna viðbragðsáætlun-
in dugi ansi langt geta menn lært
mjög mikið á því að fara í gegn-
um vinnu við sértækar áætlanir.“
segir Björn.
Slökkviliðin ráða
ekki við gróðurelda
Engar viðbragðsáætlanir eru til fyrir sumarhúsabyggðir á Íslandi nema í Skorradal.
Stjórnsýslan þarf að taka hættu á gróðureldum fastari tökum, segir skógarbóndi.
Að morgni 30. mars 2006 kviknaði eldur í sinu í Hraunhreppi í Borgarfirði.
Eldurinn barst með með ógnarhraða um sveitina. Eftir að eldarnir höfðu
logað í þrjá daga sagði Fréttablaðið frá því á forsíðu að um væri að ræða
„mestu sinuelda Íslandssögunnar“.
„Ég verð að segja eins og er að umfang þess eldsvoða kom okkur mjög á
óvart,“ segir Björn Karlsson nú.
➜ 67 ferkílómetrar brunnu á þremur dögum
Birgir Þór
Harðarson
birgirh@frettabladid.is
Undir áhyggjur Björns tekur Hulda Guð-
mundsdóttir, skógarbóndi í Skorradal, sem
komið hefur að gerð áætlunar vegna gróður-
elda þar. „Samfélagið hefur verið of sofandi
fyrir þessu. Það þurfti að hafa talsvert
fyrir áætluninni í Skorradal,“ segir Hulda.
Hún segir stjórnsýsluna ekki hafa kveikt á
perunni varðandi gróðureldhættu. „Við sem
skógarbændur erum komin svolítið langt en
þar erum við ekki að fást við mannslíf eða
fasteignir.“
Hún segir það nauðsynlegt að til séu
sértækar viðbragðsáætlanir fyrir sumarhúsa-
byggðir. „Sveitarfélögin þurfa að vakna. Þau
þurfa að átta sig á því að efla þarf rýmingar-
áætlanir og sjá til þess að slökkviliðin séu
tækjum búin til þess að sinna þessu.“
Hulda segir jafnframt óvíst með flótta-
leiðir og færi stórra og þungra bíla inn á
frístundahverfin. „Þar eru langir botnlangar
og engar aðrar leiðir út úr hverfunum. Er
rými fyrir stóra bíla að athafna sig? Hvert
er burðarþolið?“ Spurð hvort hún hafi verið
skelkuð um páskahelgina þegar sinueldur
braust út segir Hulda: „Ég hef verið hrædd í
15 ár.“
➜ Hef verið hrædd við gróðurelda í 15 ár
HULDA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
3. MUNAÐARNES
1. ÞINGVELLIR
OG GRÍMSNES
2. SKORRADALUR
4. BREKKUSKÓGUR, ÚTHLÍÐ
OG LAUGARVATN
1 4
2
3
811
HÚS
241
HÚS
1201
HÚS
3171 HÚS Í
GRÍMSNESI
712 HÚS VIÐ
ÞINGVALLA-
VATN
HEIMILDIR OG KORT: SAMSÝN.
FJÖLDI BYGGINGA ER ÁÆTLAÐUR.
ÞÉTTLEIKI
SUMARHÚSA-
BYGGÐA