Fréttablaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 40
5. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Magnúsar Þorláks
Lúðvíkssonar
Þybbinn og léttskeggjaður hermaður með vinalegt andlit hleypur óttasleg-
inn í snjóbyl. Stórvaxinn ísuppvakningur
nálgast hermanninn. Dagar hans eru tald-
ir. Á síðustu stundu kemur risastór úlfur
aðvífandi og fellir uppvakninginn. Á sama
andartaki mæta fleiri hermenn og kveikja
í skrímslinu sem deyr. Svona er upphafs-
atriði fyrsta þáttar þriðja seríu af fantasíu-
sjónvarpsþáttunum Game of Thrones sem
sýndur var á mánudag. Rosaleg fantasía
á skjánum og allt sem ég gat hugsað um
var alþjóðlega fjármálakreppan 2007 og
2008. Í þessum þáttum er nefnilega
að finna bestu allegoríu sem ég hef
fundið um þá stórkrafta sem að lokum
leiddu til fjármálakreppunnar. Svo
góða allegoríu að ég get ekki horft
á þættina án þess að leiða hugann að
þessu. Hvort það segir meira um þætt-
ina eða mig er vafamál.
Í ÞÁTTUNUM er sagt frá hópi
hermanna sem hafast við á risa-
stórum Kínamúr sem reistur
var árþúsundum áður til að
hindra aðgang þessara bless-
uðu ísuppvakninga að löndum
manna. Þá var hermönnum
komið fyrir á veggnum til að
verja hann. Ástæða þess að grip-
ið var til þessara rosalegu varúð-
arráðstafana var sú að ísuppvakn-
ingarnir höfðu næstum tortímt
löndum manna í stríði. Vandinn er
sá að þegar þættirnir gerast hefur hættan
næstum gleymst. Herliðið á veggnum er
því of fáliðað til að berjast við ísuppvakn-
ingana sem hafa látið á sér kræla á ný.
Stríð er í aðsigi.
EN HVAÐ hefur þetta með fjármálakrepp-
una að gera? Jú, sjáið til. Eftir krepp-
una miklu, sem meðal annars stafaði af
of mikilli áhættusókn og skuldsetningu í
fjármálakerfinu, voru reistir alls konar
veggir til þess að koma í veg fyrir að slíkt
gæti gerst aftur. Varúðarráðstafanirnar
voru kannski of miklar en vandinn er sá
að hinar öfgarnar tóku við þegar minning-
arnar um kreppuna miklu fóru að gleym-
ast. Reglur um fjármálastarfsemi urðu of
léttvægar og viðhorf til skuldsetningar og
áhættusóknar of jákvæð. Afleiðingin varð
að lokum fjármálakreppa. Í raunheimum
eins og í fantasíunni var slakað of mikið á
varúðarreglum sem endaði með ósköpum.
ÞAÐ ER athyglisvert við svona þróun að
voða lítið er hægt að gera til að koma í veg
fyrir hana. Hvernig getur ein kynslóð séð
til þess að sú næsta eða sú þarnæsta hagi
sér eins? Menn geta skrifað bækur og sett
lög en að lokum hefur það mest að segja
um ákvarðanir fólks hvað það finnur á
eigin skinni. Þegar allt hefur gengið eins
og í sögu í áratugi (eða árþúsund) þá verða
menn sjálfkrafa of værukærir gagnvart
hættum. Og þá verður fjármálakreppa, inn-
rás ísuppvakninga eða eitthvað allt annað.
Fjármálakreppa ísuppvakninganna1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. hljóðfæri, 6. rún, 8. þvottur, 9.
skyggni, 11. tveir eins, 12. óróleg, 14.
rófa, 16. pot, 17. af, 18. óðagot, 20.
persónufornafn, 21. þjappaði.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. stefna, 4. trjátegund, 5.
for, 7. starfræksla, 10. ar, 13. skarð,
15. rótartauga, 16. margsinnis, 19.
eldsneyti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. túba, 6. úr, 8. tau, 9. der,
11. rr, 12. ókyrr, 14. skott, 16. ot, 17.
frá, 18. fum, 20. ég, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. júdó, 3. út, 4. barrtré, 5.
aur, 7. rekstur, 10. ryk, 13. rof, 15. tága,
16. oft, 19. mó.
9,2!
Næs! Næstum
fullt hús!
Fyrir hvað? „Geronimo!“
Ok... ætla að
hætta að
reyna!
Ég sagði:
Ef tónlistin
er of hátt
stillt get
ég lækkað.
Og ég sagði: Ég
fann ekki eyrna-
tappana mína
svo ég notaði
sykurpúða í
staðinn.
Eigum við að
byrja að borða,
eða eigum við
að bíða eftir að
símasölufólkið
hringi?
VÁ!
Hlustaðu á
þetta!
ÓGEÐS-
LEGT!
Þetta
hljómar eins
og risaeðla!
Passaðu
þig! Hún
springur!
HLAUPUM!!!
Voða
fyndið.
Má ég minna þig
á að þú gafst
þeim læknadótið í
jólag jöf.
Dansstrákur
á hvíta tjaldið
Styr Júlíusson
leikur aðalhlutverkið
í Fölskum fugli.
Hann sér eftir því
að hafa hætt í ball-
ett sautján ára og
er pínu stressaður
fyrir frumsýningu
bíómyndarinnar.
MÓÐIR, DÓTTIR;
STÓRLEIKKONUR
Tinna Gunnlaugsdóttir er fyrsta konan í
starfi Þjóðleikhússtjóra. Hún fetaði ung í fót-
spor móður sinnar, stórleikkonunnar Herdísar
Þorvaldsdóttur sem féll frá um síðustu helgi.
Tinna ræðir opinskátt um listina og lífið.
FRÉTTABLAÐIÐ
ER HELGARBLAÐIÐ
Ómissandi hluti af góðri helgi
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000
Auglýsingar 512-5401 | visir.is
Veistu hvað þú lætur
ofan í þig?
Hver Íslendingur borðar 24 kíló
af kjúklingi á ári. Framleiðslu-
aðferðirnar eru umdeildar.