Fréttablaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 24
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og annað frábært. Hönnun, hugmyndir og heimlii. Sunneva Sverrisdóttir. Veru-leiki, heilsa og hollusta. Helgarmaturinn og spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 5. APRÍL 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Valgarður Gíslason
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
H
átíðin Aldrei fór ég suður, sem fram
fór á Ísafirði, var einstaklega vel sótt
þetta árið en talið er að á fimmta þúsund
manns hafi sótt hátíðina í ár, en þetta er
í tíunda sinn sem hún er haldin. Heima-
maðurinn Örn Elías Guðmunds-
son, einnig þekktur sem Mugi-
son, setti hátíðina með glæsi-
brag en á meðal gesta mátti sjá
leikkonuna Selmu Björnsdótt-
ur, fjölmiðlamanninn Sölva
Tryggvason, sjónvarps-
kokkinn Friðriku Hjör-
dísi Geirsdóttur og leik-
araparið Þórunni Örnu
Kristjánsdóttur og Vigni
Rafn Valþórsson.
Uppáhaldsflíkin? Uppáhaldsflíkin mín er kjóll sem
ég keypti fyrir sex árum í Viborg í Danmörku þegar
ég var að heimsækja bróður minn sem spilaði þar
fótbolta.
Hvaðan er hún? Kjóllinn er eftir einn af mínum
uppáhaldshönnuðum, Malene Birger.
Hvað er það sem gerir hana svona
æðis lega? Ég bara elska flíkur sem passa við
allt og geta bæði verið fínar og hvunndags.
Ég var hjá bróður mínum í viku og fór u.þ.b.
fimm sinnum að skoða kjólinn áður en ákvörð-
unin um kaupin voru tekin. Ég sé ekki eftir því
að hafa fest kaup á honum, hef notað hann
við svo mörg tækifæri og vinkonur mínar
hafa einnig fengið hann lánaðan.
Hvenær klæddistu honum síðast?
Ég fór síðast í hann um jólin. Flík sem
ég bara fæ ekki leiða á. Ég get
ekki sleppt því að tala um mest
notuðu flíkina í fataskápnum.
Það er dásamlegur silkiklútur
frá Plomo o Plata. Skemmti-
legur fylgihlutur sem pass-
ar við allt.
Hvað keyptirðu þér
síðast? Flíkin sem ég
keypti mér síðast er
Barbour-jakki í verslun-
inni Geysi á Akureyri.
Draumaflíkin? Mig hefur
lengi langað í ljósa Burberry-
kápu. Tel það vera klassíska ei-
lífðareign sem stelpurnar mínar
geta svo notað seinna.
ÓLÍNA JÓHANNA GÍSLADÓTTIR ANNAR EIGANDI VERSLUNARINNAR KASTANÍU
LENGI LANGAÐ Í LJÓSA
BURBERRY-KÁPU
Ólína segist
elska flíkur
sem passa
við allt
L
ögðu margir leið sína út fyrir borgarmörk-
in enda flott dagskrá víðs vegar um landið og
flestar skíðabrekkur opnar. Í Hlíðarfjalli á
Akureyri var frábær stemning og margt um
manninn en þar mátti sjá Einar
Bárðarson ásamt eiginkonu sinni,
Áslaugu Thelmu Einarsdóttur, og
börnum, fjölmiðlamanninn Kalla
Lú og söngvarann Jónsa, sem vakti
mikla lukku í fjallinu. Máttu þá
sjá ritstýruna Björk Eiðsdóttur á
fleygiferð í fjallinu sem og kær-
ustuparið Tobbu Marinós og
Karl Sigurðsson. Íþrótta-
álfurinn Dýri Kristjáns-
son sýndi einnig flotta
skíðatakta.
FRÆGA FÓLKIÐ FERÐAÐIST
VEL HEPPNUÐ PÁSKAHÁTÍÐ UM ALLT LAND
Ísland var svo sannarlega í hátíðarbúningnum þessa páskana, sólin skein, skíðabrekkurnar fylltust af fólki og íslenskt tón-
listarlíf blómstraði. Það er óhætt að segja páskahátíðin hafi tekist vel á fl estum stöðum enda veðrið upp á sitt allra besta.
F
ólk skemmti sér einnig
konunglega á Siglufirði
en á meðal gesta þar voru
rithöfundurinn
Hallgrímur
Helgason, dóttir
hans og ljós-
myndarinn
Hallgerð-
ur Hall-
grímsdóttir
og leikkonan
Björk Jakobs-
dóttir.
Á SKÍÐUM ALDREI FÓR ÉG SUÐUR Á SIGLUFIRÐI
Þó svo að margir hafi lagt leið
sína út á land síðastliðna helgi
nutu þó fjölmargir höfuðborgar-
innar. Ljósmyndarinn Nína Björk
Gunnarsdóttir varði til að mynda
páskunum hér á landi ásamt fjöl-
skyldu sinni en hún er búsett í
Lúxemborg. Sást hún spóka
sig með systrum sínum, þeim
Elmu Lísu Gunnarsdóttur leik-
konu og Tinnu Gunnarsdóttur
hárgreiðslukonu. Sást þá einnig
til Manúelu Harðardóttur í góðum fé-
lagsskap Ragnheiðar Guðfinnu
Guðnadóttur og Karenar Lindar.
Ásgeir Kolbeinsson hélt einnig til
í borginni ásamt vinum og vanda-
mönnum.