Fréttablaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 28
FRÉTTABLAÐIÐ Sunneva Sverrisdóttir. Veru-leiki, heilsa og hollusta. Helgarmaturinn og spjörunum úr.
6 • LÍFIÐ 5. APRÍL 2013
H
vernig myndirðu lýsa sjálfri
þér með nokkrum orðum?
Opin, ævintýragjörn og hress
ung kona sem veit hvað hún
vill.
Segðu mér aðeins frá fjölskyldunni
þinni? Ég kem úr frekar lítilli fjölskyldu,
en mjög góðri.
Ég bý í miðbænum hjá foreldrum
mínum og á eina eldri systur. Þó svo að
við séum bara tvær systurnar þá hafa
foreldrar okkar alltaf verið duglegir að
tala við okkur systurnar og séð til þess
að við erum náin.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Þegar ég var yngri ætlaði ég
mér að verða annaðhvort tannlæknir, þar
sem langafi minn var fyrsti tannlæknir-
inn á Íslandi, eða þá forseti, því ég vildi
búa á Bessastöðum.
Ertu enn á sömu skoðun eða áttu þér
nýjan draum sem þú ert kannski mark-
visst að stefna að í dag? Nei, í rauninni
á ég mér engan sérstakan draum eða
markmið sem ég stefni að akkúrat núna.
Það eina sem ég veit er að mig langar
til þess að vinna að einhverju sem mér
finnst áhugavert og skemmtilegt í fram-
tíðinni. Í dag legg ég stund á viðskipta-
fræði og hef mjög gaman af, svo hver
veit nema ég endi í einhverju viðskipta-
tengdu starfi.
Það er ekki beint bein tengsl á milli
náms í viðskiptafræði og kynlífsþáttar.
Hvernig vildi það til að þú bjóst til þátt-
inn Tveir + sex? Sumarið 2011 var ég
að vinna hjá Jafningjafræðslunni við að
fræða ungmenni um ýmis málefni, til að
mynda tóbak, sjálfsmynd, áfengi, kynlíf
og margt fleira þarft. Af þeim umræðum
sem áttu sér stað var kynlífsumræða
alltaf langlíflegust og mikið af áhuga-
verðum spurningum sem komu upp. Þá
áttaði ég mig á því að það væri að öllum
líkindum vettvangur til að gera eitthvað
fræðandi og skemmtilegt um málefnið.
Þaðan þróaðist svo hugmyndin í að búa
til Tveir + sex.
Finnst þér mikill munur á sjálfsímynd
stúlkna og drengja? Strákarnir voru án
efa ófeimnari við að spyrja um kynlíf í
jafningjafræðslunni, en ég vil samt ekki
endilega meina að það snúi að mismun-
andi sjálfsmynd kynjanna. Þeir eru bara
frakkari á þessum aldri.
Hver voru svo næstu skref í átt að þætt-
inum? Ég bar hugmyndina undir systur
mína, Hrefnu Björk Sverrisdóttur, og við
settum okkur í samband við Sigríði Dögg
Arnardóttur kynfræðing og þá fór bolt-
inn að rúlla. Hún er okkur innanhandar
í þættinum, enda uppfull af fróðleik og
visku um þessi mál. Við fórum svo með
hugmyndina til strákanna hjá Stórveld-
inu sem framleiða marga flotta íslenska
þætti á borð við Andra á flandri, Master
Chef og fleira. Þeir tóku vel í þetta og úr
varð þátturinn.
Nú er þetta frumraun þín í sjónvarpi,
finnst þér þetta ekkert mál? Nei, ég verð
að viðurkenna að það var auðveldara en
ég átti von á enda með góðan grunn í að
koma fram.
Þú valdir Veigar með þér sem með-
stjórnanda. Af hverju? Á stuttri skóla-
göngu minni í MH kynntumst við Veig-
ar og urðum fljótt góðir vinir. Veigar
er opinn, einlægur og hefur reynslu af
leiklist sem hefur komið sér vel. Svo er
mikil vægt að við treystum hvort öðru vel
þegar við vinnum með svona viðkvæmt
málefni og það gerum við. Ég hefði ein-
faldlega ekki getað hugsað mér betri
mann í verkið.
Nú er þátturinn mjög opinskár og
fræðandi, hvaða viðbrögð hafið þið
Veigar fengið? Við höfum fengið mjög já-
kvæð viðbrögð. Ungt fólk hefur verið
að koma upp að okkur og tala um að það
sé skemmtileg tilbreyting að sjá talað
á svona hispurslausan hátt í sjónvarpi
um jafn viðkvæmt málefni. Að sjálf-
sögðu eru einhverjir sem finnst verið að
ganga of langt en almennt hafa viðbrögð-
in verið góð. Það er ótrúlega gaman að fá
svo góðar viðtökur þegar að maður hefur
verið að vinna að svona verkefni mánuð-
um saman.
Er ekkert málefni sem þið treyst-
ið ykkur ekki til að taka fyrir? Í raun-
inni er ekkert sérstakt málefni sem var
of gróft eða viðkvæmt til þess að taka en
við lögðum upp með að tala ekki um neitt
neikvætt tengt kynlífi og nálgast öll um-
ræðuefni með opnu og jákvæðu hugafari.
Nú reynið þið ýmislegt sjálf í þættin-
um – hvað er það furðulegasta sem þú
hefur gert eða kannski óþægilegasta?
Mig grunar að Veigari hafi fundið vaxið
óþægilegast en persónulega fannst mér
mjög óþægilegt að ganga upp að ókunn-
ugu fólki og bjóða því á blint stefnumót.
En það þurftum við að gera í þætti okkar
um stefnumótamenningu Íslendinga. Ég
lét samt bara vaða og leið vel á eftir.
Hvað finnst fjölskyldunni um þetta
nýja starf þitt? Þau taka þessu bara vel.
Það er auðvitað frábært tækifæri að fá
að vinna að svona sjónvarpsþætti og
ég hef lært mikið af ferlinu. Foreldrar
mínir virðast hafa séð það fyrir þar sem
þau hvöttu mig til þess að gera verkefnið
svo lengi sem það yrði gert vel.
Er þörf á ýtarlegri fræðslu um kyn-
líf í skólakerfinu að þínu mati? Nú veit
ég ekki nákvæmlega hversu mikla kyn-
fræðslu unglingar fá í dag en það sem
ég veit er að það er mikilvægt að opna
umræðuna um kynlíf til þess að kveða
niður mýtur og auðvelda ungu fólki að tjá
sig. Um leið og umræðan opnast er kom-
inn vettvangur til þess að koma á fram-
færi hvað manni finnst gott, hvort maður
sé tilbúinn að gera ákveðna hluti o.s.frv.
Ég tel því mikilvægt að hafa umræðu og
fræða ungt fólk til þess að stuðla að heil-
brigðu kynlífi.
Hvað hefur komið þér mest á óvart við
gerð þáttanna? Ætli það hafi ekki komið
mér mest á óvart hve mikið af ungu
SUNNEVA FRÖKK OG ÓFEIMIN
Þegar Sunneva Sverrisdóttir starfaði fyrir Jafningjafræðsluna fannst henni áberandi hve forvitin ungmennin voru um kynlíf og upplifði því þörf á aukinni
fræðslu. Í dag stýrir hún spennandi og fróðlegum þætti um kynlíf ungs fólks á Íslandi ásamt Veigari Ölni Gunnarssyni. Þættirnir eru upplýsandi og fróð-
legir og koma til með að vekja umtal, án þess þó að fara yfi r velsæmismörk. Lífi ð kynntist þessari ungu og áhugaverðu konu.
ALDUR 21 árs
HJÚSKAPARSTAÐA Á lausu
STARF/NÁM Viðskiptafræði við
Háskólann í Reykjavík
Ungt fólk
hefur verið
að koma upp
að okkur
og tala um
að það sé
skemmti-
leg tilbreyt-
ing að sjá
talað á svona
hispurslausan
hátt í sjón-
varpi um jafn
viðkvæmt
málefni.