Fréttablaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 5. apríl 2013 | FRÉTTIR | 11
Árið 2012 vann Landsvirkjun rúmlega 12.000 gígawattstundir af
rafmagni. Skuldir fyrirtækisins héldu áfram að lækka og framtíðarhorfur
þess eru góðar. Landsvirkjun er eign íslensku þjóðarinnar – afkoma og
rekstur fyrirtækisins skiptir okkur öll máli.
Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka afrakstur af þeim orkulindum
sem fyrirtækinu er trúað fyrir, með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun
og hagkvæmni að leiðarljósi.
Á vefnum okkar, landsvirkjun.is,
er aðgengileg ítarleg rafræn kynning á
starfsemi og afkomu Landsvirkjunar 2012
og framtíðaráformum fyrirtækisins.
Enginn vill stækka
laugina í Ólafsvík
1Engin tilboð bárust í fram-kvæmdir við stækkun
sundlaugarinnar á Ólafsvík. Þetta
kemur fram í bæjarblaðinu Jökli,
en þar segir að verkið hafi verið
auglýst í febrúar. Áætlanir geri ráð
fyrir því að framkvæmdirnar muni
kosta á annað hundrað milljónir.
Haft er eftir Smára Björnssyni,
forstöðumanni tæknideildar hjá
Snæfellsbæ, að óvíst sé með næstu
skref, en málin muni líklega skýrast
á næstu dögum.
Jákvæð afkoma
hjá Fjarðabyggð
2Rekstrarniðurstaða ársins hjá samstæðu A- og B-hluta
sveitarfélagsins Fjarðarbyggðar
var jákvæð um 444 milljónir króna
á síðasta ári og rekstrarniður-
staða A-hluta var jákvæð um níu
milljónir. Þetta kemur fram í
ársreikningi sveitarfélagsins sem
var tekinn til fyrri umræðu í
bæjarstjórn í gær. Rekstrartekjur
samstæðunnar jukust um rúm sex
prósent frá árinu 2011 og rekstrar-
gjöld hækkuðu um 2,5 prósent.
Skuldir samstæðunnar lækkuðu
um 275 milljónir milli ára.
Allir krakkar
fá sumarvinnu
3Hafnarfjarðarbær tryggir öllum unglingum á aldrinum fjórtán
til sautján ára starf hjá Vinnuskól-
anum í sumar. Gert er ráð fyrir því
að um 900 krakkar á því aldursbili
verði ráðnir, en opnað verður fyrir
umsóknir um næstu mánaðamót.
Þegar hefur verið opnað fyrir
umsóknir sautján ára og eldri. Þar
er meðal annars um að ræða störf
fyrir flokksstjóra í Vinnuskólanum,
leiðbeinendur og aðstoðarleiðbein-
endur á leikjanámskeiðum og á
gæsluvöllum og störf hjá garðyrkju-
stjóra.
VIÐSKIPTI Hlutafé Vátrygginga-
félags Íslands hf. (VÍS) er verð-
lagt á 17 til 20 milljarða króna í
almennu útboði sem stendur 12.
til 16. apríl.
Klakki ehf. selur 60
til 70 prósent hluta-
bréfa í VÍS í útboð-
inu, en umsjón
með því
hefur
fyrir-
tækja-
ráðgjöf
fjárfest-
ingarbanka-
sviðs Arion banka. Stjórn VÍS
hefur óskað eftir því að hluta-
bréf félagsins verði tekin til
viðskipta á Aðallista Kaup-
hallar Íslands í kjölfar útboðs-
ins. „Stefnt er að því að útboðið
marki grunninn að dreifðu eign-
arhaldi á VÍS,“ segir í tilkynn-
ingu Arion banka. - óká
VÍS á aðallista Kauphallar:
Bjóða út 60-70
prósenta hlut
LANDIÐ
1 2
3
INDLAND, AP Fréttaflutningur af
ofbeldi gagnvart konum á Ind-
landi ógnar ferðamannaiðnaði þar
í landi, sem árlega veltir tæpum
2.200 milljörðum íslenskra króna.
Ferðamönnum hefur fækkað
um fjórðung síðan í desember en
þá lést ung kona eftir að henni
var nauðgað af hópi karlmanna
í Nýju-Delí. Þá hefur konum sem
ferðast til landsins fækkað um
35%. Rannsóknin, sem náði til
1.200 ferðaskrifstofa á Indlandi,
sýndi að ferðamenn breyttu frek-
ar áætlunum sínum og ferðuð-
ust til landa sem þeir töldu vera
öruggari, líkt og til Taílands,
Víetnams og Filippseyja. - mli
Ofbeldi ógnar ferðaiðnaði:
Færri kjósa
að ferðast
til Indlands
TAJ MAHAL Ferðamannastraumurinn
til Indlands hefur dregist mjög saman.
SÖFNUN
Safna fyrir börnin
Söfnunarátak ABC barnahjálpar „Börn
hjálpa börnum“ fer formlega af stað
með ræðu Jóns Gnarr borgarstjóra, í
Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 14.
Börn með merkta bauka munu ganga í
hús til loka átaksins, 28. apríl.