Fréttablaðið - 15.04.2013, Page 1
STJÓRNSÝSLA Alls hafa 66 framboðs-
listar um allt land verið úrskurð-
aðir gildir fyrir alþingiskosning-
arnar 27. apríl. Sex framboðslistar
til viðbótar hafa frest þar til í dag
til að lagfæra meðmælendalista
en fastlega er búist við því að þeir
verði einnig úrskurðaðir gildir.
Yfirkjörstjórnir í kjördæmun-
um sex fóru um helgina yfir þá
framboðslista sem bárust vegna
þingkosninganna og skáru úr um
lögmæti þeirra. Fimm yfirkjör-
stjórnir luku yfirferðinni um
helgina en sex framboð í Reykja-
víkurkjördæmi suður fengu frest
til hádegis í dag til að lagfæra með-
mælendalista. Úrskurðað verður
um lögmæti þeirra í kjölfarið.
Alls bjóða ellefu flokkar fram í
öllum kjördæmum. Þeir eru Björt
framtíð, Dögun, Flokkur heim-
ilanna, Framsóknarflokkurinn,
Hægri grænir, Lýðræðisvaktin,
Píratar, Regnboginn, Samfylk-
ingin, Sjálfstæðisflokkurinn og
Vinstri hreyfingin grænt framboð.
Þar að auki býður Landsbyggðar-
flokkurinn fram í Norðvesturkjör-
dæmi og K-listi Sturlu Jónssonar í
Reykjavíkurkjördæmi suður auk
þess sem Húmanistaflokkurinn
og Alþýðufylkingin bjóða fram í
báðum Reykjavíkurkjördæmunum.
Ekkert framboð sem barst hefur
verið úrskurðað ógilt ef frá eru
skilin framboð fimm einstakl inga
sem tilkynntu um framboð en
stóðu ekki skil á tilskildum gögn-
um. Þeir heita Arngrímur Pálma-
son, Benedikt Stefánsson, Ragnar
Einarsson, Sturla Jónsson og Guð-
björn Jónsson. Sturla býður þó lík-
lega fram ásamt lista í Reykjavík-
urkjördæmi suður. - mþl
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
12
Umhverfisátak
Endurvinnsla á efnum leiðir til mun minni mengunar á
vatni en framleiðsla úr frumefnum.Með því að nota endurunnin efni drögum við úr eyðingu
skóga og votlendis og mengun vatnsfalla og annarra
staða sem eru villtum dýrum nauðsynlegir.
ÖTULL RÆKTANDICarl byrjaði í ávaxta-trjárækt sumarið 2010 og er nú með um 60 tré á sumarbústaðalandi íGrím
Á vaxtaklúbburinn er félag áhuga-manna innan Garðyrkjufélags-ins sem sinnir ávaxtatrjárækt á Íslandi. „Tilgangur klúbbsins er að efla áhuga fólks á ávaxtatrjárækt með fræðslu, leiðsögn, kynningum á trjám og fleiru. Þá sendum við líka út pönt-unarlista til félagsmanna þarget
upp úr 2010 og er í dag með um 60 tré í sumarbústaðalandi fjölskyldunn-ar í Grímsnesi. „Afi var með nokkur ávaxtatré í gróðurhúsi og ég tók eigin-lega við af honum. Ég og pabbi erum með þessi 60 tré í Grímsnesinu og kiumst á að h
ÁVAXTASPRENGJA ÁVAXTAKLÚBBURINN Carl Jóhann Gränz, formaður Ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélagsins, segir sprengingu hafa orðið í ávaxtatrjárækt undanfarin
ár og ekki langt þar til íslenskir ávextir verði fáanlegir í matvöruverslunum.
FASTEIGNIR.IS
15. APRÍL 2013
15. TBL.
Miklaborg kynnir: Glæsilegt
nýtt sex íbúða fjölbýlishús
við Ljósakur 2, 4, 6 og 8 í
Akrahverfinu Garðabæ.
Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra
herbergja á bilinu 75-170 fm. Sér-
inngangur er í allar íbúðir, stórar
svalir og frábært útsýni. Vegleg-
ar innréttingar og tæki. Afhend-
ing frá 1. júlí 2013.
Um er að ræða 113,2 fm
þriggja til fjögurra herbergja
endaíbúð á annarri hæð með sér-
inngangi, eign merkt 0201 tó t d ý
Nýtt fjölbýli í Garðabæ
Landmark leiðir þig heim!
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Sími 512 4900
landmark.is
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Haraldur
Ómarsson
sölufulltrúi
sími 845 8286
Sigurður Fannar
Guðmundsson
Sölufulltrúi
Sími 897 5930
Vaxandi velta og miklir möguleikar. Rúmgott og fallegt húsnæði með aðlaðandi framsetningu á vöru, góðu viðskiptavinasvæði og barnahorni. Góð staðsetning við þétta og blandaða byggð Einkal fi á í él
Elín Viðarsdóttir
Lögg. fasteignasali
Auður Kristinsd.
Sölufulltrúi
Núna er rétti
tíminn til að
kaupa ísbúð -
aðal sölutíminn
fra d
Ísbúð í austurborg Reykjavíkur til sölu
2 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Fólk
Sími: 512 5000
15. apríl 2013
87. tölublað 13. árgangur
Færri dauðadómar
Að minnsta kosti 682 voru í fyrra
teknir af lífi í heiminum, að því er fram
kemur í skýrslu Amnesty International.
Fjöldinn er svipaður og 2011. 4
Vilja torvelda byssukaup Áhrifa-
miklir öldungadeildarþingmenn í
Bandaríkjunum beita sér fyrir nýrri
löggjöf sem torveldar byssukaup. 6
Fornleifar ónýtt auðlind Upp-
bygging minjastaða er sögð vera
nauðsynlegur þáttur í uppbyggingu
ferðaþjónustunnar í landinu. 8
Reyna á að semja við N-Kóreu
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna
ræðir við leiðtoga nágrannaríkja
N-Kóreu. 10
SPORT Teitur Örlygsson segir ekkert
hæft í því að Stjarnan sé með dýrasta
lið Íslandssögunnar. 20
SAMGÖNGUR Sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu skoða uppsetningu
hraðvagnakerfis, sem er strætis-
vagnakerfi fyrir stofnleiðir. Um er
að ræða samgöngukerfi sem bætir
hraða og áreiðanleika almannasam-
gangna verulega. Hraðvagnar eru
ódýr lausn í samanburði við aðra
kosti, eins og léttlestakerfi sem
hefur verið til skoðunar.
„Lestarkerfi á gúmmíhjólum“
er lausnin kölluð í skýrslu tveggja
umferðarverkfræðinga hjá verk-
fræðistofunni Mannviti. Þeir unnu
verkefnið með styrk frá Vegagerð-
inni, en stjórn Strætó bs. fjallaði um
hugmyndina í lok síðasta árs. Sam-
göngumátinn er einn þeirra sem til-
greindir hafa verið í stefnumiðum
Strætó fram til ársins 2021.
Á síðustu vikum hefur hugmynd-
in verið kynnt innan stjórnkerf-
is allra sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu og er til vinnslu hjá
skipulagsnefndum þeirra.
Páll Hjaltason, formaður skipu-
lagsráðs Reykjavíkur, segir um
mjög spennandi kost að ræða. Ekki
síst komi hraðvagnakerfi til greina
vegna þess hversu ódýrt það sé
miðað við aðra kosti. „En þetta er
það sem við höfum verið að horfa á
fyrir stærri og lengri flutningsleið-
ir á milli sveitarfélaga og úr efri
hverfum. Í skoðun er að þróa þær
leiðir í þessa átt.“
Páll segir að skrefið sé jafnvel
styttra en margur heldur þar sem
strætókerfið beri keim af slíku
kerfi; miðað sé við að farþegi þurfi
að skipta sem minnst á milli vagna.
Eins verði á Íslandi líklega um
blandað kerfi að ræða þar sem mun
fjölmennari byggð þurfi að standa
að baki hreinu hraðvagnakerfi, eins
og þekkt er víða í Suður-Ameríku.
Hins vegar séu þessi kerfi þekkt í
fjölmörgum borgum og reynist víða
góð lausn, jafnvel til hliðar við lest-
arkerfi eins og í New York.
Stjórn SSH hefur ályktað að hrað-
lestakerfið verði skoðað í tengslum
við endurskoðun svæðis skipulags
höfuðborgarsvæðisins og einstök
sveitarfélög, eins og Hafnarfjörður,
skoða málið í tengslum við breyting-
ar á aðalskipulagi. - shá / sjá síðu 6
Sveitarfélög skoða kerfi
hraðvagna fyrir stoðleiðir
Hugmynd að hraðvagnakerfi á höfuðborgarsvæðinu er skoðuð af alvöru hjá skipulagsyfirvöldum sveitarfélaga.
Eykur hraða og áreiðanleika almenningssamgangna. Kostar bara brotabrot af því sem lestarkerfi myndi kosta.
Heimilis
RIFINN OSTUR
370 g ÍSLENSKUR OSTUR
100%
Þetta er það sem við
höfum verið að horfa á
fyrir stærri og lengri
flutnings leiðir.
Páll Hjaltason,
formaður skipulagsráðs Reykjavíkur
Útlit er fyrir að 72 framboðslistar verði í kjöri í þingkosningunum:
Öll flokkaframboð metin gild
Bolungarvík -3° NA 8
Akureyri 1° NNV 6
Egilsstaðir 2° NNV 5
Kirkjubæjarkl. 8° NA 5
Reykjavík 5° NA 8
Dregur úr vindi og verður víða fremur
hægur vindur síðdegis. Snjókoma eða él
norðanlands en slydda eða rigning austan
til. 4
RÝNT Í FJÁRSJÓÐ Þór Magnússon, fornleifafræðingur og fyrrverandi þjóðminjavörður, rýnir hér í forláta silfurskál á grein-
ingadegi Þjóðminjasafnsins. Sérstök áhersla var lögð á silfurmuni í ár í tilefni útgáfu bókarinnar Íslenzk silfursmíð, eft ir Þór
sjálfan, sem kom út fyrir helgi. Hann hefur rannsakað íslenska silfursmíð um áratuga skeið. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
72
FRAMBOÐSLISTAR
Sjötíu og tveir listar verða í
kjöri í Alþingis kosningunum
27. apríl. Af þeim hafa sex
fengið frest þar til í dag til að
lagfæra meðmælendalista.
SAMGÖNGUR Stórhríð gerði víða
á Norðurlandi og Vestfjörðum
og illfært var um þjóðvegi þar
í gærkvöldi. Á þjóðvegi 1 um
Bakkaselsbrekku efst í Öxnadal
festust tvær rútur og runnu út
af veginum svo björgunarsveitir
þurfti að kalla til. Engum varð
meint af en sveitirnar stjórnuðu
umferð um flughála brekkuna og
snéru vanbúnum bílum við.
„Við fengum tilkynningu um
þrjá fasta bíla í Bakkaselsbrekku
í hádeginu,“ sagði Magnús Viðar
Arnarson, formaður Súlna í gær-
kvöldi. Umferð var stöðvuð um
veginn á meðan verið var að ná
rútunum aftur upp á veg.
Veginum um Ólafsfjarðarmúla
var lokað vegna snjóflóðahættu
í gærkvöldi. Ófært var um fjall-
vegi á Vestfjörðum og þeir lok-
aðir í allan gærdag. - bþh / sjá síðu 4
Fjallvegir illfærir nyrðra:
Stjórnuðu um-
ferð í flughálku
SKOÐUN Valgerður Bjarnadóttir
skrifar um Búkollu og fjós sérhags-
munaaflanna. 12
MENNING Boðið er upp á rökræður
við Einar Má Jónsson um Örlagaborg-
ina í kvöld. 17