Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 2
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
BELGÍA, AP Rútu sem flutti ungmenni frá Rússlandi var ekið fram af
brú í Antwerpen í Belgíu í gær með þeim afleiðingum að fimm létust
og tólf slösuðust, þar af fimm alvarlega. Engin tilraun virðist hafa
verið gerð til þess að stöðva rútuna áður en hún fór fram af brúnni og
er því talið að bílstjórinn hafi sofnað undir stýri.
Þeir sem létust voru bílstjórinn, fullorðinn leiðsögumaður og þrjú
ungmenni. Um borð voru 42 manns, mest ungmenni sem ferðuðust
með rútunni frá Volgograd í Rússlandi á leið til Parísar. - bþh
Fimm ungmenni létust í rútuslysi í Antwerpen:
Rúta fór fram af brú í Belgíu
AF SLYSSTAÐ Í fyrstu var ekki ljóst hvernig slysið bar að en engin bremsuför fund-
ust á brúnni þar sem rútan fór út af. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fertugs-
aldri var handtekinn fyrir alvar-
lega líkamsárás á skemmtistað í
miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt
sunnudags. Sá sem fyrir árásinni
varð er á svipuðum aldri og var
með slæma áverka. Ekki fengust
frekari upplýsingar um líðan hans.
Í tilkynningu frá lögreglunni
segir að árásarmaðurinn sé
meðlimur í mótorhjólasamtök-
um. Hann var í mjög annarlegu
ástandi og á honum fundust fíkni-
efni. - bþh
Meðlimur í bifhjólasamtökum:
Handtekinn
fyrir líkamsárás
SPURNING DAGSINS
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
Fundur um mannréttindi með frambjóðendum
Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi
Í kvöld kl. 20 í Kragakaffi, Hamraborg 1-3.
Rjúkandi kaffi og líflegar umræður.
RÓSA BJÖRK ÓLAFUR ÞÓRÖGMUNDUR
ÞÉR ER BOÐIÐ á
OPINN STJÓRNMÁLAFUND
ALLIR
VELKOMNIR
Edda, færðu greiðslu?
„Nei, ég tek ekki þátt í hártog-
unum.“
Edda Blumenstein heldur úti vefsíðunni
Hárið.is sem fjallar um hár og hártísku.
FRAKKLAND Enn hefur ekkert
spurst til Redoine Faid, stroku-
fangans sem sprengdi sér leið út
úr Sequedin-fangelsi nærri Lille í
norðurhluta Frakklands á laugar-
dag. Hann er alræmdur ræn-
ingi og þekktur glæpamaður í
Frakklandi, að sögn breska ríkis-
útvarpsins.
Faid tók gísla þegar hann flúði
fangelsið. Sprengiefnið á hann
að hafa fengið í heimsókn konu
sinnar í fangelsið. Gíslana frels-
aði hann alla áður en hann lagði
á flótta í bíl sem fannst brunninn
við hraðbraut sunnan Lille.
Ríkissaksóknari í Frakklandi
segir Faid vera sérlega hættuleg-
an fanga. - bþh
Sprengdi sig úr fangelsi:
Strokufanginn
enn ófundinn
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson
hyggst halda áfram sem formað-
ur Sjálfstæðisflokksins. Þetta
tilkynnti Bjarni á fjölmennum
fundi Sjálfstæðismanna í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ á
laugardag.
Í kosningaþætti í Ríkissjón-
varpinu á fimmtudagskvöld sagði
Bjarni að hann væri að íhuga
að segja af sér sem formaður.
Fyrr sama dag hafði Viðskipta-
blaðið birt niðurstöður könnunar
sem bentu til þess að fylgi Sjálf-
stæðisflokksins væri umtalsvert
meira ef Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, væri formaður flokks-
ins í stað Bjarna. - mþl
Sjálfstæðismenn funduðu:
Bjarni verður
áfram formaður
FÓLK „Við báðum sérstaklega
um silfur núna því það er silfur-
þema hjá Þjóðminjasafninu í ár.
Fólk hefur komið með stokkabelti,
nælur, skeiðar og aðra smámuni
úr silfri og látið meta þá. Svo hafa
aðrir mætt með ýmsa aðra gripi
líkt og dúkkur,“ segir Bryndís
Sverrisdóttir, sviðsstjóri miðlun-
arsviðs Þjóðminjasafnsins. Í gær
bauðst almenningi að koma með
eigin gripi í greiningu til sérfræð-
inga Þjóðminjasafnsins á svoköll-
uðum greiningadegi safnsins.
Greiningadagarnir hafa verið
haldnir frá árinu 2007 og eru vel
sóttir. Greining gripanna snýst
um aldur þeirra, efni og uppruna
en ekki verðgildi þeirra. Bryndís
segir að oft séu mjög áhugaverðar
sögur á bak við gripina. „Margir
sem hingað koma vilja fá sögurn-
ar í kringum gripina staðfesta. Eitt
árið kom hingað kona með stokka-
belti sem Ragnheiður Brynjólfs-
dóttir átti að hafa átt. Konan kom
til þess að athuga hvort fjölskyldu-
sagan gæti staðist. Við greiningu
kom í ljós að beltið var frá þeim
tíma sem Ragnheiður var uppi og
sagan gat því vel verið sönn.“
Greiningarnar eru þó ekki
aðeins fróðlegar fyrir eigend-
ur gripanna heldur einnig fyrir
sérfræðinga safnsins sem gefst
þá kostur að sjá ýmsa áhuga-
verða gripi sem leynast á heim-
ilum landsmanna. „Í dag kom
ein með stokkabelti eftir smið
sem mjög lítið er til eftir. Sá
hét Einar Skúlason frá Tann-
staðabakka í Hrútafirði og
það var athyglisvert að fá að
sjá þann grip,“ segir Bryn-
dís. sara@frettabladid.is
Fengu til greiningar
fágætt stokkabelti
Greiningadagur Þjóðminjasafnsins fór fram í gær. Sérfræðingar safnsins greindu
að þessu sinni silfurgripi í eigu almennings. Greining snýst um aldur og uppruna
en ekki verðgildi. Eigendur gripa vilja fá sögu þeirra staðfesta af sérfræðingum.
RÝNT Í SILFRIÐ Þór Magnússon, fyrrum þjóðminjavörður, var á meðal þeirra sér-
fræðinga sem rýndu í gripi landsmanna á greiningadegi Þjóðminjasafnsins. Hér sést
hann með stokkabelti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta er stykki af kolaofni, eða einhverju slíku. Ég fann þetta
á gömlum torfbæ sem verið var að rífa og tók hann með
mér því mér fannst þetta vera sérstakur gripur, sem þetta
greinilega er fyrst að fornleifafræðingarnir þekkja hann
ekki,“ segir Vilhjálmur Steingrímsson um grip sem
hann lét meta á greiningadegi Þjóðminjasafnsins. Vil-
hjálmur býr á Hofsósi en átti erindi til Reykjavíkur í
gær og ákvað að láta skoða gripinn í leiðinni.
Aðspurður segist hann þó lítils vísari um
gripinn dularfulla sem honum áskotnaðist
í kringum 1960. „Þór [Magnússon] hafði
aldrei séð svona hlut áður. Hann
taldi að þetta væri af ofni og að
hann sýni einhvern guð sem haldi
á nægtarhorni. Ég hef haft gripinn
á arinhillunni hjá mér og ætla að
hafa hann þar áfram, hann á best heima þar.“
Dularfullur gripur sem fannst á torfbæ
UMHVERFISMÁL Meirihluti lands-
manna er andvígur því að fleiri
álver verði reist á Íslandi. Þá eru
umtalsvert fleiri andvígir virkj-
unarframkvæmdum í Bjarnar-
flagi við Mývatn en eru þeim
fylgjandi.
Þetta leiðir skoðanakönnun
Capacent Gallup í ljós sem unnin
var fyrir Landvernd og var kynnt
á aðalfundi félagsins á laugardag.
Byggðu niðurstöðurnar á svörum
862 einstaklinga en alls var leitað
til 1.450 við gerð könnunarinnar.
Reyndust 43,6% svarenda vera
andvíg Bjarnarflagsvirkjun en
30,5% henni hlynnt. Ríflega fjórð-
ungur svarenda var ekki viss.
Þegar spurt var um afstöðu til
byggingar fleiri álvera hér á landi
sögðust 51,3% svarenda vera því
andvíg en 30,9% voru því hlynnt.
Landsvirkjun ráðgerir að reisa
45 til 90 megavatta virkjun í Bjarn-
arflagi en Bjarnarflag er í orku-
nýtingarflokki rammaáætlunar.
Landvernd hefur að undan-
förnu gagnrýnt þessa fyrirhug-
uðu framkvæmd á þeim forsend-
um að óvissa sé um áhrif hennar
á lífríki Mývatns. Umhverfismat
vegna virkjunarinnar er orðið tíu
ára gamalt og telur Landvernd að
það þurfi að uppfæra. Félagið hefur
því hvatt til þess að Bjarnarflag
verði fært í biðflokk rammaáætl-
unar á meðan möguleg áhrif á líf-
ríki vatnsins eru rannsökuð.
Þá hefur Landvernd efnt til und-
irskriftasöfnunar á netinu til að
styðja við þessa kröfu. Í gærkvöldi
höfðu ríflega 7.400 einstaklingar
skrifað undir. - mþl
Meirihluti landsmanna er andvígur því að fleiri álver verði reist á Íslandi:
Andstaða við Bjarnarflagsvirkjun
MÝVATN
Landvernd
telur óvissu
vera um áhrif
Bjarnarflags-
virkjunar á
lífríki Mývatns.
Umhverfismat
vegna ráð-
gerðrar fram-
kvæmdar er
tíu ára gamalt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VENESÚELA, AP Forsetakosningar
í Venesúela fóru fram í gær, þær
fyrstu eftir dauða Hugo Chavez for-
seta sem lést í síðasta mánuði.
Tveir frambjóðendur voru taldir
líklegastir til að ná árangri í kosn-
ingunum, Nicolás Maduro, sitjandi
forseti og eftirmaður Chavez, og
Henrique Capriles, frambjóðandi
hægrimanna.
Capriles bauð einnig fram í for-
setakosningunum árið 2012 gegn
Chavez en varð að lúta í lægra haldi.
Samt sem áður varð hann vinsæl-
asti andstæðingur forsetans fyrr-
verandi síðan sósíalistar komust til
valda árið 1999.
Stjórnarliðar hvöttu fólk alls stað-
ar í landinu til að fara á kjörstað í
gær. Maduro er talinn sigurstrang-
legri fari fleiri á kjörstað enda var
Chavez vinsæll og Maduro hefur
heitið því að fylgja stefnu hans.
Niðurstöður skoðanakannana síð-
ustu vikna segja Maduro hafa for-
skot þó Capriles hafi sótt á und-
anfarið. Þess er vænst að úrslit
kosninganna verði tilbúin í dag. - bþh
Kosið var í Venesúela til þess að finna eftirmann Hugo Chavez:
Maduro talinn sigurstranglegri
MADURO Forsetaefni sósíalista veifar
til fjöldans þegar hann mætir á kjörstað
ásamt fjölskyldu sinni í Karkas, höfuð-
borg Venesúela í gær. NORDICPHOTOS/AFP