Fréttablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 6
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 2013 Skipting þingmanna Borgarahreyfingin Íbúafj öldi: 85.911 Fjöldi á kjörskrá: 63.154 Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar og alþingismaður. ☛Varaþingmaður Samfylkingar- innar frá 2007 en var kjörinn á þing fyrir Framsóknarfl okkinn árið 2009. Eygló Harðardóttir alþingismaður. ☛Hefur verið þingmaður frá 2008 en var áður varaþingmaður. ☛Hefur verið ritari Framsóknar- fl okksins frá árinu 2009. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisfl okksins og alþingismaður. ☛Kjörinn á þing árið 2003. ☛Formaður Sjálfstæðisfl okksins frá 2009. A B TLD S Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og alþingismaður. ☛Þingmaður frá 2007. ☛Var áður félagsmálaráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. ☛Setið á Alþingi frá 1995. ☛Áður heilbrigðisráðherra en sagði af sér vegna ágreinings við félaga sína í ríkisstjórn. Birgitta Jónsdóttir, formaður Pírata og þingmaður Hreyfi ngarinnar. ☛Kjörin á þing 2009 fyrir Borgara- hreyfi nguna, en myndaði fl jótlega Hreyfi nguna.V Þ Sigurjón Haraldsson viðskiptafræð- ingur. Pétur Gunn- laugsson, formaður Flokks heimil- anna, lög- fræðingur og útvarpsmaður á Útvarpi Sögu Valdís Stein- arsdóttir leiðbeinandi. Lýður Árnason, læknir og fyrrverandi stjórnlagaráðs- fulltrúi. Margrét Tryggva- dóttir, þingmaður Hreyfi ngar- innar. G J I Suðvesturkjördæmi: Efstu menn á lista B D FO S V P Úrslit síðustu þingkosninga Kjörsókn í síðustu kosningum: 86,4% ➜ Hraðvagnakerfi finnast í öllum heimsálfum. Eitt stærsta kerfið má finna í Bogotá í Kólumbíu, sem er sjö milljóna manna borg, en þar hefur farþega- fjöldinn farið upp í 40.000 farþega á klukkustund. ➜ Dæmi um hraðvagnakerfi í borgum af svipaðri stærðargráðu og höfuð- borgarsvæðið eru í Eugene í Bandaríkjunum, Almere í Hollandi, Rouen í Frakklandi, Swansea í Wales og Mérida í Venesúela. ➜ Flytja 40.000 farþega á klukkustund – Blönduð umferð Engin framkvæmd – Fullur aðskilnaður Forgangur A – Aðskildar sérreinar en sameiginleg gatnamót Forgangur B Biðstöð Forgangur á gatnamótum Kópavogur Garðabær Hafnarfj örður Reykjavík SAMGÖNGUR Hægt er að stytta ferðatíma almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu stórlega með notkun hraðvagna; sérstaks kerfis sem bætir hraða og áreið- anleika strætisvagna. Stofnkostn- aður hraðvagnakerfis er margfalt minni samanborið við léttlesta- kerfi, sem hefur verið nefnt sem vænlegur kostur. Þetta er meðal niðurstaðna umferðarverkfræðinganna Grét- ars Þórs Ævarssonar og Þor- steins R. Hermannssonar, hjá verkfræðistofunni Mannviti. Skipulagsyfirvöld í öllum sveit- arfélögum höfuðborgarsvæðis- ins hafa hugmynd þeirra til skoð- unar, enda sameiginlegur eigandi Strætó bs. Allir sem gerst þekkja telja nauðsynlegt að bæta almennings- samgöngur á Íslandi. Þetta endur- speglast í þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2011-2022 þar sem segir að í samvinnu við sveitarfélögin verði unnið að því að tvöfalda hlutdeild almennings- samgangna í öllum ferðum sem farnar eru á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta markmið næst aldrei án grundvallarbreytinga og því telja þeir Grétar Þór og Þor- steinn það „skynsamlegt og jafn- vel nauðsynlegt“ að þróa hluta almannasamgöngukerfisins yfir í hraðvagnakerfi. Þorsteinn segir að hraðvagna- kerfi í borgum af sömu stærðar- gráðu og höfuðborgarsvæðið sé víða að finna. Eins í stærri borg- um, þar á meðal í Seattle í Banda- ríkjunum þar sem þeir Grétar dvöldu við verkfræðinám. „Þar var umræða um léttlestakerfi en menn náðu því aldrei heim og saman að ávinningurinn svaraði kostnaði. Hvað þá hér heima þar sem engir eru lestarteinarnir og aðrir innviðir sem verða að vera til staðar – og þá er þekkingin enn ónefnd,“ segir Þorsteinn. Hraðvagnakerfi er nokkurs konar millistig milli hefðbund- inna strætisvagnakerfa og lesta- kerfa. Hugmyndin eins og hún stendur í dag snýst um hraðvagna á leið 1 hjá Strætó (S1) sem fyrsta áfanga, en þar liggja fyrir hug- myndir um léttlest. Áætlað er að stofnkostnaður hraðvagnaleiðar milli samgöngu- miðstöðvar í Vatnsmýri (BSÍ) og verslunarmiðstöðvarinnar Fjarð- ar í Hafnarfirði sé á bilinu sex til sjö milljarðar króna. Inni í þeirri áætlun eru sérreinar og aðrar forgangsaðgerðir, biðstöðvar og vagnar. svavar@frettabladid.is Styttir ferðatímann um allt að helming Hraðvagnakerfi er talið álitleg lausn til að bæta almenningssamgöngur á höfuð- borgarsvæðinu. Slíkt kerfi er mun ódýrara en aðrar lausnir í sama tilgangi. Skipu- lagsyfirvöld alls höfuðborgarsvæðisins hafa hugmyndina til skoðunar. LEIÐ 1 er ákjósanlegur valkostur þar sem hún er mest notaða einstaka leiðin í leiðakerfi Strætó bs. Samanborið við hefðbundin strætisvagnakerfi sýna reynslutölur frá Bandaríkjunum að ferðatími er um 25-50% styttri. léttur fiskréttur WASHINGTON, AP Tveir áhrifamiklir öldungadeildar- þingmenn í Bandaríkjunum kynntu fyrir helgi laga- frumvarp sem tryggja á að hvergi verði hægt að kaupa skotvopn í landinu án þess að fortíð kaupand- ans sé könnuð fyrir kaupin. Þingmennirnir sem standa að frumvarpinu, Joe Manchin og Patrick Toomey, eru hvor í sínum flokkn- um en líklegt er talið að frumvarpið fái brautargengi í öldungadeildinni þar sem demókratar eru í meiri- hluta. Erfiðara kann hins vegar að reynast að fá frum- varpið samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings þar sem repúblikanar eru í meirihluta. Repúblikanar eru flestir á móti takmörkunum á skotvopnaeign og það sama gildir um hluta þing- manna demókrata. Ríkisstjórn demókratans Baracks Obama Banda- ríkjaforseta hefur lagt þunga áherslu á það síðustu mánuði að gripið verði til úrræða til að minnka skot- vopnaofbeldi í Bandaríkjunum. Áhersla var lögð á málið eftir fjöldamorð í grunnskóla í Newtown í Connecticut í desember síðastliðnum. Hefur Obama meðal annars lagt á það áherslu að gerðar verði breytingar á skotvopnalöggjöfinni vest- anhafs í þá átt að erfiðara verði að eignast byssu. - mþl Þingmenn úr báðum flokkum vilja takmarka skotvopnasölu í Bandaríkjunum: Erfiðara verði að eignast byssu MANCHIN OG TOOMEY Eftir fjöldamorðin í Sandy Hook- grunnskólanum hefur skotvopnalöggjöf í Bandaríkjunum verið talsvert til umræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.