Fréttablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.04.2013, Blaðsíða 8
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 NISSAN QASHQAI SE Nýskr. 05/12, ekinn 22 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.790 þús. Rnr.201016. HYUNDAI ix35 Nýskr. 06/12, ekinn 26 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.890 þús. Rnr.120116. Frábært úrval af notuðum bílum á frábæru verði Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is BMW 320d LUXURY Nýskr. 04/12, ekinn 13 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr.151870 HYUNDAI GETZ GLS Nýskr. 10/09, ekinn 41 þús km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.750 þús. Rnr.120134. PEUGEOT 208 Nýskr. 11/12, ekinn 8 þús km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 2.850 þús. Rnr.130544. SUZUKI SWIFT 4WD Nýskr. 05/11, ekinn 44 þús. km. bensín, beinskiptur. Verð kr. 2.190 TILBOÐ kr. 1.790 þús. Rnr.201020. NISSAN NOTE visia Nýskr. 12/11, ekinn 16 þús. km. bensín, sjálfskiptur. Verð kr. 2.990 TILBOÐ kr. 2.590 þús. Rnr.170290. BMW glæsibifreið kr. 7.980 þús. Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL Gott úrval af 4x4 bílum Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði! FORNLEIFAR Uppbygging minja- staða er nauðsynlegur en van- ræktur þáttur í því púsluspili að byggja upp ferðaþjónustuna í landinu. Staðir þar sem forn- minjar er að finna reynast hafa mikið aðdráttar- afl fyrir ferða- menn, innlenda sem erlenda, og þar liggja mikil tækifæri. „Ennþá hefur náttúran mesta aðdráttaraflið en menningin, í víðum skilningi, sækir mjög á. Ferðamenn eru sífellt að leita að nýjum upplifunum og þá ekki síst samspili mannlífs og náttúru í gegnum tíðina. Öflug uppbygging á ferðaþjónustu sem tengist menn- ingarverðmætum eins og forn- leifum spilar þar stórt hlutverk,“ segir Ólöf Ýrr Atla dóttir, ferða- málastjóri, og bætir við að það eigi við um erlenda ferðamenn en ekki síður Íslendinga sjálfa. Ólöf segir jafnframt að sú við- leitni að dreifa ferðamönnum betur um landið tengist uppbygg- ingu menningartengdrar ferða- þjónustu sterkum böndum. Því fleiri slíkir minjastaðir, því lík- legra er að fólk sjái ástæðu til að fara víðar um. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, segir stöðuna einfalda í sínum huga. Meira fjármagni verði að veita til skráningar, sem er for- senda uppbyggingar auk nauðsyn- legrar varðveislu og rannsókna. „Ferðaþjónusta er ekki bara nátt- úran, heldur þarf að mæta eftir- spurn þeirra ferðamanna sem vilja sjá minjastaði og kynna sér sög- una. Við verðum að hafa svigrúm til að vinna undirbúningsvinnuna - gera þessa staði aðgengilega og sinna miðlunarþættinum.“ Kristín nefndi í viðtali við Fréttablaðið á fimmtudag nokkra minjastaði þar sem uppbygging hefur tekist vel og Skriðuklaustur var þar á meðal. Skúli Björn Gunnarsson, for- stöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri, segir að minjarnar á staðnum hafi ótvírætt gildi fyrir ferðaþjónustuna. „Erlendir ferða- menn sýna sögunni ekki síður áhuga en íslenskir ferðalangar og greinilegt í öllum könnunum að söguáhuginn fer vaxandi.“ Skúli segir að nákvæmlega eins og Íslendingar hafa áhuga á að skoða sögustaði erlendis þá vilja gestir okkar vita meira um lífið í landinu fyrr á öldum. „Þess vegna er ekki síður mikilvægt að byggja á vandaðan hátt upp minjastaði, eins og náttúruperlur okkar,“ segir Skúli. svavar@frettabladid.is Á SKRIÐUKLAUSTRI Fornleifarnar hafa fætt af sér glæsilega sýningu í sögu- og fræðasetrinu á staðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SKRIÐUKLAUSTUR Uppbygging minja- staða hefur sums staðar tekist vel. ÓLÖF ÝRR ATLADÓTTIR HEILBRIGÐISMÁL Á meðan verið er að innleiða kerfi þar sem tannlækn- ingar verða gjaldfrjálsar fyrir börn verður nokkur bið á því að kerfið nái til allra aldurshópa. Þannig líða þrjú ár þar til kerfið nær til barns sem er fjögurra ára í dag. Í vor nær kerfið til barna á aldr- inum 15 til 17 ára. Í haust bætast við þriggja ára og 12 til 14 ára og svo verður bætt við hópum fram í ársbyrjun 2018. Sigurður Bene- diktsson, tannlæknir og fyrrver- andi formaður Tannlæknafélags Íslands, telur þó ekki að við þetta skapist sérstök vanda- m á l . „ E k k i má gleymast að ástandið er óbreytt fyrir börn sem ekki det t a a lveg strax inn í kerf- ið,“ segir hann og telur ólíklegt að foreldrar bíði með heimsóknir til tannlæknis þar til börn ná „réttum“ aldri. Í hönnun á nýja kerfinu í fyrrasum- ar hafi líka verið gert ráð fyrir að búin yrðu til sérstök úrræði fyrir börn sem illa stæðu félagslega. „Síðan gætu stjórnmálamenn líka ákveðið í framhaldinu að inn- leiða kerfið hraðar,“ bendir Sigurð- ur á og telur ljóst að breytingarnar séu til mikilla bóta. Fyrirséð sé að fólk komi í framhaldinu mun frekar með börn til tannlæknis. „Og svo er sérstakt fagnaðarefni að samið er til langs tíma. Þetta er langhlaup.“ - óká Nýtt kerfi gjaldfrjálsra tannlækninga nær mishratt til barna eftir aldri: Ólíklegt að fólk láti börnin bíða SIGURÐUR BENEDIKTSSON Skattskrár vegna álagningar 2012 og virðisauka skattsskrár vegna tekjuársins 2011 verða lagðar fram 15. apríl 2013. Skrárnar, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, eru lagðar fram á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum dagana 15. apríl til og með 26. apríl 2013. Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988. 15. apríl 2013 RÍKISSKAT TSTJÓRI Fornleifar ónýtt auð- lind í ferðaþjónustu Uppbygging minjastaða er nauðsynlegur þáttur í uppbyggingu ferðaþjónustunnar í landinu. Minjastaðir hafa þegar sannað gildi sitt. Lykilþáttur í að dreifa ferða- mönnum um landið. Líta ber minjastaði sömu augum og náttúruperlurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.