Fréttablaðið - 15.04.2013, Síða 10
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Fastir
vextir
Óverðtryggðir
innlánsvextir m.v.
mánaða bindingu
Fastir
vextir
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
mánaða bindingu
Við bjóðum ölbreytt úrval innláns-
reikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
Verðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
Aðalfundur Félags Rafeindavirkja verður haldinn
mánudaginn 22. apríl 2013 kl.17:30 á Stórhöfða 27,
gengið inn Grafarvogsmegin.
Dagskrá:
• Baldur Viðar Baldursson forstöðumaður símkerfa
hjá Símanum kynnir 4G
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Kosning fulltrúa á ársfund Stafa lífeyrissjóðs
• Önnur mál
Reykjavík 10. apríl 2013
Stjórn Félags Rafeindavirkja
AÐALFUNDUR
Félags Rafeindavirkja
1. Hversu löng bið er eftir ADHD-
greiningu hjá geðlækni?
2. Hvenær ætlar Hagstofan að hag-
vöxtur taki kipp?
3. Hver á að skipa hæstaréttardómara
að mati Jóns Steinars Gunnlaugssonar?
SVÖRIN
HEILBRIGÐISMÁL Þrátt fyrir nið-
urskurð hafa hér ekki komið upp
sambærileg heilbrigðisvandamál
og í löndum á borð við Spán, Portú-
gal og Grikkland. „Þar hefur sjálfs-
vígstíðni farið vaxandi og smitsjúk-
dómar brotist út í síauknum mæli,
auk þess sem aðgengi að heilbrigð-
isþjónustu hefur versnað til muna,“
segir Geir Gunnlaugsson land-
læknir í nýrri grein á heimasíðu
Landlæknisembættisins.
Geir vitnar til nýlegrar fræði-
greinar í vefútgáfu tímaritsins
The Lancet, þar
sem fjallað var
um efnahags-
hrunið og áhrif
þess á lýðheilsu.
Greinarhöfund-
ar bendi á að
hér hafi félags-
legt öryggis-
net verið styrkt
og áhersla lögð
á að hafa fólk í
vinnu, auk fleiri þátta. „Afleiðing
þessa sé meðal annars að sjálfs-
vígum hafi ekki fjölgað á Íslandi
í kjölfar kreppunnar og könnun á
heilsu og líðan Íslendinga hafi sýnt
að hrunið hafi lítil áhrif haft á ham-
ingju þjóðarinnar,“ segir Geir.
Þá bendir landlæknir á niður-
stöður nýbirtrar rannsóknar á
árangri heilbrigðisstefnu í 43
Evrópuríkjum. Þar sé Ísland
í þriðja sæti á eftir Svíþjóð og
Noregi. Lakasta útkomu fengu
Úkraína, Rússland og Armenía. Í
samanburðinum er að mestu stuðst
við gögn frá 2008. - óká
Ísland er í þriðja sæti í samanburði á heilbrigðisstefnu fjörutíu og þriggja Evrópuríkja:
Glímum ekki við heilbrigðisvanda Grikkja
GEIR
GUNNLAUGSSON
Á LANDSPÍTALANUM Íslensk
heilbrigðis stefna kemur vel út í alþjóð-
legum samanburði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NORÐUR-KÓREA John Kerry, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, segir
Norður-Kóreumenn vera að ein-
angra sig enn frekar með kjarn-
orkuhótunum sínum. Kerry ferðað-
ist um Asíu um helgina og ræddi við
leiðtoga nágrannaríkja Norður-Kór-
eu um ástandið sem skapast hefur.
„Bandaríkin munu verja banda-
menn sína eins og nauðsynlegt
þykir gegn þessum árásum. Okkar
fyrsta val er hins vegar að ræða
saman,“ sagði Kerry á frétta-
mannafundi í Tókýó með Fumio
Kishida, utanríkisráðherra Japan,
í gær.
Þar sagði hann jafnframt að mik-
ilvægt væri fyrir Norður-Kóreu að
skilja hvaða afleiðingar hótanir
þeirra munu hafa fyrir þá sjálfa.
Stjórnvöld í Seúl, Peking, Tókýó
og Washington hafa, að sögn Kerry,
tekið höndum saman gegn Norður-
Kóreu og er markmiðið kjarnorku-
afvopnun á Kóreuskaga.
Norður-Kórea hefur stöðugt
hótað kjarnorkuárásum á valin
skotmörk í Suður-Kóreu og á meg-
inlandi Norður-Ameríku síðan
Sameinuðu þjóðirnar hertu við-
skiptaþvinganir sínar á landið.
Forgangsatriði að
reyna samningaleið
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræddi við leiðtoga nágrannaríkja Norður-Kóreu
í Asíu. Stjórnvöld í Pjongjang eru hvött til að setjast að samningaborðinu.
FYLKIR LIÐI John Kerry ferðaðist um
Asíu um helgina og heimsótti Suður-
Kóreu, Kína og Japan þar sem hann hélt
blaðamannafund með Fumio Kishida,
utanríkisráðherra Japan. NORDICPHOTOS/AFP
Stjórnvöld í Pjongjang hafa svo
talið heræfingar Suður-Kóreu og
Bandaríkjanna sunnan landamær-
anna á Kóreuskaga vera stríðsund-
irbúning og þannig réttlætt endur-
lífgaða kjarnorkuáætlun sína.
Þrátt fyrir hótanirnar telja sér-
fræðingar ólíklegt að Norður-
Kórea sendi kjarnorkuflaugar
af stað. Þá er talið að eldflaugar
þeirra dragi ekki nógu langt til að
geta grandað skotmörkum í Banda-
ríkjunum, ef Alaska er undanskilin.
birgirh@frettabladid.is
Norður-Kórea
Rússland
Banda-
ríkin
Kína
Indland
Ástralía
1
2
3
4
SKOTSVIÐ
FLAUGANNA
1 1.000 km
2 2.200 km
3 4.000 km
4 6.000 km
©GRAPHIC NEWS
SKOTSVIÐ FLAUGA
NORÐUR-KÓREU
TAEPODONG-2
2. eða 3. stigs skot-
flaug. Prófuð tvisvar
og misheppnaðist
í bæði skipti. Skot-
sviðið er líklega
6.000 km.
1. Allt að ársbið. 2. Á næsta ári, samkvæmt
nýrri þjóðhagsspá. 3. Ráðherra.
VEISTU SVARIÐ?