Fréttablaðið - 15.04.2013, Side 12

Fréttablaðið - 15.04.2013, Side 12
15. apríl 2013 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is „Hvað eigum við nú til bragðs að taka Búkolla mín?“ spurði strákurinn kúna þegar þau komu að hinum ýmsu farar- tálmum. Strákurinn var á leiðinni heim, eftir að hafa sótt Búkollu í fjós skess- unnar. „Hvað eigum við nú til bragðs að taka?“ spyr ég þegar við erum komin vel á veg með að ná þjóðfélaginu úr fjósi sérhags- munaaflanna og upp sprettur Framsókn- armaddaman. Tví- ef ekki þríefld. Það er skelfilegt að þeir sem sammála eru um að breyta þjóðfélaginu tvístrist út um allt. Óþolinmæði er afleit í pólitík. Auðvitað voru það vonbrigði að ná ekki að minnsta kosti auðlindaákvæði stjórnar skrárfrumvarpsins í gegnum þingið. En það er lítil von að ná því nokk- urn tíma í gegn ef þau sem það vilja hlaupa hvert í sína áttina. Það verður ekk- ert dekk spúlað með þeirri aðferð. Sérhagsmunaöflin eru þau einu sem munu hagnast ef allt að tíu prósent atkvæða falla dauð vegna þess að nýju flokkarnir ná ekki fimm prósenta lág- markinu sem þarf til að ná þingsæti. Sérhagsmunaöflin munu ekki bara hagnast í kosningunum. Þau munu líka hagnast eftir kosningar þegar veiði- gjaldið verður afnumið. Veiðigjaldið er 16 milljarðar. Þeim sem greiða veiðigjald finnst það ósanngjarnt. Þeir vilja halda áfram að nýta auðlindina okkar án þess að borga krónu fyrir. Það finnst Fram- sóknarmaddömunni og vinum hennar í Sjálfstæðisflokknum líka sjálfsagt mál. Sérhagsmunaöflin geta þá aftur selt sjálfum sér eða vinum sínum banka. Landsbankinn er búinn að gera upp við þrotabúið svo sérhagsmunaöflin geta strax hafið næstu umferð einkavinavæð- ingar. Er það virkilega þetta sem við viljum? Er þetta rétti tíminn til að fara hvert í sína áttina? Óþolinmæði hefur löngum verið ógæfa íslenskra jafnaðarmanna. Það virðist ætla að verða svo eina ferðina enn. Ólíkt skessunni sem varð að steini er hætta á að Framsóknarmaddaman og vinir hennar verði sprellandi kát og þjóð- félagið lendi aftur í sérhagsmunafjósinu. Þá hefur sannarlega ekki verið til mikils barist. Þá mun ekki duga: „Taktu hár úr hala mínum“! Eru eftir hár í halanum? STJÓRNMÁL Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður ➜ Sérhagsmunaöfl in eru þau einu sem munu hagnast ef allt að tíu prósent atkvæða falla dauð vegna þess að nýju fl okkarnir ná ekki fi mm prósenta lágmarkinu sem þarf til að ná þingsæti. Atlögunni hrundið Margir Sjálfstæðismenn anda léttar nú þegar friður hefur á ný skap- ast um Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðis flokksins. Öfl innan flokksins reyndu fyrir helgi að bola honum úr embætti en með einlægri frammistöðu í kosningaþætti á fimmtudag tókst Bjarna að því er virðist að þjappa flokknum saman að baki sér. Stjórnmálafræðingar hafa síðan haldið því fram að atburðarás síðustu daga hafi veikt Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur, varaformann, sem sé ekki lengur augljós eftirmaður Bjarna eins og margir hafa talið. Traust eða ekki traust? Vandi Hönnu Birnu er ekki síst sá að það tók hana næstum tvo sólarhringa frá því að fyrst var fjallað um könnun sem sýndi að flokkurinn myndi njóta meiri stuðnings undir forystu hennar þar til hún lýsti beinlínis yfir stuðningi við Bjarna sem formann opinberlega. Og á meðan logaði flokkurinn stafna á milli eftir að Bjarni sagðist vera að íhuga afsögn. Á fundi á laugardag sagði Hanna að hún yrði þakklát ef um- ræðunni um formannsem- bættið lyki og að traust hennar til Bjarna væri ekki dregið í efa. Einhverj- um gæti hins vegar sýnst að sá stuðningur hefði ekki verið til staðar þegar þörf var á. Pólitísk kaldhæðni Pírata Píratar hafa legið undir ámæli, ekki síst frá femínistum, eftir að umdeild um- mæli nokkurra frambjóðenda flokksins voru grafin upp á netinu. Ekki var bót í máli þegar fram kom að tveir karlkyns frambjóðendur Pírata hafa dóma á bakinu vegna ofbeldismála, annar meðal annars fyrir að kýla konu. Smári McCarthy, einn kapteina Pírata, var spurður á Stöð 2 á laugardag hvort bakgrunnur frambjóðenda hefði verið kannaður. Sagði Smári Pírata ekki hafa fundið þörf hjá sér til að stunda persónunjósnir. En varla eru það persónunjósnir að kanna hvort flokkur sé með ofbeldismenn í framboði til Alþingis eða ekki. magnusl@frettabladid.is F réttablaðið hefur undanfarna daga fjallað um bágt ástand fornleifa víða á landinu. Hér birtust til dæmis býsna sláandi myndir af merkilegum 13. aldar kirkjugarði á Akbraut í Rangárvallasýslu, þar sem hauskúpurnar liggja glottandi á milli stuðlabergssteina sem garðurinn var hlaðinn úr. Þessar minjar eru að eyðileggjast vegna uppblást- urs og hafa aldrei verið rannsakaðar sem skyldi. Þannig háttar til um fornminjar víða um land. Fornleifafræð- ingar eru á mörgum stöðum í kapphlaupi við tímann að grafa upp og kortleggja minjar sem eru að hverfa, ekki sízt vegna sjávar- rofs og uppblásturs. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur hefur meðal annars staðið í slíku kapphlaupi við eyðingaröflin á hinum forna verzlunarstað við Kolkuós í Skagafirði. Hún hefur enn- fremur kannað ástand ýmissa minjastaða og komist að því að víða eru áhugaverðar minjar að tapast, til dæmis á Reykjanesi. „Ef við eigum friðlýstar fornminjar, og samkvæmt orðanna hljóðan því einstakar, þá ættum við að gera meira til að verja þær,“ sagði Ragnheiður hér í blaðinu í síðustu viku. Fé skortir til skráningar, rannsókna og varðveizlu á forn- minjum. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofn- unar Íslands, telur að fé sem veitt er til hennar á fjárlögum sé innan við helmingurinn af því sem þyrfti til að stofnunin gæti sinnt sínu lögbundna hlutverki. Hún bendir til dæmis á að forn- leifaskráningu sé stórlega ábótavant. „Við vitum einfaldlega ekki hvað við eigum af fornleifum á Íslandi. Slík skráning er til dæmis forsenda þess að sveitarfélögin og framkvæmdaaðilar hafi nauðsynlegar upplýsingar. Svo þarf fjármagn í viðhald minjanna og frekari rannsóknir,“ segir hún. Nýleg dæmi eru um að þekkingin á fornleifum sé brotakennd þar sem á að fara að ráðast í framkvæmdir. Nú er fyrirhugað að virkja við Eldvörp á Reykjanesi. Vitað var að þar fyndust forn- leifar, en þar hafa áhugamenn nýlega fundið fjölda óþekktra minja eins og Fréttablaðið sagði frá í desember síðastliðnum. Það væri ábyrgðarleysi að ana út í framkvæmdir án þess að hafa áður kortlagt minjarnar og áhrif framkvæmdanna á þær almennilega. Það er ekki hægt að leyfa minjum sem geyma mikilvægar upplýsingar um sögu og fortíð lands og þjóðar að fjúka burt og drabbast niður. En það verður klárlega áfram á brattann að sækja fyrir minjavörzluna eins og staðan er í ríkisfjármálum. Á meðan peninga vantar til löggæzlu, heilbrigðismála og menntunar er hætt við að það sem legið hefur í jörð öldum saman verði bara látið liggja þar áfram án þess að trufla það með fjárveitingum. Möguleikarnir liggja líkast til helzt á því sviði sem fjallað er um í frétt í Fréttablaðinu í dag; að nýta fornleifarnar í uppbygg- ingu menningartengdrar ferðamennsku. Fyrir stóran hóp ferða- manna, bæði innlendra og erlendra, hefur sagan mikið aðdráttar- afl. Samhliða stöðugri fjölgun ferðamanna veitir heldur ekki af að fjölga fjölsóttum ferðamannastöðum og dreifa álaginu. Nú þurfa áhugamenn um varðveizlu menningararfsins að hugsa út fyrir kassann og fá í lið með sér fjárfesta sem hafa áhuga á uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. Það er líklegasta uppspretta peninga handa þessum málaflokki á næstunni. Skráning og rannsóknir á fornleifum eru í ólestri: Sagan fýkur burt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.